Samið við Alefli um byggingu íþróttahúss
05.07.2024
Föstudaginn 5. júlí var undirritaður verksamningur við Alefli um viðbyggingu á íþróttahúsi.
Í byggingunni er gert ráð fyrir skrifstofuhúsnæði á efri hæð og góðri líkamsræktaraðstöðu og aðstöðu fyrir sjúkraþjálfara á neðri hæð. Viðbyggingin tengist við austurgafl íþróttamiðstöðvarinnar og verður á tveimur hæðum með heildarflatarmál um 670m². Líkamsrækt og sjúkraþjálfun ásamt stoðrýmum verða á 1. hæð en á 2. hæð verða skrifstofur og stoðrými.
Á mynd má sjá Iðu Marsibil sveitarstjóra og Magnús Þór Magnússon framkvæmdastjóra Alefli við undirskrift verksamnings.
Síðast uppfært 5. júlí 2024
Getum við bætt efni síðunnar?