Fara í efni

Undirritaður samstarfssamningur við Félag 60+

Þann 6. mars sl. undirrituðu Grímsnes- og Grafningshreppur og Félag 60+ samstarfssamning sem miðar að því að efla og styrkja félagsstarf eldri borgara í sveitarfélaginu. Með samningnum er viðurkennd sú mikilvæga vinna sem félagið sinnir við að skapa vettvang fyrir virkni, samveru og aukin lífsgæði eldri íbúa sveitarfélagsins.

Félag 60+ hefur á undanförnum árum staðið fyrir fjölbreyttri og öflugri starfsemi sem hefur vakið jákvæða athygli í samfélaginu. Þar má meðal annars nefna skipulagðar heilsubótargöngur, boccia-æfingar, opið hús og ýmsa félagsviðburði. Einnig hefur félagið staðið fyrir vinsælum samkomum á borð við jólamat og þorrablót félagsins sem hafa skapað mikilvægan vettvang fyrir samveru og félagsleg tengsl eldri íbúa.

Samkvæmt samningnum mun Félag 60+ áfram annast og skipuleggja fjölbreytt félagsstarf fyrir eldri borgara, þar á meðal íþróttaæfingar, ferðir, námskeið og aðra viðburði sem stuðla að aukinni hreyfingu, félagslegum tengslum og virkri þátttöku í samfélaginu. Slíkt starf er mikilvægur þáttur í að styðja við virka öldrun og efla líkamlega, andlega og félagslega heilsu eldri íbúa.

Sem hluti af samningnum fær félagið aðgang að mannvirkjum sveitarfélagsins sem nýtast undir tómstunda- og félagsstarf, þar á meðal Félagsheimilinu Borg og Gömlu-Borg, auk annarrar aðstöðu eftir því sem við á.

Samstarfið er í góðu samræmi við samfélagsstefnu Grímsnes- og Grafningshrepps og markmið sveitarfélagsins um að vera heilsueflandi samfélag þar sem lögð er áhersla á velferð, virkni og þátttöku allra aldurshópa.

Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri segir samninginn afar ánægjulegan:
„Það er virkilega ánægjulegt að klára þennan samning en með honum komum við til móts við það frábæra starf sem þegar er unnið innan Félags 60+. Við bindum vonir við að starfið haldi áfram að eflast og skapi enn fleiri tækifæri til samveru, hreyfingar og virkni fyrir heldri íbúa sveitarfélagsins.“

Sveitarfélagið fagnar þessu samstarfi og hlakkar til áframhaldandi uppbyggingar öflugs félagsstarfs fyrir eldri borgara í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Síðast uppfært 9. mars 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?