Fara í efni

Orkuskipti - Samtal um nýtingu vindorku

 Orkuskipti
Samtal um nýtingu vindorku.

 Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og lotslagsráðherra, býður til opinna
funda um orkuskipti með áherslu á hlutverk vindorku.
Ráðherra skipaði síðastliðið sumar þriggja manna starfshóp sem fékk það hlutverk að skoða og gera tillögur til ráðherra um nýtingu vindorku, þ. á m. um lagaumhverfi og hvernig verði tekið á ýmsum álitamálum.
Starfshópurinn hefur nú skilað stöðuskýrslu til ráðherra og verða niðurstöður
hennar til umræðu á fundunum og fulltrúar starfshópsins til svara um efni
skýrslunnar.
Stöðuskýrslan dregur saman helstu álitaefni sem ramma inn umræðuna og
boðar ráðherra þess vegna til opinna funda þar sem almenningur fær tækifæri til þess að kynna sér stöðuskýrsluna og eiga beint samtal við starfshópinn og ráðherra, áður en hópurinn skilar formlegum niðurstöðum og
tillögum að stefnumótun ríkisins í þessum efnum.

 24. apríl Reykjavík, Nauthóll kl. 16:30
Hvolsvöllur, Félagsheimilið Hvoll kl. 20:00
3. maí Akureyri, Hótel KEA Múlabergi kl 17:00
4. maí Egilsstaðir, Hótel Hérað kl. 17:00
8. maí Búðardalur, Dalabúð kl. 20:00

Stjórnarráð Íslands

Umhverfis-, orku- og
loftslagsráðuneytið

Síðast uppfært 26. apríl 2023
Getum við bætt efni síðunnar?