Opnun stjórnsýsluhúss Grímsness- og Grafningshrepps - þér er boðið
10.03.2026
Nýtt stjórnsýsluhús hefur nú fengið fullnaðarúttekt og er starfsemi hafin í nýju og glæsilegu húsnæði. Af því tilefni er áformað að halda opið hús fyrir íbúa og gesti sveitarfélagsins þann 19. mars milli 15:00 og 18:00. Markmið opins húss er að gefa íbúum og öðrum áhugasömum kost á að kynna sér aðstöðuna, starfsemina og þá þjónustu sem þar verður veitt.
Sveitarstjórn fagnar þessum mikilvæga áfanga í uppbyggingu sveitarfélagsins og óskar starfsfólki og íbúum innilega til hamingju með nýtt og bætt húsnæði.
Síðast uppfært 10. mars 2026