Nýr strandblaksvöllur kominn á Borg – opinn öllum
Nú er komið nýtt tækifæri til útivistar og hreyfingar á Borg – glænýr strandblaksvöllur hefur verið settur upp og er öllum íbúum sveitarfélagsins, sem og gestum og gangandi, frjáls til afnota.
Völlurinn er staðsettur á aðgengilegu svæði bakvið íþróttamiðstöðina á Borg og býður upp á frábært tækifæri til að njóta hreyfingar í sumarblíðunni, hvort sem er með fjölskyldu, vinum eða félagasamtökum. Engin skráning er nauðsynleg – fólk getur einfaldlega mætt og notað völlinn þegar hann er laus. Framkvæmdum er ekki full lokið – á planinu er að setja upp lýsingu á svæðinu með ljósastaurum. Hins vegar, þar sem veðurspáin lofaði björtu og blíðu, var ákveðið að opna völlinn strax og bjóða fólki að njóta hans nú þegar.
Sveitarfélagið hvetur alla til að nýta sér þessa nýju aðstöðu, en minnir jafnframt á mikilvægi góðrar umgengni. Við biðjum notendur að ganga snyrtilega um svæðið, skilja ekki eftir rusl og fara vel með búnaðinn svo völlurinn nýtist sem lengst fyrir alla.
Við hlökkum til að sjá fjölbreytta hópa nýta sér völlinn í sumar – hvort sem það eru léttar æfingar, vinalegir leikir eða skipulögð mót.
Njótið útivistarinnar og látum strandblakið verða skemmtilegan hluta af sumarstemningunni á Borg!