Slökkvistöð rís á Borg
Vorfundur Brunavarna Árnessýslu bs. samþykkti í gær að undirbúa rekstur slökkvistöðvar á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps fagnar niðurstöðum vorfundarins og hlakkar til að efla starfsemi Brunavarna Árnessýslu í sveitarfélaginu.
Í sveitarfélaginu er stærsta frístundahúsabyggð landsins, en hér eru 22% allra frístundahúsa á landinu og það eru því ríkir almannahagsmunir að viðbragðstími hjá viðbragðsaðilum sé með besta móti sem hægt er bæði fyrir íbúa og fasteignaeigendur.
Sveitarfélagið stefnir á að byggja u.þ.b. 200 m2 hús til leigu fyrir starfsemi Brunavarna Árnessýslu og stefnt er að því að taka húsnæðið í notkun á árinu 2026.
Slökkvistöðin verður á Þinggerði 1, sem er lóð í eigu sveitarfélagsins og staðsett við Grímstorg og við Sólheimaveginn.
Áætlað er að gerður verði sérstakur samningur um afnot af húsnæðinu með möguleika á kaupum í framtíðinni.