Tímabundin lokun á vatni við Sólheimaveg og Biskupstungnabraut
20.07.2026
Tímabundin lokun á vatni við Sólheimaveg
Vatnslaust verður við Sólheimaveg frá miðnætti aðfaranótt þriðjudagsins 21. júlí vegna tengingar við stofnlögn við Björgunarmiðstöðina á Borg.
Gert er ráð fyrir að lokunin vari í um þrjár klukkustundir.
Íbúar og aðrir notendur á svæðinu eru hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.
Síðast uppfært 20. júlí 2026