Fara í efni

Sæludvöl eldri borgara haustið 2023

Nú er verið að senda út bréf til eldri borgara um sæludvöl. Bréfin ættu að hafa borist öllum eldri borgurum í síðasta lagi föstudaginn 14. júlí.

Í ár býður Grímsnes- og Grafningshreppur eldri borgurum, sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu, að eiga dvöl á Fosshótel í Stykkishólmi dagana 2.- 4. október 2023. Eins og áður er farið á einkabílum.

Dagskrá sæludvalarinnar er í vinnslu og verður gefin út þegar nær dregur og send á þátttakendur.

Ef þið hafið möguleika á að nýta ykkur þetta tækifæri og dvelja á notalegu hóteli í skemmtilegum félagsskap, þá væri sveitarfélaginu það sönn ánægja að bóka fyrir ykkur dvölina á hótelinu ásamt morgunverði og kvöldverði.

Ákveðið var í samráðshópi um málefni aldraðra að þátttakendur í ferðinni myndu greiða 5.000 kr. staðfestingagjald við skráningu í ferðina og greiðist það til sveitarfélagsins sem sér svo um heildargreiðslu til hótelsins. Makar eldri borgara eru velkomnir með í ferðina en greiða þá fullt verð.

Þar sem að skrifstofan verður lokuð vegna sumarleyfa frá 17. júlí þarf að senda tölvupóst á gudrunasa@gogg.is fyrir 24. júlí til að tryggja sér pláss og verða geiðsluupplýsingar sendar á þá sem skrá sig.

Því miður er takmörkuð pláss í boði eins og er en við reynum að koma öllum sem vilja með í ferðina.

Síðast uppfært 12. júlí 2023
Getum við bætt efni síðunnar?