Sveitarstjórn
Ása Valdís Árnadóttir oddviti setti fund, bauð fundargesti velkomna og leitaði athugasemda við fundarboð, engar athugasemdir voru við boðun fundarins.
1. Fundargerðir.
a) Fundargerð 37. fundar Atvinnu- og menningarnefndar Grímsnes- og Grafningshrepps, 28. janúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
b) Fundargerð 38. fundar Atvinnu- og menningarnefndar Grímsnes- og Grafningshrepps, 25. febrúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
c) Fundargerð 321. fundar skipulagsnefndar UTU, 11. mars 2026.
Mál nr. 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11 og 17 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 321. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 11. mars 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 5; Biskupstungnabraut og Þingvallavegur; Hjólastígar; Aðalskipulagsbreyting – 2509014.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að settir eru inn göngu- og hjólreiðastígar meðfram Biskupstungnabraut, Þingvallavegi og Sólheimavegi. Markmiðið er að bæta möguleika á vistvænum samgöngum, öryggi vegfarenda og heilsu íbúa og gesta, samhliða uppbyggingu ferðaþjónustu og annarrar þjónustu í sveitarfélaginu. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna göngu- og hjólreiðastígar meðfram Biskupstungnabraut, Þingvallavegi og Sólheimavegi verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og mælist til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31. gr. sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
Mál nr. 6; Írafossstöð; Aukið byggingarmagn; Deiliskipulagsbreyting – 2603014.
Lögð er fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu sem tekur til Írarfossstöðvar í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst að bætt er við byggingarreit fyrir geymslu. Í húsinu verður rými til geymslu á búnaði og eins verður þar aðstaða til flokkunar og geymslu á úrgangi, en í dag er þetta allt utandyra. Skipulagssvæði breytingar er um 1300 m².
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.
Mál nr. 7; Ásgarður; Landbúnaðarsvæði í verslun- og þjónustu; Aðalskipulagsbreyting – 2403091.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 er varðar skilgreiningu á verslunar- og þjónustusvæði í landi Ásgarðs L233421, L233422, L233423, L233424, L233425, L233426, L233427 og L168229. Tilefni breytingarinnar eru áform landeiganda um uppbyggingu ferðaþjónustu á staðnum. Annars vegar er um að ræða hótel með veitingastað og hins vegar frístundahús til útleigu. Deiliskipulagsbreyting er lögð fram samhliða aðalskipulagsbreytingu þessari. Umsagnir og athugasemdir bárust við kynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Ásgarðs L233421, L233422, L233423, L233424, L233425, L233426, L233427 og L168229 landbúnaðarsvæði í verslun- og þjónustu verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og mælist til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31. gr. sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
Mál nr. 8; Ásgarður; Herjólfsstígur 2-12 og Óðinsstígur 1; Verslunar- og þjónustusvæði; Nýtt deiliskipulag og óveruleg breyting á deiliskipulagi frístundsvæðis – 2403093.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags, eftir kynningu, sem tekur til uppbyggingar á verslunar- og þjónustutengdri starfsemi í landi Ásgarðs, L233421, L233422, L233423, L233424, L233425, L233426, L233427 og L168229, auk óverulegrar breytingar á núverandi deiliskipulagi frístundabyggðar í Ásgarði. Breytingin er í samræmi við aðalskipulagsbreytingu sem lögð er fram samhliða deiliskipulagsbreytingu þessari og nær til lóða 2-12 við Herjólfsstíg, lóðar Óðinsstígs 1 og þjónustulóðar við Búrfellsveg. Í breytingunni felst að skilmálar fyrir lóðir Herjólfsstíg 2-8 breytast að því leyti að þar er gert ráð fyrir frístundahúsum til útleigu. Herjólfsstígur 10 - 12, lóð við Óðinsstíg 1 og þjónustulóð við Búrfellsveg sameinast í verslunar- og þjónustulóð þar sem leyfilegt verður að reisa hótel/gistiheimili ásamt veitingastað og tilheyrandi þjónustumannvirkjum. Vegna umsagnar Minjaverndar þá er fornleifaskráningu lokið og skýrsla liggur fyrir og verið send Minjavernd. Þá hefur verið brugðist við eftirfarandi athugasemdum: Fært inn eina fornleif sem fannst og skilgreint verndarsvæði Vegna athugasemda Vegagerðar er horfið frá aðkomu frá Búrfellsvegi og hún færð til austurs að Óðinsstíg Vegna athugasemda Heilbrigðiseftirlits er fjallað ýtarlegar um fráveitu og hreinsivirki, ásamt ákvæði um hljóðvist. Vegna athugasemda um vatnsveitu þá lá fyrir í greinargerð áætlun um að tengjast Búrfellsveitu. Umsagnir og athugasemdir bárust við kynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að deiliskipulagið verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Mál nr. 9; Tjaldafell fjallaríki L175568; Fjölgun lóða, auka byggingarheimildir og gistirými; Aðalskipulagsbreyting – 2511039.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 og gerð nýs deiliskipulags fyrir skálasvæðið við Tjaldfell norðaustan Skjaldbreiðar L175568. Fyrirhugað er að fjölga lóðum, heimila stærri mannvirki og fleiri gesti í gistingu. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Tjaldafell fjallaríki L175568, fjölgun lóða, auka byggingarheimildir og gistirými, verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og mælist til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31. gr. sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
Mál nr. 10; Írafossvirkjun; Selfosslína 1 - endurnýjun og lagning jarðstrengs; Tenging við Írafossvirkjun; Aðalskipulagsbreyting – 2601055.
Lögð er fram uppfærð skipulagslýsing sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að Selfosslína 1 sem liggur frá Ljósafossstöð að Selfossi verður endurnýjuð að hluta. Fyrirhugaðar framkvæmdir fela í sér að Selfosslína 1 verður endurnýjuð að hluta að Írafoss- og Ljósafossstöðvum. Breytingarnar fela í sér lagningu jarðstrengs á um allt að 3 km leið frá Ljósafossstöð að mastri 8 í núverandi loftlínu. Á kafla verður núverandi loftlínuhluti línunnar tekinn niður.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 11; Vaðnesvegur 2 L169743; Staðfest afmörkun lóðar – 2603044.
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dagsett 15.10.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar leiðréttingu á hnitsettri afmörkun lóðarinnar Vaðnesvegur 2 L169743.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu.
Mál nr. 17; Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 26-245 - 2602003F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa þann 4. mars 2026, nr. 26-245.
d) Fundargerð 5. fundar Öldungaráðs Uppsveita og Flóa, 22. október 2025.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
e) Fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 3. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2. Kaupsamningur Laugarás, L167391.
Fyrir fundinum liggja drög að kaupsamningi milli Bláskógabyggðar, annars vegar, og Grímsnes- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps, hins vegar, um jörðina Laugarás. Drög að kaupsamningi eru lögð fram, þar sem Bláskógabyggð kaupir eignarhlut Grímsnes- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps í jörðinni Laugarási og hlunnindum sem jörðinni fylgja. Lóðarleigusamningar um lóðir úr landi Laugaráss halda gildi sínu. Matsverð jarðarinnar er 280.000.000 kr og greiðir Bláskógabyggð samtals 187.040.000 kr. fyrir hlut hinna sveitarfélaganna. Grímsnes- og Grafningshreppur á 11,9% af jörðinni og fær því 33.320.000.- í sinn hlut.
Sveitarstjórn samþykkir samninginn samhljóða og felur oddvita sveitarfélagsins, Ásu Valdísi Árnadóttur kt. 300482-5119, fullt og ótakmarkað umboð til þess fyrir hönd sveitarfélagsins að undirrita, móttaka og gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast sölu þessari.
3. Ályktun um fjármögnun landsúrræðis í málefnum fatlaðs fólks.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps vísar til fyrirliggjandi úttektar á rekstri félagsþjónustu sveitarfélagsins (október 2024), þar sem fram kemur að 45 íbúar á Sólheimum voru búsettir í sveitarfélaginu og námu þá 8,3% af íbúafjölda þess miðað við stöðu í janúar 2024. Miðað við íbúafjölda sveitarfélagsins í dag nemur hlutfallið um 6,25%, á meðan meðaltal á landsvísu er 0,41%.
Ljóst er að Sólheimar eru í reynd landsúrræði í málefnum fatlaðs fólks, þar sem íbúar koma alls staðar að af landinu.
Sveitarstjórn telur að núverandi fyrirkomulag fjármögnunar og kostnaðarskiptingar taki ekki nægilegt mið af þessari sérstöðu og leiði til þess að óhóflegur kostnaður falli á eitt sveitarfélag.
Sveitarstjórn leggur því áherslu á:
Að kostnaður vegna akstursþjónustu við íbúa Sólheima verði greiddur úr sameiginlegum sjóði sveitarfélaga á landsvísu eða með sérstakri ríkisjöfnun.
Að stuðningsþjónusta (liðveisla) við íbúa Sólheima falli undir sameiginlega fjármögnun þjónustusvæðis eða lands.
Að gerð verði sérstök greining á stöðu landsúrræða í málefnum fatlaðs fólks og mótuð verði heildstæð stefna um fjármögnun þeirra.
Að ríkisvaldið taki þátt í lausn málsins í samræmi við þá staðreynd að um landsþjónustu er að ræða.
Sveitarstjórn óskar eftir að Bergrisinn bs. taki málið formlega upp innan byggðasamlagsins með það að markmiði að mótuð verði sameiginleg afstaða aðildarsveitarfélaganna og óskað eftir formlegum viðræðum við ráðuneytið um fjármögnun landsúrræða í málefnum fatlaðs fólks.
4. Ársreikningur og ársskýrsla Kvenfélags Grímsneshrepps.
Fyrir fundinum liggja ársreikningur og ársskýrsla Kvenfélags Grímsneshrepps 2025.
Lagt fram til kynningar.
5. Úrskurður nr. 1338/2026 í máli ÚNU 25110008.
Fyrir liggur úrskurður úrskurður nr. 1338/2026 í máli ÚNU 25110008. Í úrskurðinum er beiðni kæranda, Búsetufrelsis samtaka fólks með búsetu í heilsárshúsi í frístundabyggðum Grímsnes- og Grafningshrepps, dagsett 22. október 2025, vísað til Grímsnes- og Grafningshrepps til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra, Fjólu Steindóru Kristinsdóttur, að boða til fundar með fulltrúum Búsetufrelsis til að ræða afmörkun beiðninnar í samræmi við úrskurð Úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1338/2026.
6. Erindi frá Hestamannafélaginu Jökli.
Fyrir fundinum liggur bréf frá stjórn Hestamannafélagsins Jökuls, dagsett 23. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir að sveitarstjórnir á starfssvæði félagsins staðfesti með viljayfirlýsingu að þær séu tilbúnar í áframhaldandi samstarf um uppbyggingu á aðstöðu fyrir hestaíþróttir á Flúðum og komi um leið að ákvörðunum þar sem næstu skref verða stigin. Drög að slíkri viljayfirlýsingu fylgdi með erindi félagsins.
Undanfarin misseri hefur sveitarfélagið unnið markvisst að mótun heildarsýnar um uppbyggingu frístunda-, menningar- og félagsaðstöðu fyrir alla íbúa, þar sem lögð er áhersla á fjölnota samfélagsaðstöðu í eigu sveitarfélagsins sem þjónar breiðum hópi íbúa fremur en sértækri aðstöðu fyrir afmarkaða hópa. Samhliða stendur sveitarfélagið frammi fyrir mikilvægum fjárfestingarákvörðunum, þar á meðal kaupum á Gömlu-Borg, sem eru liður í þeirri langtímasýn að byggja upp varanlega félags- og menningaraðstöðu og styrkja samfélagslega innviði.
Með hliðsjón af þessari stefnumótun og þeim verkefnum sem þegar eru í forgangi telur sveitarstjórn ekki svigrúm til að ráðast í frekari stór verkefni samhliða.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er áætlaður heildarkostnaður verkefnisins um 210 milljónir króna og hlutur hvers sveitarfélags um 37,5 milljónir króna. Sveitarstjórn telur mikilvægt að gæta aðhalds og forgangsraða fjármunum út frá heildarþörfum sveitarfélagsins og telur því ekki forsvaranlegt að binda sveitarfélagið við slíkt verkefni að svo stöddu. Jafnframt er lögð rík áhersla á jafnræði gagnvart félagasamtökum innan sveitarfélagsins, enda myndi þátttaka í verkefni sem þjónar afmörkuðum hópi kalla á sambærilegar skuldbindingar gagnvart öðrum aðilum.
Með hliðsjón af framangreindu hafnar sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps þátttöku í viljayfirlýsingunni, en lýsir jafnframt yfir vilja til áframhaldandi samtals og samstarfs við Hestamannafélagið Jökul innan þeirra marka sem samræmast stefnu og forgangsröðun sveitarfélagsins.
Ragnheiður Eggertsdóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.
7. Fundarboð Aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga.
Fyrir fundinum liggur aðalfundarboð frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., dagsett 27. febrúar 2026. Aðalfundur fer fram föstudaginn 20. mars kl. 14:00 á Grand Hótel í Reykjavík en auk þess er boðið upp á rafræna þátttöku gegnum Teams. Allir sveitarstjórnarfulltrúar eiga rétt á að sækja fundinn, sveitarstjóri er sjálfkrafa handhafi atkvæðisréttar sveitarfélagsins.
Fundarboðið er lagt fram til kynningar.
8. Fundarboð ársfundar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
Fyrir fundinum liggur fundarboð ársfundar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, dagsett 3. mars 2026. Fundarboðið er lagt fram til kynningar.
9. Áskorun til sveitarstjórna, Siglingasamband Íslands.
Fyrir fundinum liggur áskorun frá Siglingasambandi Íslands, dagsett 3. mars 2026, er varðar ályktun um verndun og aðgengi að strandlengju Íslands sem var samþykkt einróma á nýafstöðnu Siglingaþingi Siglingasambandsins.
Lagt fram til kynningar.
10. Umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga um drög að frumvarpi um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati – Mál S-51/2026.
Fyrir fundinum liggur umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga um drög að frumvarpi um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati.
Umsögnin er lögð fram til kynningar.
11. Erindi frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 56/2026, „Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks“.
Erindi frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, dagsett 3. mars 2026, þar sem kynnt er til samráðs mál nr. 56/2026, „Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks“.
Lagt fram til kynningar.
12. Erindi frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, þar sem óskað er eftir umsögn um 505. mál - sveitarstjórnarlög.
Lagt er fram erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 505. mál.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps telur mikilvægt að endurskoða sveitarstjórnarlög með það að markmiði að skýra lagaumhverfi og efla stjórnsýslu sveitarfélaga. Hins vegar gerir sveitarstjórn verulegar athugasemdir við frumvarpið í núverandi mynd og telur að það nái ekki að öllu leyti þeim markmiðum sem stefnt er að.
Sveitarstjórn leggur ríka áherslu á að fullt sjálfsforræði sveitarfélaga verði virt, sbr. 1. gr. frumvarpsins, og áréttar að allar breytingar sem fela í sér aukið inngrip ríkisvalds í málefni sveitarfélaga, hvort sem er með beinum eða óbeinum hætti, ganga gegn grundvallarreglum um sjálfstjórn sveitarfélaga og lýðræðislegan rétt íbúa, sbr. 78. gr. stjórnarskrár og Evrópusáttmála um sjálfstjórn sveitarfélaga. Sveitarstjórn ítrekar fyrri afstöðu sína að ákvarðanir um sameiningu sveitarfélaga skuli ávallt byggja á frjálsum vilja íbúa og sveitarstjórna. Þótt fallið hafi verið frá beinu frumkvæðisvaldi ráðherra felur frumvarpið áfram í sér aukinn þrýsting í átt til sameininga, meðal annars með ákvæðum um skyldu til að taka sameiningarviðræður til skoðunar, sem getur grafið undan raunverulegu sjálfsforræði sveitarfélaga. Sveitarstjórn gerir jafnframt alvarlegar athugasemdir við þær breytingar sem lagðar eru til á regluverki um samvinnu sveitarfélaga og byggðasamlög. Mikilvægt er að slíkt regluverk sé einfalt, skýrt og stuðli að hagkvæmri og sveigjanlegri samvinnu. Fyrirliggjandi tillögur bera hins vegar með sér aukið flækjustig, óljósa ábyrgðarskiptingu og aukið stjórnsýsluálag, sem getur dregið úr vilja sveitarfélaga til samstarfs og haft neikvæð áhrif á skilvirkni og þjónustu.
Sveitarstjórn gerir einnig athugasemdir við þær breytingar sem lúta að fjármálareglum sveitarfélaga. Lækkun þröskulds fyrir skyldu til að framkvæma mat á áhrifum fjárfestinga, lántöku og ábyrgða úr 20% í 10% af skatttekjum er verulega íþyngjandi. Slík breyting leiðir til þess að mun fleiri verkefni falla undir ítarlegt áhrifamat, sem hefur í för með sér aukinn kostnað vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu og aukið álag á stjórnsýslu sveitarfélaga. Þótt markmið um vandað mat sé í sjálfu sér jákvætt telur sveitarstjórn mikilvægt að slíkar kröfur taki mið af raunhæfu svigrúmi sveitarfélaga og verði ekki til þess að hamla eðlilegri og nauðsynlegri uppbyggingu. Sveitarstjórn hvetur því til þess að þessi þröskuldur verði endurskoðaður með hliðsjón af raunhæfu svigrúmi sveitarfélaga til að sinna lögbundnum verkefnum án óhóflegs kostnaðar og flækjustigs.
Sveitarstjórn leggur jafnframt áherslu á að áfram verði haft raunverulegt og virkt samráð við sveitarfélög um frekari útfærslu frumvarpsins. Þrátt fyrir að frumvarpið sé kynnt sem afrakstur víðtæks samráðs liggur fyrir að verulegar athugasemdir hafa komið fram frá sveitarfélögum, einkum hvað varðar sameiningarmál, fjármálareglur og fyrirkomulag samvinnu sveitarfélaga. Nauðsynlegt er að tekið verði tillit til þessara sjónarmiða áður en frumvarpið verður afgreitt.
Að framangreindu virtu getur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps ekki stutt frumvarpið í núverandi mynd.
13. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II – H Frístundahús, fyrir Heiðarimi 12, fnr. 2344626, 805 Selfossi.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 27. febrúar 2026 um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II – H Frístundahús, fyrir Heiðarima 12, 805 Selfossi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að leggjast gegn útgáfu rekstrarleyfis á grundvelli laga nr. 85/2007 í flokki II, að Heiðarima 12, fnr. 2344626 á þeim grundvelli að leyfisveitingin samræmist ekki heimildum gildandi deiliskipulags svæðisins. Sveitarstjórn bendir á að heimildir aðalskipulags Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 gera ráð fyrir að gististarfsemi geti verið á frístundasvæðum. Þó er gerð krafa um að gististarfsemi sé skilgreind í skilmálum gildandi deiliskipulags. Heimildir fyrir gististarfsemi innan deiliskipulags eru háðar því að fjöldi bílastæða innan lóðar sé fullnægjandi og að enginn lóðarhafi innan deiliskipulagssvæðisins leggist gegn starfseminni við breytingu á deiliskipulagi eða við gerð nýs deiliskipulags.
14. Nýr verkefnisstjóri úrgangsmála hjá SASS.
Á fundinn kemur nýr verkefnisstjóri úrgangsmála hjá SASS, Árni Magnússon, til að kynna fyrir sveitarstjórn stöðu úrgangsmála og tækifæri til samstarfs sveitarfélaga á Suðurlandi. Árni upplýsir einnig um helstu verkefni sín á næstu mánuðum. Steinar Sigurjónsson deildarstjóri framkvæmda, mannvirkja og umhverfis kom inn á fundinn undir þessum lið.
Sveitarstjórn óskar Árna til hamingju með nýtt starf og þakkar góða kynningu.