Fara í efni

Ógleymanleg Grímsævintýri á 100 ára afmæli Tombólunnar

Það var sannkölluð hátíðarstemning á Borg laugardaginn 22. ágúst þegar Grímsævintýri voru haldin og einstökum tímamótum fagnað, 100 ára afmæli Tombólunnar á Borg. Tombólan var fyrst haldin af Kvenfélagi Grímsneshrepps árið 1926 og hefur allar götur síðan verið órjúfanlegur hluti af mannlífi og sumargleði í sveitinni.

Veðurguðirnir ákváðu reyndar að láta aðeins reyna á okkur þetta árið, en það hafði lítil áhrif. Þvert á móti var þátttakan með allra mesta móti og seldust allir 3050 miðarnir upp á mettíma. Heimafólk, brottfluttir sveitungar, frístundahúsagestir, nágrannar og aðrir góðir gestir fjölmenntu á Borg og sköpuðu einstaka stemningu.

Enn og aftur sýndi það sig hversu sterkan sess þessi einstaka hefð skipar í samfélaginu okkar, en allur ágóði tombólunnar rennur til góðra málefna.

Líf og fjör var á öllu svæðinu yfir daginn. Markaður og Blúndukaffi voru á sínum stað, börnin nutu ýmiss konar afþreyingar og gestir á öllum aldri tóku þátt í leikjum og skemmtun. Það er einmitt það sem gerir Grímsævintýrin svo sérstök, hér koma saman kynslóðir til að njóta og styðja við þetta frábæra framtak.

Hátíðarhöldunum lauk þó ekki þegar dagskránni lauk síðdegis. Í tilefni tímamótanna bauð Grímsnes- og Grafningshreppur til ókeypis tónleika í Félagsheimilinu Borg um kvöldið. Þar stigu á svið sveitungur okkar Magnús Kjartansson, ásamt Siggu Beinteins og Grétari Örvars, auk frábærrar hljómsveitar.

Skemmst er frá því að segja að félagsheimilið fylltist út úr dyrum. Stemningin var mögnuð frá fyrsta tóni og þegar leið á kvöldið sungu gestir með af slíkum krafti að húsið hreinlega nötraði þegar söngurinn stóð sem hæst. Það var erfitt að hugsa sér betri endi á þessum frábæra degi sem snerist fyrst og fremst um samfélag, samveru og gleði.

Sveitarfélagið færir Kvenfélagi Grímsneshrepps innilegar þakkir fyrir ómetanlegt starf og glæsileg Grímsævintýri. Einnig færum við öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum, félagasamtökum, listamönnum og öðrum sem lögðu hönd á plóg bestu þakkir og síðast en ekki síst öllum þeim sem mættu og gerðu daginn ógleymanlegan. 

             

Síðast uppfært 24. ágúst 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?