Útboð - Kerhólsskóli – Breytingar 2. hæð og ný loftræsisamstæða
Sveitarfélagið Grímsnes og Grafningshreppur óskar eftir tilboðum í verkið:
Kerhólsskóli – Breytingar 2. hæð og ný loftræsisamstæða
Verkið felur í sér breytingar á Kerhólsskóla á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi. Framkvæmdir fara fram innanhúss í starfandi skólahúsnæði og að hluta á þaki byggingarinnar. Helstu verkþættir eru sögun, brot og kjarnaborun í steypta byggingarhluta, frágangur lagnaskakts og stálpalls fyrir loftræsisamstæðu á þaki, límtré og festingar vegna breytinga á gólfi, lagnir, loftræsting, rafkerfi, brunaviðvörunarkerfi og frágangur innanhúss, þ.m.t. léttir innveggir, niðurtekin loft, hurðir, innigluggar, gólfefni, málun og fastur búnaður.
Útboðsgögn verða afhent frá 4. september 2026 kl. 09:00.
Athugið breyttan frest:
Tilboðsfrestur er til 16. október.
Verklok eru 1. apríl 2027.
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum Ajour Tender útboðskerfi Verkís hér:
https://verkis.ajoursystem.net/Tender/DirectLink/4db8bc1b-6039-4356-9c61-8559d2de66eb
Fyrirspurnir vegna útboðsins skulu berast í gegnum útboðskerfið innan auglýsts fyrirspurnarfrests. Svör og eftir atvikum viðbótargögn verða birt öllum bjóðendum í kerfinu.
Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti í Ajour Tender eigi síðar en kl. 11:00 þann 9. október 2026. Bjóðandi fær staðfestingu þegar tilboði hefur verið skilað í kerfið.
Opnun tilboða fer fram með rafrænum hætti í Ajour Tender.