Fara í efni

Vel heppnuð opnun nýrrar líkamsræktaraðstöðu í íþróttamiðstöðinni á Borg.

Opnun nýrrar líkamsræktaraðstöðu í íþróttamiðstöðinni á Borg fór fram í gær við góðar undirtektir íbúa og gesta. Áætlað er að gestagangur hafi verið vel á annað hundrað manns yfir daginn, en stór hluti gesta sótti jafnframt HSK þing sem haldið var í Félagsheimilinu Borg síðar um daginn.

Við opnunina gafst gestum kostur á að skoða nýja og glæsilega aðstöðu, kynna sér fjölbreytta möguleika hennar og hitta þá sem komið hafa að uppbyggingu verkefnisins. Ljóst er að aðstaðan hefur þegar vakið mikla athygli og jákvæð viðbrögð, enda um að ræða mikilvæga viðbót við þjónustu og heilsueflingu í sveitarfélaginu.

Í ávarpi sínu við opnunina fór Ragnar Guðmundsson yfir þróun verkefnisins og lagði áherslu á að um væri að ræða afrakstur víðtæks samráðs og samvinnu. Hann rifjaði upp hvernig notendakönnun og íbúafundur árið 2021 lögðu grunninn að verkefninu og hvernig breiður hópur hagsmunaaðila kom að hugmyndavinnu og mótun aðstöðunnar.

„Þetta er ekki bara bygging – þetta er niðurstaða samtals, samvinnu og sameiginlegrar sýnar,“ sagði Ragnar í ræðu sinni og bætti við að verkefnið væri skýrt dæmi um hvað hægt er að gera þegar samfélagið vinnur saman að sameiginlegum markmiðum.

Sérstök áhersla var lögð á að hanna aðstöðu sem þjónar fjölbreyttum hópum, allt frá skólastarfi og almennri líkamsrækt til endurhæfingar og hópatíma, með framtíðarnýtingu í huga. Þá kom einnig fram að þrátt fyrir áskoranir á framkvæmdartíma hefði tekist að ljúka verkefninu með góðum árangri.

Óttar Guðlaugsson, heilsu- og tómstundafulltrúi, segir að næstu skref séu þegar farin að taka á sig mynd:
„Við erum afar ánægð með viðbrögðin við opnuninni og það er ljóst að aðstaðan hittir vel í mark. Nafnið Íþróttamiðstöðin á Borg á svo sannarlega rétt á sér þar sem við erum þegar farin að sjá aukinn gestagang og hér er ekki lengur um að ræða hefðbundið íþróttahús heldur eins konar félagsmiðstöð fyrir alla aldurshópa þar sem fólk sækir íþróttastarfsemi, líkamsrækt og sund sér til afþreyingar.  Bæta má við að samningur við sjúkraþjálfarana Þórfríði Soffíu Haraldsdóttur og Ölmu Önnu Oddsdóttur er nú í höfn og stefnt er að því að starfsemin hjá þeim fari af stað fljótlega eftir páska, sem mun styrkja þjónustuna hér á svæðinu enn frekar.“

Við lok athafnar fór jafnframt fram formleg lyklaafhending til forstöðumanns, Agnars Þórs Helgasonar, sem þar með tók við rekstri líkamsræktarinnar.

Íþróttamiðstöðin á Borg markar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu heilsueflingar í Grímsnes- og Grafningshreppi og er ljóst að hún mun gegna lykilhlutverki í daglegu lífi íbúa á komandi árum.

Síðast uppfært 27. mars 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?