Fara í efni

Stóri Plokkdagurinn 2026 – Laugardaginn 25. apríl

Grímsnes- og Grafningshreppur heldur Stóra Plokkdaginn hátíðlegan um helgina, en vegna veðurspár ætlum við að plokka laugardaginn 25. apríl í stað sunnudags.

Hægt verður að nálgast hanska og poka til plokksins á torginu við Félagsheimilið Borg frá kl. 10:00, en þar á planinu verður einnig kerra til þess að losa sig við afrakstur plokksins. Einnig verður gámasvæðið Seyðishólum opið milli 13:00 og 16:00 þar sem tekið verður við plokki.

Við hvetjum alla íbúa og fasteignaeigendur til þess að plokka í sínu nærumhverfi og hittast svo í bálskýlinu í Yndisskóginum á Borg kl 13:00 þar sem sveitarfélagið býður upp á pylsur og safa!

Á vefsíðunni www.plokk.is má nálgast almennar upplýsingar um plokk og gagnlega punkta til að undirbúa sig fyrir plokkið.

Síðast uppfært 22. apríl 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?