Tilkynning frá Colas: Laugarvatnsveg tímabundið lokað frá 16.júlí kl 16:00
15.07.2026
Colas mun vinna að fræsingu á Laugarvatnsvegi, frá Laugarvatni að Hjálmsstöðum.
Framkvæmdir hefjast kl. 16:00 fimmtudaginn 16. júlí og standa til kl. 04:00 aðfaranótt föstudagsins 17. júlí.
Laugarvatnsvegur verður lokaður fyrir umferð á meðan framkvæmdir standa yfir, frá Laugarvatni að Hjálmsstöðum.
Upplýsingamerki verða sett upp og hjáleiðir verða merktar
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna sérstaka aðgát í nágrenni við vinnusvæðið.
Síðast uppfært 15. júlí 2026