Fara í efni

Tafir á umferð vegna fjárrekstrar

Þá eru smalar farnir á fjall og stóra réttarhelgin í Uppsveitunum er komandi helgi!
 
Tafir munu geta orðið á umferð þegar fé kemur niður af fjalli og viljum við vekja athygli á því og einnig óska eftir að vegfarendur aki varlega og sýni tillitssemi.
 
Tafir geta orðið á eftirfarandi vegum, eftirfarandi daga
 
Fimmtudagurinn 10. september
 
 
• Þjórsárdalsvegur (32) frá hádegi og fram eftir degi, allt frá Búrfelli og að Ásólfsstöðum.
• Skeiða- og Hrunamannavegur (30) frá Tungufelli að Hrunaréttum, um Kirkjuskarð, frá kl: 10:00-18:00.
 
Föstudagurinn 11. september
 
• Biskupstungnabraut (35), milli Gullfoss og Geysis frá kl. 11:30 til 13:30.
• Skeiða- og Hrunamannavegur (30), við Gýgjarhól milli kl. 14:00 og 15:30.
• Einholtsvegur (358), frá Kjarnholtum að Tungnaréttum frá kl. 16:00 fram á kvöld.
• Þjórsárdalsvegur (32) frá Ásólfstöðum að Skaftholtsréttum á milli kl. 6.00 til ca. 11.00
• Milli Bólstaðar og Sandlækjarholts (32) frá kl. 16 - 18 og fyrir ofan og neðan það svæði.
• Hrunavegur (344) kl:12:00 og fram eftir degi vegna fjárrekstrar frá Hrunaréttum.
 
Laugardagurinn 12. september
 
• Biskupstungnabraut (35) frá Vatnsleysu að Múla frá kl. 13:00 og fram eftir degi vegna fjárrekstrar frá Tungnaréttum.
• Einholtsvegur (358) frá Tungnaréttum að Gýgjarhólskoti frá kl. 13:00 og fram eftir degi vegna fjárrekstrar frá Tungnaréttum.
• Skeiðavegur (30), allan daginn, vegna fjárrekstrar frá Skeiðaréttum.
 
Með von um góða samvinnu
Bændur og smalar í Uppsveitum Árnessýslu
Síðast uppfært 7. september 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?