Nýtt strætóskýli við Íþróttamiðstöðina á Borg
Nýlega var komið fyrir nýju strætóskýli við Íþróttamiðstöðina á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi. Skýlið er mikilvægt skref í að bæta aðstöðu fyrir íbúa og gesti sem nýta sér almenningssamgöngur á svæðinu.
Það var Eiríkur Steinsson hjá Smiðsholti ehf. sem sá um smíði skýlisins og hefur það verið staðsett við íþróttamiðstöðina þar sem umferð gangandi og strætófarþega er töluverð. Með skýlinu skapast betri og skjólgóð biðaðstaða fyrir þá sem bíða eftir strætó, sérstaklega yfir vetrartímann þegar veður getur verið krefjandi.
Skýlið mun nýtast vel ungmennum í sveitarfélaginu sem sækja skóla og þurfa að nýta strætóferðir til og frá námi, en einnig öðrum íbúum sem kjósa að ferðast með almenningssamgöngum. Markmiðið er að gera bið eftir strætó þægilegri og öruggari og þannig hvetja fleiri til að nýta sér þessa samgöngumáta.
Á myndinni má sjá Smára Bergmann Kolbeinsson, formann framkvæmda- og veitunefndar, ásamt Eiríki Steinssyni frá Smiðsholti ehf., sem sá um smíði skýlisins.