Vel heppnaður þjóðhátíðardagur á Borg
Þjóðhátíðardagurinn var haldinn hátíðlegur á Borg með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Dagurinn hófst á fyrsta hjóladeginum, þar sem gaman var að sjá hversu vel tókst til þrátt fyrir krefjandi veðuraðstæður. Fjöldi barna tók þátt í skemmtibrautinni, prófaði sig áfram á hjóli og fékk einnig tækifæri til að setjast á hestbak. Þá tóku 11 þátttakendur þátt í tímatöku í hjólabrautinni og fengu allir þátttakendur ís frá Kjörís að lokinni keppni.
Að loknum hjóladegi var opið hús í Gömlu Borg, þar sem Guðmundur Finnbogason og Lísa Thomsen fluttu ávörp. Grímsnes- og Grafningshreppur keypti Gömlu Borg fyrr á þessu ári með það að markmiði að tryggja varðveislu hússins og nýta það áfram í þágu samfélagsins. Opna húsið var því kærkomið tækifæri fyrir gesti til að líta inn, ganga um húsið og kynna sér sögu þess.
Hátíðardagskráin sjálf var stútfull af skemmtilegum atriðum. Sólheimaskátar mættu á svæðið og leiddu skrúðgönguna ásamt Hjálparsveitinni Tintron. Skátarnir grilluðu einnig sykurpúða fyrir gesti og sköpuðu notalega stemningu á svæðinu.
Karólína W. Björnsdóttir flutti hátíðarræðu dagsins og systkinin frá Ásgarði buðu upp á fallegt tónlistaratriði. Fjallkonan, Díana Kristín Sigmarsdóttir, flutti ljóðið Vikivaki eftir Jóhannes úr Kötlum og að lokum steig hljómsveitin Bíddu á svið og hélt uppi góðu stuði.
Kvenfélag Grímsneshrepps lauk svo deginum með ljúffengu kaffi og kökuhlaðborði í lok hátíðardagskrárinnar.
Við þökkum öllum sem komu að deginum, tóku þátt og lögðu sitt af mörkum við að skapa skemmtilegan og eftirminnilegan þjóðhátíðardag á Borg.