Fara í efni

Suðurlandsnámskeið Skákskólans í Félagsheimilinu á Borg

Skákskóli Íslands, í samstarfi við skákþjálfarann Gauta Pál Jónsson, stendur fyrir skáknámskeiði á Borg í Grímsnesi dagana 7.-8. júní næstkomandi.

Skáknámskeiðið er ætlað fyrir börn í 2.-5. bekk grunnskóla.

Staðsetning: Félagsheimilið Borg, Grímsnesi.

Námskeiðið fer fram frá klukkan 10:00-12:00 og svo aftur eftir hádegishlé frá 13:00-15:00 báða dagana, alls 8 klukkustundir.

Að kvöldi sunnudagsins 8. júní verður haldið eftir námskeiðið Suðurlandsmót Skákskólans í hraðskák, sem verður opið mót og reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Ekki er gerð krafa um stig til þátttöku í mótinu. Mótið er opið öllum. Tímasetning auglýst síðar.

Skráning miðast við í minnsta lagi 12 þátttakendur og í mesta lagi 18.
Skráningu verður lokað um leið og 18 hafa skráð sig.

Þátttökugjöld verða kr. 10.000 á mann. Systkinaafsláttur er 20%. Innifalið í þáttttökugjaldinu er námsefni, bæði prentað og á rafrænu formi ásamt ókeypis þátttöku í Suðurlandsmótum Skákskólans í hraðskák. Þátttökugjöld í Suðurlandsmótin Skákskólans fyrir aðra eru kr. 2000.

Nánari upplýsingar veitir Gauti Páll Jónsson.

Netfang:gauti.pall.jonsson@reykjavik.is

Símanúmer: 6919937

Fyrirhugað er að halda námskeið fyrir eldri nemendur síðar í sumar. Nánar auglýst síðar.

Síðast uppfært 15. maí 2025
Getum við bætt efni þessarar síðu?