Rafmagnslaust aðfaranótt föstudags
06.11.2025
Vegna vinnu við aðveitustöð RARIK í Reykholti verður rafmagnslaust í dreifbýli í hluta Laugardals, Biskupstungum og upp að Geysi frá kl. 23:50 þann 6. nóvember til 05:00 7. nóvember. Íbúar í þéttbýli við Laugarvatn og í Reykholti munu hafa rafmagn á þessum tíma en eru beðnir um að fara sparlega með það þar til aðgerðum lýkur.
Svæðið sem um ræðir nær niður í Grímsnes að Sólheimum.
Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528-9000. Kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof
Síðast uppfært 6. nóvember 2025