Fara í efni

Útboð - Björgunarmiðstöð á Borg

Sveitarfélagið Grímsnes og Grafningshreppur óskar eftir tilboðum í verkið: Björgunarmiðstöð á Borg

Um er að ræða byggingu 1.135 fermetra (með millilofti), Björgunarmiðstöð á Borg í Grímsnesi. Húsið skal vera límtréshús með steinullareiningum. Athuga skal að húsið skal ekki afhendast verkkaupa fullklárað, heldur eru skil samkvæmt verklýsingu.

Verktaki skal hanna, útvega og reisa yfirbyggingu hússins ásamt brunahólfandi þverveggjum og milligólfi. Húsnæðið skal vera rammabygging úr límtré, með hjúpfleti úr stálklæddum, steinullarfylltum samlokueiningum.

Athuga skal að útlit hússins, lagnir og rafmagn hafa þegar verið hönnuð. Húsnæðið skal uppfylla þær kröfur sem settar eru fram í verklýsingu.

Jarðvinna hefur verið boðin út, þar á meðal gröftur og fylling undir sökkla. Verktaki tekur við framkvæmdasvæði þar sem grundun undir undirstöður er lokið. Verksvæðið er á lóðinni Þinggerði 1 í Grímsnes- og Grafningshreppi og er aðkoma að lóðinni frá Sólheimavegi.

Starfsemi hússins er ætluð fyrir björgunarsveit og slökkvilið. Sökklar og gólfplata eru staðsteypt.

Verklok eru 20. desember 2026.

Útboðsgögn fást afhent rafrænt með því að senda tölvupóst á ragnar@gogg.is

Síðast uppfært 8. apríl 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?