Fara í efni

Platan steypt: Björgunarmiðstöðin á Borg tekur á sig mynd

Stór áfangi náðist í byggingu nýrrar björgunarmiðstöðvar á Borg laugardaginn 26. september þegar gólfplata hússins var steypt. Nú styttist í að húsið fari að rísa, því límtré frá Límtré Vírneti er væntanlegt á verkstað á næstu dögum.

Frá skóflustungu að steyptri plötu

Framkvæmdir hafa gengið vel frá því að fyrsta skóflustungan var tekin við Þinggerði 1 á Borg 12. mars síðastliðinn. Í kjölfarið var verkið boðið út, og alls bárust ellefu tilboð. Verksamningur við HR smíði var undirritaður 9. júní og síðan hefur verið unnið að jarðvinnu, sökklum og nú gólfplötu. Næsta skref er að reisa burðarvirki hússins, sem er límtrésgrind klædd stálklæddum steinullareiningum.

Öryggi fyrir íbúa og gesti

Björgunarmiðstöðin er sameiginlegt verkefni Grímsnes- og Grafningshrepps, Brunavarna Árnessýslu og Hjálparsveitarinnar Tintron. Tintron mun nýta um 60% hússins og Brunavarnir Árnessýslu um 40%.

Með miðstöðinni rís í fyrsta sinn slökkvistöð á Borg. Það styttir viðbragðstíma og eykur öryggi íbúa, sumarhúsaeigenda og ferðamanna á svæðinu. Tintron fær jafnframt aðstöðu sem gerir sveitinni kleift að vaxa í takt við samfélagið.

Hvað er framundan?

Áætluð verklok eru í desember 2026. Við munum senda út uppfærslur um framkvæmdina eftir því sem á líður og húsið rís. Fylgist með!

Síðast uppfært 30. september 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?