Fara í efni

Verksamningur um gatnagerð í nýrri íbúðabyggð og miðsvæði við Borg undirritaður

Í dag var undirritaður verksamningur við Jarðtækni ehf. og JJ pípulagnir ehf. um framkvæmdir við gatnagerð í nýrri íbúðabyggð og miðsvæði á Borg í Grímsnesi. Um er að ræða þrjár götur, Miðtún, Borgartún og Lækjartún. Á miðsvæðinu er gert ráð fyrir lóð undir verslun, eldsneytis og rafhleðslustöð, atvinnustarfsemi og hótel. Verkið felur í sér lagningu vega, gangstíga, lagna, lýsingar, kantsteina og frágang á svæði. Samtímis verður gangsett ný fullkomin skólphreinsistöð fyrir svæðið.

Við Borgartún og Lækjartún er gert ráð fyrir blandaðri byggð einbýlis-, rað-, par- og fjölbýlishúsa. Verklok eru í september 2024. Stefnt er á úthlutunarferli á miðsvæði í janúar 2024.

Síðast uppfært 15. desember 2023
Getum við bætt efni síðunnar?