Nýtt Póstbox og þjónustubreyting í Grímsnesi
Pósturinn hefur sett upp og tekið í notkun nýtt Póstbox við íþróttamiðstöðina Borg, Skólabraut 2. Frá og með 16. febrúar nk. verður almennum bréfum til íbúa í þéttbýlinu Borg dreift í Póstboxið en það má líka nota til að sækja pakka og senda.
Verið er að dreifa eyðublaði/skráningarblaði í alla póstkassa í þéttbýlinu Borg sem fylla þarf út sem fyrst til að fá póst allra íbúa á heimilinu í Póstboxið.
Aðrir íbúar í dreifbýli sveitarfélagsins geta fengið eyðublað/skráningarblöð í Íþróttamiðstöðinni Borg.
Útfylltum eyðublöðum skal skila í póstkassann við póstboxið á Borg.
Til að tryggja að póstur berist réttum aðilum þurfa íbúar að skrá tengilið heimilisins og aðra heimilismenn sem eiga að fá almennan póst í viðkomandi Póstbox.
Á hverju heimili skal einn aðili vera skráður sem tengiliður fyrir móttöku almennra bréfasendinga. Aðrir íbúar heimilisins sem eiga að fá póst þurfa einnig að vera skráðir. Allir viðkomandi þurfa að staðfesta skráninguna með undirskrift. Ef íbúi er ólögráða skal forráðamaður staðfesta skráningu með sinni undirskrift.
Athugið að póstur telst vera á ábyrgð viðtakanda um leið og hann hefur verið afhentur í Póstboxið. Sjálfvirk tilkynning er send með SMS eða tölvupósti þegar bréf berst. Póstur er geymdur í allt að 60 daga í þjónustupósthúsi áður en honum er endursent til sendanda, hafi hann ekki verið sóttur.