Fara í efni

Verksamningur vegna Björgunarmiðstöðvar undirritaður

Í dag, 9. júní 2026, var undirritaður samningur milli Grímsnes- og Grafningshrepps og HR smíði um byggingu Björgunarmiðstöðvar á Borg. Undir samninginn skrifuðu Fjóla St. Kristinsdóttir, sveitarstjóri, og Hilmar Ragnarsson fyrir hönd HR smíði.

Ný björgunarmiðstöð verður rúmir 1.100 fermetrar að stærð með millilofti og mun hýsa starfsemi Hjálparsveitarinnar Tintron og Brunavarna Árnessýslu. Með framkvæmdinni verður aðstaða viðbragðsaðila á svæðinu stórbætt og öryggisinnviðir sveitarfélagsins styrktir til framtíðar.

Áætluð verklok eru í desember 2026. Grímsnes- og Grafningshreppur fagnar þessum mikilvæga áfanga og hlakkar til áframhaldandi uppbyggingar á Borg, í þágu íbúa, fasteignaeigenda, gesta og allra þeirra sem njóta þjónustu viðbragðsaðila á svæðinu.

Síðast uppfært 9. júní 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?