Fara í efni

Sveitarstjórn leggst gegn fyrirhuguðu náttúru- og innviðagjaldi

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps hefur sent umsögn um drög að frumvarpi atvinnuvegaráðherra um náttúru- og innviðagjald og leggst gegn þeirri útfærslu sem þar er boðuð.

Sveitarstjórn gerir alvarlegar athugasemdir við að svo viðamikil gjaldtaka sé lögð til án raunverulegrar aðkomu sveitarfélaganna að undirbúningi og útfærslu málsins. Samkvæmt frumvarpsdrögunum hafa sveitarfélög hvorki aðkomu að ákvörðunum um hvar gjald verður innheimt né hvernig tekjum af því verður ráðstafað.

Ferðaþjónustan hefur á undanförnum árum orðið ein af grunnstoðum atvinnulífsins í Uppsveitum og á Suðurlandi öllu. Sveitarfélög, fyrirtæki og nærsamfélög hafa um árabil byggt upp þjónustu og innviði til að taka á móti miklum fjölda ferðamanna. Sveitarstjórn telur því óviðunandi að tekjur af gjaldtöku renni til ríkisins án þess að tryggt sé að þær skili sér til þeirra svæða sem bera kostnað og álag vegna ferðaþjónustunnar, meðal annars vegna innviða, sorphirðu, skipulagsmála, þjónustu og aukinnar umferðar.

Þá varar sveitarstjórn við því að sértæk gjaldtaka á fáum fjölsóttum ferðamannastöðum geti breytt ferðamynstri og fært álag yfir á aðra staði sem eru síður í stakk búnir til að taka við auknum fjölda ferðamanna. Auk þess sem samkeppnishæfni fyrirtækja á svæðinu þar sem gjaldið verður innheimt er verulega skert.

Sveitarstjórn kallar því eftir breyttri og heildstæðari nálgun og telur rétt að skoða einfaldara og almennara landsdekkandi fyrirkomulag. Jafnframt þurfi sveitarfélög að hafa raunverulega aðkomu að útfærslunni og tryggja þurfi að fjármunir skili sér með sanngjörnum hætti til þeirra svæða sem bera álagið af ferðaþjónustunni.

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps leggur áherslu á að frumvarpsdrögin verði tekin til endurskoðunar og að stjórnvöld eigi raunverulegt samráð við sveitarfélög og atvinnulíf áður en lengra er haldið.

Síðast uppfært 14. október 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?