Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Grímsnes- og Grafningshreppi 2026
18.05.2026
Úrslit sveitarstjórnarkosninga í
Grímsnes- og Grafningshreppi 2026
A-listinn vann öruggan sigur í Grímsnes- og Grafningshreppi og fær fjóra af fimm kjörnum sveitarstjórnarfulltrúum.
Ö-listinn fær einn fulltrúa.
A-listi Framboðslisti um öflugt samfélag í vaxandi sveitarfélagi hlaut 309 atkvæði 66,7% og Ö-listinn Betri sveit- fyrir okkur öll hlaut 154 atkvæði 33,3%.
Auðir seðlar voru níu og ógildur einn.
Kjörsókn var 81%.
Sveitarstjórnin verður þannig skipuð:
(A) Guðmundur Finnbogason
(A) Rebekka Lind Guðmundsdóttir
(Ö) Andrés Bertelsen
(A) Bergur Guðmundsson
(A) Ragnheiður Eggertsdóttir
Formaður yfirkjörstjórnar,
Bragi Svavarsson.
Síðast uppfært 18. maí 2026