Skiptimarkaður
29.09.2025
Laugardaginn 4. október kl. 13–17 í Félagsheimilinu Borg
Komdu og taktu þátt í líflegum skiptimarkaði sem Kvenfélag Grímsneshrepps stendur fyrir! Þetta er kjörinn vettvangur til að gefa hlutum nýtt líf og finna eitthvað spennandi í staðinn – án þess að það kosti krónu.
Hvað á heima á markaðnum?
Föt og skófatnaður fyrir alla aldurshópa
Sund- og íþróttafatnaður
Fylgihlutir, veski og töskur (ath. ekki ferðatöskur)
Grímubúningar
Púsl og spil fyrir alla aldurshópa
Leikföng og barnabækur
Hvernig virkar þetta?
• Þú mætir með þínar eigur og setur á merkt borð eða slár
• Þú getur valið þér eitthvað annað í staðinn – eða einfaldlega bara komið og skoðað, jafnvel þó að þú komir ekki með neitt þá máttu eigna þér það sem þér líst á
• Það er enginn „skiptikvóti“ – þú mátt taka meira, minna eða ekkert
• Mundu að taka með þér poka

Aukastemning á staðnum
Sveitarfélagið býður upp á kaffi og djús
Kvenfélagið selur vöfflur og skúffukökur
Vanar saumakonur verða á staðnum með saumavélar til að leiðbeina við viðgerðir og breytingar á fatnaði
Unglingadeild Kerhólsskóla safnar fyrir útskriftarferð og verða þau með fjáröflun á staðnum
Síðast uppfært 29. september 2025