Samningur um leigu jarðhitaréttinda á Snæfoksstöðum undirritaður
Í dag var undirritaður samningur um leigu jarðhitaréttinda í landi Snæfoksstaða í Grímsnes- og Grafningshreppi. Undirritunin fór fram í stjórnsýsluhúsinu á Borg þar sem þau Hreinn Óskarsson, formaður Skógræktarfélags Árnesinga, og Fjóla St. Kristinsdóttir, sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps, undirrituðu samninginn fyrir hönd aðila.
Með samningnum er lagður grunnur að markvissri samvinnu um rannsóknir, nýtingu og uppbyggingu jarðhita á svæðinu. Samningurinn felur í sér heimild til jarðhitaleitar og rannsókna, en áhersla er lögð á að nýtingin verði sjálfbær og taki mið af vernd náttúru og landslags á svæðinu .
Snæfoksstaðir eru í eigu Skógræktarfélags Árnesinga, sem hefur um árabil sinnt uppbyggingu skógræktar og útivistarsvæða á svæðinu. Svæðið hefur þannig þegar sterka stöðu sem útivistar- og náttúruperla og felur samningurinn í sér tækifæri til að efla þá stöðu enn frekar með skynsamlegri nýtingu jarðhita.
Markmið samningsins nær þó langt út fyrir hefðbundna orkunýtingu. Áhersla er lögð á að jarðhitinn verði nýttur til uppbyggingar í nærsamfélaginu, til atvinnusköpunar og til að styðja við áframhaldandi þróun sjálfbærrar skógræktar. Með því er horft til heildrænnar þróunar þar sem orka, náttúra og samfélag vinna saman að því að skapa verðmæti fyrir komandi kynslóðir.
Samningurinn hefur einnig mikilvæga þýðingu fyrir framtíð Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps. Með því að tryggja aðgengi að nýjum jarðhitaauðlindum er styrktur rekstrargrundvöllur hitaveitunnar til lengri tíma og aukið afhendingaröryggi .
Aðilar lýsa jafnframt vilja til að skoða frekari uppbyggingu á svæðinu sem áfangastað fyrir útivist og upplifun, þar sem áhersla verður lögð á ábyrga nýtingu auðlinda