Fara í efni

Sveitarfélag ársins 2023

Við erum stolt og ánægð með að geta sagt frá því að Grímsnes- og Grafningshreppur varð aftur í 1. sæti þegar kom að því að útnefna Sveitarfélög ársins 2023.

Útnefningin er á grunni niðurstaðna viðhorfskönnunar félagsfólks tíu bæjarstarfsmannafélaga hjá sveitarfélögum á þeirra félagssvæðum og var könnunin gerð í samstarfi við Gallup. Þeirra á meðal er FOSS, félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi. Þetta er annað árið í röð sem slík könnun er gerð og þeim sveitarfélögum veitt viðurkenning sem skara fram úr.

Tilgangurinn með könnuninni er meðal annars að hvetja stjórnendur sveitarfélaga til að veita starfsumhverfi meiri athygli og ráðast í umbótaverkefni þar sem þess er þörf en ekki síður er tilgangurinn að veita góðum vinnustöðum viðurkenningu fyrir að hlúa vel að starfsfólki.

Reiknuð var heildareinkunn út frá níu þáttum sem spurt var um í könnuninni en það voru stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd vinnustaðar, ánægja og stolt og jafnrétti.

Líkt og í fyrra fékk Grímsnes- og Grafningshreppur flest stig í heildarniðurstöðunum, eða 4.403. Þar á eftir kom Bláskógabyggð með 4.349 stig, þá Sveitarfélagið Vogar með 4.236 stig og í fjórða sæti Sveitarfélagið Skagaströnd með 4.217 stig.

Grímsnes- og Grafningshreppur fékk hæstu einkunnir allra fyrir launakjör, vinnuskilyrði, jafnrétti og deildi efsta sætinu hvað varðar þáttinn sjálfstæði í starfi með Bláskógabyggð. Bláskógabyggð var auk þess með hæstu einkunn allra sveitarfélaganna fyrir stjórnun, starfsanda og ímynd.

Við megum vera ánægð með þennan árangur enda sérlega heppin með frábæran mannauð sveitarfélagsins.

Síðast uppfært 13. október 2023
Getum við bætt efni síðunnar?