Fara í efni

Sveitarfélagið kaupir Gömlu-Borg þinghús

Á 611. fundi sveitarstjórnar í dag, 4. mars 2026, voru samþykkt drög að kaupsamningi um eignina Gamla-Borg þinghús í Grímsnes- og Grafningshreppi (fasteignanúmer F2207855 og landeignanúmer L169144), ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber, þar með talið leigulóðarréttindum.

Sveitarstjórn samþykkti drögin samhljóða og veitti jafnframt sveitarstjóra, Fjólu Steindóru Kristinsdóttur, fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita, móttaka og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast kaupunum fyrir hönd sveitarfélagsins.

Með kaupunum er stigið mikilvægt skref í varðveislu menningararfs sveitarinnar, enda hefur Gamla-Borg gegnt lykilhlutverki í samfélaginu í nær heila öld.

Gamla-Borg var reist árið 1929 af ungmennafélaginu Hvöt í Grímsneshreppi eftir teikningum Þorleifs Eyjólfssonar og er húsið talið einstakt sinnar tegundar á landinu. Upphaflega var það byggt sem þinghús sveitarinnar og skóli, en sú starfsemi stóð aðeins yfir í skamman tíma. 

Á árunum 1930–1960 varð Gamla Borg eitt helsta samkomuhús sveitarinnar. Þar var rekin verslun og kaupfélagsstarfsemi sem þjónaði íbúum í þáverandi Grímsnes- og Grafningshreppi, auk þess sem þar var póstafgreiðsla og fundarstaður hreppsnefndar. 

Árið 1966 tók nýtt og stærra samkomuhús við samkomuhaldi sveitarinnar og Gamla-Borg var um tíma nýtt sem bílaverkstæði. Húsinu var lítið sinnt næstu áratugi og um miðjan tíunda áratuginn var það orðið illa farið. Árið 1995 stóð jafnvel til að rífa húsið, en þá gripu framsýnar konur í hreppnum, meðal annars Lísa Thomsen á Búrfelli, inn í og hófu aðgerðir til að bjarga því.

Í kjölfarið var ráðist í metnaðarfulla endurgerð þar sem lögð var áhersla á að endurheimta upprunalegt útlit hússins bæði að utan og innan. Árið 1999 var Gamla-Borg endurvígð og varð á ný vettvangur mannamóta í sveitarfélaginu.

Með kaupum á húsinu hyggst sveitarfélagið tryggja varðveislu þess og nýta það áfram í þágu samfélagsins. Stefnt er að því að þar verði rými fyrir minni menningartengda viðburði og aðstaða sem nýtist eldri borgurum sveitarfélagsins til samveru og félagsstarfs.

Með þessu vill sveitarfélagið bæði heiðra sögu staðarins og skapa vettvang fyrir lifandi samfélagsstarf til framtíðar.

Síðast uppfært 4. mars 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?