Fara í efni

Sveitarstjórn

623. fundur 07. október 2026 kl. 10:00 - 11:46 Stjórnsýsluhúsinu Borg
Sveitarstjórn
  • Guðmundur Finnbogason
  • Rebekka Lind Guðmundsdóttir
  • Andrés Bertelsen
  • Bergur Guðmundsson
  • Ragnheiður Eggertsdóttir
  • Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri
  • Pétur Thomsen varamaður
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Fjóla Steindóra Kristinsdóttir.

Guðmundur Finnbogason, oddviti setti fund, bauð fundargesti velkomna og leitaði athugasemda við fundarboð, engar athugasemdir voru við boðun fundarins.

Oddviti leitar afbrigða.
Samþykkt samhljóða að taka eftirfarandi mál á dagskrá:
a) Ársreikningur og ársskýrsla Leikfélagsins Borg 2025–2026
b) Tilnefning í framkvæmdateymi Öruggara Suðurland

1. Fundargerðir.
a) Fundargerð 48. fundar fjallskilanefndar, 30. ágúst 2026
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Bókun Ö-listans:
Ö-listi gerir athugasemdir við framsetningu og efnislegt innihald fundargerðar 48. fundar Fjallskilanefndar, sem haldinn var 30. ágúst 2026.
Fundurinn stóð yfir í um eina og hálfa klukkustund en fundargerðin gefur afar takmarkaða mynd af því sem þar fór fram. Fundargerðir nefnda sveitarfélagsins eru opinber gögn og mikilvægur hluti af gagnsæi stjórnsýslunnar. Þær þurfa því að vera nægilega skýrar og efnislegar til þess að sveitarstjórn, íbúar og aðrir hagsmunaaðilar geti áttað sig á því hvaða mál voru rædd, hvaða sjónarmið komu fram og hvaða ákvarðanir voru teknar.
Ö-listi telur eðlilegt að gerð sé krafa um ákveðin lágmarksgæði í fundargerðum nefnda sveitarfélagsins og að samræmd vinnubrögð gildi um skráningu þeirra.
Jafnframt vekur athygli að varamaður hafi verið boðaður til fundarins þrátt fyrir að allir þrír aðalmenn nefndarinnar hafi setið fundinn. Sé ekki sérstök og málefnaleg ástæða fyrir slíkri viðveru felur hún í sér aukinn kostnað fyrir sveitarfélagið. Ö-listi óskar því eftir upplýsingum um ástæður þess að varamaður var boðaður til fundarins og hvort greitt hafi verið sérstaklega fyrir setu hans. Mikilvægt er að nefndarstörf séu skipulögð með ábyrgri meðferð opinberra fjármuna að leiðarljósi.
Þá vekur Ö-listi athygli á því að á 621. fundi sveitarstjórnar, 2. september 2026, var tekin fyrir fundargerð nr. 47 frá Fjallskilanefnd, en sá fundur nefndarinnar hafði verið haldinn 8. desember 2025. Óeðlilega langur tími virðist því hafa liðið frá fundi nefndarinnar þar til fundargerðin kom til umfjöllunar sveitarstjórnar.
Enn fremur liggja fundargerðir síðustu tveggja funda Fjallskilanefndar, samkvæmt þeim upplýsingum sem fyrir liggja, ekki aðgengilegar á vef sveitarfélagsins undir fundargerðum. Sama á við um fundargerð 36. fundar Framkvæmda- og veitunefndar frá 31. ágúst 2026.
Ö-listi leggur því til að sveitarstjórn feli sveitarstjóra að:
1. tryggja að fundargerðir nefnda séu skráðar með samræmdum og fullnægjandi hætti þannig að efni funda og niðurstöður séu skýrar,
2. tryggja að fundargerðir séu lagðar tímanlega fyrir sveitarstjórn þegar það á við og birtar án óþarfa tafa á vef sveitarfélagsins,
3. yfirfara verklag við boðun varamanna á nefndarfundi og tryggja að ekki falli til óþarfur kostnaður vegna fundarsetu þegar allir aðalmenn eru mættir,
4. upplýsa sveitarstjórn um ástæður þess að varamaður sat 48. fund Fjallskilanefndar samhliða öllum þremur aðalmönnum og hvort greiðsla hafi fallið til vegna setu hans.
Opin og gagnsæ stjórnsýsla felst ekki aðeins í því að fundir séu haldnir og fundargerðir skráðar. Upplýsingarnar þurfa að vera skýrar, aðgengilegar og birtar tímanlega. Jafnframt ber sveitarstjórn að sýna aðhald í rekstri og tryggja að opinberum fjármunum sé varið af ábyrgð.
Gagnsæi, fagleg vinnubrögð og ábyrg meðferð fjármuna eiga að vera sjálfsagður hluti af stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Bókun A-listans:
A-listinn leggur áherslu á að nefndir bóki skýrt og skilmerkilega um þau mál sem þær fjalla um. Almennt er miðað við að bókanir á fundum nefnda séu í samræmi við samþykkt um stjórn og fundarsköp Grímsnes- og Grafningshrepps. Lögð verður áhersla á það í erindisbréfum nefndanna.
Verklag á síðasta fundi fjallskilanefndar fyrir fjallskil hefur verið þannig að fjallkóngar hafa verið boðaðir en í þessu tilfelli var varamaður einnig fjallkóngur eins og aðrir nefndarmenn. Þetta er gert til að tryggja öruggt og gott skipulag og góða upplýsingagjöf. Heimilt er að boða aðra á fundi nefndarinnar þegar málefni gefa tilefni til eins og stendur í 1. gr erindisbréfs Fjallskilanefndar sem lagt var fram á 620. fundi sveitarstjórnar þann 19. ágúst 2026. Séu varamenn kallaðir til fundar fá þeir greitt samkvæmt reglum um launakjör og starfsaðstæður kjörinn fulltrúa og nefndarmanna hjá Grímsnes- og Grafningshreppi.
A-listinn tekur heils hugar undir það að varamenn séu ekki boðaðir að óþörfu, bæði hjá nefndum og sveitarstjórn. Slíkt verður áréttað við alla hlutaðeigendur.
A-listinn tekur undir mikilvægi þess að birta fundargerðir tímanlega.
Vinna við endurskoðun á heimasíðu Grímsnes- og Grafningshepps er nú þegar hafin en þar gefst tækifæri til að skoða skipulag og verklag skrifstofunnar varðandi birtingar á fundargerðum.
b) Fundargerð 333. fundar skipulagsnefndar UTU, 23. september 2026
Mál nr. 11, 12, 13, 14, 15, 16 og 21 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar
Lögð er fram 333. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 23. september 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 11; Ljósafossskóli L168468; Fjölgun gistirýma; Deiliskipulag – 2403049
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til viðskipta- og þjónustulóðar Ljósafossskóla L168468. Í deiliskipulaginu felst heimild til frekari uppbyggingar gististarfsemi á svæðinu, þar á meðal fjölgun gistirýma og uppbygging nýrra gistieininga innan afmarkaðs byggingarreits.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða deiliskipulagstillöguna til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt verður tillagan grenndarkynnt fyrir aðliggjandi lóðareigendum.
Mál nr. 12; Vaðholt 2 L219744; Úr frístundabyggð í landbúnaðarsvæði; Aðalskipulagsbreyting - 2609027
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að um 5,3 ha lands í landi Ormsstaða breytist úr frístundabyggð í landbúnaðarsvæði.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar UTU og samþykkir tillögu aðalskipulagsbreytingar til kynningar í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 13; Syðri-Brú L168277; Úr frístundasvæði í verslun og þjónustu; Aðalskipulagsbreyting - 2603066
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Breytingin felst í afmörkun þriggja svæða fyrir verslun og þjónustu; tveggja svæða í landi Syðri-Brúar og eins í landi Hæðarenda. Allir reitirnir eru í nágrenni frístundabyggða, en landeigendur hafa í huga að byggja þar þyrpingar gistiskála til útleigu. Umsagnir og athugasemdir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar UTU og samþykkir framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að undangenginni samþykkt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
Bókun Ö-listans:
Bókun og tillaga vegna máls nr. 2603066 – Syðri-Brú L168277; úr frístundasvæði í verslun og þjónustu
Í ljósi þess að fyrirhuguð uppbygging gistiskála í landi Syðri-Brúar og Hæðarenda er í nágrenni frístundabyggða tel ég nauðsynlegt að tryggja beint og upplýst samráð við þá sem þar eiga hagsmuna að gæta. Breytt landnotkun og aukin starfsemi geta haft áhrif á umferð, hljóðvist, ásýnd og aðstæður eigenda og notenda nærliggjandi fasteigna.
Ég legg því til að sveitarstjórn samþykki eftirfarandi verklag, sem gildi bæði um þetta mál og um allar síðari breytingar á aðalskipulagi og deiliskipulagi sveitarfélagsins, hvort sem þær teljast verulegar eða óverulegar:
Allar tillögur að skipulagsbreytingum skulu kynntar beint og skriflega eigendum og öðrum hagsmunaaðilum nærliggjandi fasteigna sem breytingarnar geta varðað. Óverulegar breytingar á deiliskipulagi skulu fara í formlega grenndarkynningu. Við breytingar á aðalskipulagi og verulegar breytingar á deiliskipulagi skal sambærileg bein kynning fara fram samhliða lögbundnu kynningar- og auglýsingaferli.
Kynningin skal skýra fyrirhugaðar breytingar, veita aðgang að öllum viðeigandi gögnum og tilgreina hvernig skila megi athugasemdum. Athugasemdafrestur skal vera að lágmarki fjórar vikur og aldrei styttri en lögbundinn frestur viðkomandi skipulagsferlis.
Ekki skal falla frá kynningu til nágranna á þeirri forsendu einni að breyting teljist óveruleg. Afmörkun kynningarsvæðis og val þeirra sem fá beina kynningu skulu rökstudd og skráð í gögn málsins.
Áður en breyting er samþykkt endanlega skal liggja fyrir yfirlit yfir framkomnar athugasemdir og rökstudd afstaða til þeirra. Þeim sem gera athugasemdir skal tilkynnt niðurstaða málsins.
Sveitarstjórn feli skipulagsfulltrúa að innleiða þetta verklag og tryggja framkvæmd þess við áframhaldandi meðferð máls nr. 2603066.
Markmiðið er að nágrannar fái raunhæft tækifæri til að hafa áhrif á skipulagsákvarðanir áður en þær eru teknar og að gagnsæi og jafnræði séu tryggð við meðferð skipulagsmála.
Afgreiðsla: tillagan er felld með fjórum atkvæðum A-listans gegn einu atkvæði Ö-listans.
Bókun A- listans:
A-listinn tekur undir mikilvægi þess að tryggja vandað og upplýst samráð við íbúa, landeigendur og aðra hagsmunaaðila við gerð og breytingar á skipulagi.
A-listinn telur hins vegar ekki rétt að samþykkja framlagða tillögu sem almennt og bindandi verklag um meðferð allra breytinga á aðal- og deiliskipulagi sveitarfélagsins.
A-listinn samþykkir þess í stað að vísa þeim sjónarmiðum sem fram koma í tillögunni til yfirstandandi vinnu við endurskoðun aðalskipulags Grímsnes- og Grafningshrepps, þar sem fjallað verði sérstaklega um samráð, upplýsingagjöf og aðkomu íbúa og annarra hagsmunaaðila að skipulagsvinnu sveitarfélagsins.
Mikilvægt er að stjórnsýsla sveitarfélagsins sé skýr og vönduð og ekki óþarflega íþyngjandi. A-listinn telur einnig mikilvægt að hægt sé að efla atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu í sátt við íbúa og fasteignaeigendur.
Mál nr. 14; Björk 1 L211337; Björk 3; Stofnun lóðar - 2609014
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 02.09.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóðina Björk 3, 38,4 ha. úr Björk 1 L211337.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar UTU án athugasemda.
Mál nr. 15; Vaðnesvegur 8J (L169734); byggingarheimild; aðstöðuhús - 2609017
Móttekin var umsókn þann 04.09.2026 um byggingarheimild að byggja 70 m2 aðstöðuhús á sumarbústaðalandinu Vaðnesvegur 8J (L169734) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar UTU og fer fram á að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið sem sýni framtíðaruppbyggingu á svæðinu áður en erindið verði samþykkt.
Mál nr. 16; Tóftabraut 6 L196616; Tóftabraut 3 L196614; Deiliskipulagsbreyting - 2603058
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi sem tekur til lóðanna Tóftabrautar 6 (L196616) og Tóftabrautar 3 (L196614). Tillagan var birt í B-deild Stjórnartíðinda fyrir mistök áður en hún hafði verið tekin til formlegrar afgreiðslu hjá sveitarstjórn. Málið er því lagt fram að nýju til efnislegrar umfjöllunar og afgreiðslu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Breytingin felur í sér breytingu á lóðarmörkum lóðanna. Tóftabraut 6 L196616 stækkar úr 7.606 m² í 8.102,5 m² en Tóftabraut 3 L196614 minnkar úr 7.911 m² í 7.414,5 m². Kvöð verður áfram á Tóftabraut 3 um aðkomu að Tóftabraut 6.
Jafnframt er lagt til að breyta skilmálum deiliskipulagsins þannig að eftirfarandi ákvæði falli brott: „Á hverri lóð er heimilt að reisa frístundahús með hámarksnýtingarhlutfall upp á 0,03. Hámarksstærð aukahúss má vera 40 m².“
Í staðinn komi: „Heimilt er að byggja frístundahús og aukahús ásamt geymslu. Hámarksnýtingarhlutfall er 0,03.“
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar UTU um að fyrri auglýsing nr. 649-2026 um deiliskipulag í Grímsnes- og Grafningshreppi, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda 9. júní 2026, verði afturkölluð og að tillagan verði grenndarkynnt á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 21; Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 16.september 2026 - 26-263 - 2609003F
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa, dagsett 16. september 2026, nr. 26-263
c) Fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa.
Lagðar eru fram til kynningar fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa, dagsett 23. september 2026, nr. 26-264, og dagsett 30. september 2026, nr. 26-265
d) Fundargerð 257. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands, 18. september 2026
Fundargerðin lögð fram til kynningar
e) Fundargerð 221. fundar stjórnar Tónlistaskóla Árnesinga, 28. september 2026
Fundargerðin lögð fram til kynningar ásamt kostnaðarskiptingu sveitarfélaga 2027
f) Fundargerð 2. fundar stjórnar Byggðasafns Árnesinga bs., 22. september 2026
Fundargerðin lögð fram til kynningar
g) Fundargerð 7. fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu, 17. september 2026
Fundargerðin lögð fram til kynningar
h) Fundargerð 8. fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu, 25. september 2026
Fundargerðin lögð fram til kynningar
i) Fundargerð Almannavarnanefndar Árnessýslu, 18. september 2026
Fundargerðin lögð fram til kynningar
j) Fundargerð 95. fundar stjórnar Bergrisans bs., 14. september 2026
Fundargerðin lögð fram til kynningar
Bókun Ö-listans:
Fulltrúi Betri sveitar minnir stjórn Bergrisans bs. á mikilvægi gagnsæis í störfum og skýrrar upplýsingagjafar til aðildarsveitarfélaga, þjónustunotenda og almennings. Í fundargerðum þarf að gera grein fyrir forsendum ákvarðana, áætluðum kostnaði og áhrifum á þjónustu, þannig að unnt sé að leggja upplýst mat á þær. Jafnframt er óskað eftir skýrari upplýsingum um umfang, framvindu og eftirfylgni úttektar á Sólheimum, að teknu tilliti til persónuverndar.
Sérstaklega er minnt á mikilvægi þess að hafa virkt og aðgengilegt samráð við þjónustunotendur og, eftir því sem við á, aðstandendur eða talsmenn þeirra áður en ákvarðanir eru teknar um breytingar á þjónustufyrirkomulagi. Þetta á meðal annars við um fyrirhugaða breytingu á VISS Hvolsvelli. Skýra þarf hvort breytingin hafi áhrif á viðverutíma, aðgengi eða gæði þjónustu og hvernig sjónarmið notenda hafi verið tekin til greina.
Hvatt er til þess að stjórn Bergrisans tryggi að upplýsingar og samráð séu fastur hluti undirbúnings og eftirfylgni ákvarðana. Þjónustan á að byggjast á þörfum og réttindum þeirra sem nýta hana og rödd þeirra þarf að hafa raunverulegt vægi.
k) Fundargerð 4. fundar Farsældarráðs Suðurlands, 27. ágúst 2026
Fundargerðin lögð fram til kynningar
l) Fundargerð 638. fundar stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, 4. september 2026
Fundargerðin lögð fram til kynningar
m) Fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 11. september 2026
Fundargerðin lögð fram til kynningar
n) Fundargerð 97. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga, 7. september 2026
Fundargerðin lögð fram til kynningar
o) Vinnufundur Skólanefndar Grímsnes- og Grafningshrepps, 29. september 2026
Mál nr. 1 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar
Mál nr. 1; Trúnaðarmál
Guðmundur Finnbogason og Rebekka Lind Guðmundsdóttir víkja af fundi. Pétur Thomsen, varamaður, tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Skólanefndar Grímsnes- og Grafningshrepps.
Guðmundur Finnbogason og Rebekka Lind Guðmundsdóttir taka aftur sæti á fundinum.
2. Húseiningar fyrir frístund
Lögð er fram tillaga um tímabundna staðsetningu færanlegra húseininga fyrir Frístund á lóðinni Borgarhóli L168437, við hlið bílastæðis íþróttamiðstöðvarinnar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að færanlegum húseiningum, sem samþykkt var að kaupa á 621. fundi sveitarstjórnar 2. september sl., verði komið fyrir tímabundið, til allt að tveggja ára, á lóðinni Borgarhóli L168437, við hlið bílastæðis íþróttamiðstöðvarinnar, í samræmi við fyrirliggjandi afstöðumynd. Einingarnar eru samtals 74,1 m² að stærð og munu hýsa Frístund á meðan framkvæmdir við núverandi skólahúsnæði standa yfir. Deildarstjóra framkvæmda, mannvirkja og umhverfis er falið að sækja um byggingarleyfi.
3. Erindi frá VR, LÍV og Fagfélögunum vegna gjaldskrár sveitarfélaga
Lagt fram erindi frá VR, Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna og Fagfélögunum, dagsett 14. september 2026, þar sem óskað er eftir upplýsingum um aðgerðir Grímsnes- og Grafningshrepps til að styðja við markmið kjarasamninga um verðstöðugleika, meðal annars hvað varðar gjaldskrár sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps tekur undir mikilvægi þess að sveitarfélög, ríki og atvinnulíf leggi sameiginlega sitt af mörkum til að stuðla að auknum efnahagslegum stöðugleika. Við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027 verður miðað við að hækkun almennra gjaldskráa verði að hámarki 2,5%. Jafnframt er gengið út frá því að ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess taki þátt í hinu sameiginlega átaki með sambærilegum hætti og takmarki hækkanir gjaldskráa og álaga sem hafa bein áhrif á heimilin. Sveitarstjórn mun jafnframt gæta sérstaklega að áhrifum gjaldskrárbreytinga á barnafjölskyldur og viðkvæma hópa.
4. Áskorun frá Starfsgreinasambandi Íslands um þjóðarsátt um verðstöðugleika
Lögð fram áskorun frá Starfsgreinasambandi Íslands og 18 aðildarfélögum þess, dags. 16. september 2026, um þjóðarsátt um verðstöðugleika.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps tekur undir mikilvægi þess að sveitarfélög, ríki, atvinnulíf og aðrir aðilar samfélagsins leggi sameiginlega sitt af mörkum til að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta. Í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga mun sveitarfélagið við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 miða við að almennar gjaldskrár hækki ekki um meira en 2,5%. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að svara erindinu í samræmi við framangreint.
5. Áskorun Bárunnar stéttarfélags um þjóðarsátt um verðstöðugleika
Lögð fram áskorun Bárunnar stéttarfélags þar sem skorað er á sveitarfélög á félagssvæði félagsins að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika og skuldbinda sig til þess að gjaldskrár sveitarfélagsins og fyrirtækja í eigu þess hækki ekki um meira en 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps tekur undir mikilvægi þess að sveitarfélög, ríki, atvinnulíf og aðrir aðilar samfélagsins leggi sameiginlega sitt af mörkum til að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta. Í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga mun sveitarfélagið við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 miða við að almennar gjaldskrár hækki ekki um meira en 2,5%. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að svara erindinu í samræmi við framangreint.
6. Tillaga að breytingu á rekstrarleyfi FE-1186 – Fjallalax ehf., Hallkelshólar
Lagt fram erindi frá Matvælastofnun þar sem auglýst er tillaga að breytingu á rekstrarleyfi FE-1186 fyrir Fjallalax ehf. að Hallkelshólum í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða breytingu á rekstrarleyfinu.
7. Stjórnsýslukæra nr. UUA2609022
Fyrir liggur stjórnsýslukæra nr. UUA2609022.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela lögmanni sveitarfélagsins, Óskari Sigurðssyni hrl., að svara kærunni og gæta hagsmuna sveitarfélagsins í málinu.
8. Reglur um notkun Gömlu Borgar sem samfélagshúss
Lagðar eru fram reglur um notkun Gömlu Borgar sem samfélagshúss.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagðar reglur. Reglurnar taka þegar gildi.
9. Endurhæfum Reykjalund – ósk um fjárhagslegan stuðning
Lagt fram erindi frá Hollvinum Reykjalundar þar sem óskað er eftir fjárhagslegum stuðningi Grímsnes- og Grafningshrepps við uppbyggingu húsakosts Reykjalundar.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps þakkar fyrir erindið og það mikilvæga starf sem unnið er á Reykjalundi. Sveitarstjórn getur því miður ekki orðið við beiðni um fjárhagslegan stuðning að þessu sinni.
10. Kiðjaberg L168257 – beiðni um endurskoðun
Lagt er fram erindi frá Kiðjabergi ehf. þar sem óskað er eftir endurskoðun á ákvörðun sveitarstjórnar frá 10. júlí 2026 um synjun á breytingu deiliskipulags vegna starfsmannahúsa í Kiðjabergi. Í erindinu kemur fram að skráning smáhýsanna sem útleiguhúsa hafi verið mistök við hönnun og að tilgangur þeirra sé að hýsa tímabundið sérhæft starfsfólk vegna starfsemi golfvallarins.
Sveitarstjórn samþykkir að breyta fyrri afgreiðslu sinni frá 619. fundi sveitarstjórnar þann 10. júlí 2026 og samþykkir fyrir sitt leyti fyrirhugaða breytingu vegna starfsmannahúsa í Kiðjabergi L168257.
11. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, B stærra gistiheimili að Ljósafossskóla, 805 Selfossi, fnr. 2207340
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 25. september 2026, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar Gospel Channel Evrópa ehf. um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, B stærra gistiheimili að Ljósafossskóla, 805 Selfossi, fnr. 2207340.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II, B stærra gistiheimili að Ljósafossskóla, 805 Selfossi, fnr. 2207340. Sveitarstjórn vekur jafnframt athygli á að leyfið nær aðeins til gistiheimilis í matshluta 02, ekki annarra mannvirkja.
12. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Sogsbakka 3, 805 Selfossi, fnr. F2300512
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 29. september 2026, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Sogsbakka 3, 805 Selfossi, fnr. F2300512.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að leggjast gegn útgáfu rekstrarleyfis á grundvelli laga nr. 85/2007 í flokki II, H frístundahús að Sogsbakka 3, fnr. F2300512, þar sem leyfisveiting samræmist ekki stefnu gildandi skipulags.
13. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, C minna gistiheimili að Giljabakka, 805 Selfossi, fnr. F2237748
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 23. september 2026, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, C minna gistiheimili að Giljabakka, 805 Selfossi, fnr. F2237748.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II, C minna gistiheimili að Giljabakka, 805 Selfossi, fnr. F2237748.
14. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sendir til umsagnar 2. mál á 158. löggjafarþingi, „Breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027“, þar á meðal breytingu á virðisaukaskatti vegna aðgangseyris að baðlónum og sambærilegri starfsemi
Lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027, þar sem meðal annars er gert ráð fyrir hækkun virðisaukaskatts á aðgang að baðlónum og sambærilegri starfsemi.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps lýsir yfir verulegum áhyggjum af fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á aðgang að baðlónum úr 11% í 24%. Slík starfsemi er mikilvægur þáttur í heilsársferðaþjónustu og atvinnuuppbyggingu á Suðurlandi og fyrirhuguð breyting getur haft veruleg áhrif á rekstrarumhverfi fyrirtækja, fjárfestingar og störf á svæðinu.
Sveitarstjórn tekur undir bókun stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og leggst gegn fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á aðgang að baðlónum og sambærilegri starfsemi.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að senda umsögn í samræmi við framangreint.
15. Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. S-180/2026, „Drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald“
Lögð fram til samráðs drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald, mál nr. S-180/2026.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps mótmælir harðlega að svo viðamikil gjaldtaka sé lögð til án aðkomu sveitarfélaganna að undirbúningi og útfærslu málsins. Sveitarstjórn telur óásættanlegt að ríkisvaldið skipuleggi einhliða innheimtu á svæðum innan sveitarfélaga án þess að þau hafi raunverulega aðkomu að ákvörðunum um fyrirkomulag og útfærslu.
Sveitarstjórn gerir eftirfarandi athugasemdir við fyrirhugaða útfærslu:
1. Einhliða ákvörðunartaka ríkisins. Sveitarfélögin hafa samkvæmt fyrirliggjandi drögum ekki aðkomu að ákvörðunum um hvar gjald er innheimt eða hvernig tekjum af því verði ráðstafað. Sveitarstjórn telur slíkt ekki samræmast þeirri stöðu og ábyrgð sem sveitarfélög hafa á sínu svæði né þeirri staðbundnu þekkingu sem þau búa yfir.
2. Ráðstöfun tekna. Samkvæmt drögunum er gert ráð fyrir að tekjur af gjaldtökunni renni til ríkisins. Sveitarstjórn telur óviðunandi að tekjur sem verða til vegna gjaldtöku á einstökum svæðum skili sér ekki með beinum hætti til viðkomandi svæða, enda bera sveitarfélög og nærsamfélög kostnað og álag vegna meðal annars innviða, sorphirðu, skipulagsmála, staðbundinnar þjónustu og aukinnar umferðar.
3. Tilfærsla ferðamanna og skortur á heildstæðri nálgun. Sveitarstjórn telur að sértæk gjaldtaka á fáum ferðamannastöðum geti haft í för með sér tilfærslu ferðamanna yfir á aðra ferðamannastaði sem kunna að vera viðkvæmir eða ekki undirbúnir fyrir aukið álag. Að mati sveitarstjórnar væri réttara að nálgast gjaldtöku vegna ferðamennsku með heildstæðum hætti og skoða einfaldari og almennari leiðir, svo sem gjaldtöku við komu til landsins.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að frumvarpsdrögin verði tekin til endurskoðunar og að stjórnvöld eigi raunverulegt samráð við sveitarfélögin um heildstæða og einfalda útfærslu gjaldtöku vegna ferðaþjónustu. Slíkt fyrirkomulag þurfi að tryggja beina aðkomu sveitarfélaga og sanngjarna ráðstöfun fjármuna til þeirra svæða sem bera álag vegna ferðaþjónustu.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að senda umsögn fyrir hönd Grímsnes- og Grafningshrepps í Samráðsgátt stjórnvalda í samræmi við framangreint.
16. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis – 5. mál á 158. löggjafarþingi, Sveitarstjórnarlög
Lögð fram umsagnarbeiðni frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis vegna 5. máls á 158. löggjafarþingi, frumvarps til sveitarstjórnarlaga.
Grímsnes- og Grafningshreppur hefur, ásamt fleiri fámennari sveitarfélögum, óskað eftir lengri fresti til að skila umsögn, en unnið er að gerð sameiginlegrar umsagnar um frumvarpið.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að við endurskoðun sveitarstjórnarlaga verði sjálfstjórn sveitarfélaga virt og tekið verði ríkt tillit til ólíkrar stærðar, aðstæðna og stjórnsýslugetu sveitarfélaga. Sérstaklega verði þess gætt að ný lög leiði ekki til óþarfa aukningar á reglubyrði fámennra sveitarfélaga eða geri samstarf sveitarfélaga um lögbundin verkefni flóknara og kostnaðarsamara. Sveitarstjórn telur jafnframt mikilvægt að sveitarfélög hafi áfram nægilegt svigrúm til að ákveða fyrirkomulag samstarfsverkefna og kostnaðarskiptingu þeirra á grundvelli hlutlægra viðmiða sem aðildarsveitarfélög koma sér saman um. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að vinna málið áfram fyrir hönd Grímsnes- og Grafningshrepps í samstarfi við önnur fámenn sveitarfélög og skila umsögn innan framlengds umsagnarfrests.
17. Aðalfundur Bergrisans bs. 2026
Lagt fram fundarboð vegna aðalfundar Bergrisans bs. sem haldinn var þriðjudaginn 6. október 2026, ásamt ársreikningi félagsins fyrir árið 2025 og öðrum fundargögnum.
Bókun Ö-listans;
Fulltrúi Ö-listans telur jákvæða fjárhagsstöðu Bergrisans bs. mikilvægan grunn að öflugri þjónustu við fatlað fólk. Jafnframt þarf að tryggja að fjárhagslegur styrkur skili sér í bættri þjónustu, styttri biðlistum og auknum lífsgæðum notenda.
Rekstrargjöld ársins 2025 jukust um tæpar 903 milljónir króna frá fyrra ári og voru um 622 milljónir króna umfram áætlun. Óskað er eftir greinargerð um helstu ástæður þessara frávika, sérstaklega vegna notendasamninga og stoðþjónustu, og hvernig tekið verði mið af þróuninni í fjárhagsáætlunum næstu ára.
Þá er óskað eftir skýrri áætlun um nýtingu uppsafnaðs rekstrarafgangs, þar sem fram komi hvaða fjármunir þurfi að standa undir skuldbindingum og rekstraröryggi og hvaða svigrúm sé til að mæta óuppfylltum þjónustuþörfum. Jafnframt verði skýrðar forsendur þess að óútdeildur rekstrarafgangur fyrri ára var færður af viðskiptaskuldum á eigið fé og áhrif þeirrar ákvörðunar á uppgjör við aðildarsveitarfélög.
Fulltrúi Ö-listans leggur áherslu á að með fjárhagsupplýsingum fylgi regluleg upplýsingagjöf um þjónustuárangur, þar á meðal þróun biðlista, þjónustuþarfir, gæði og upplifun notenda. Tryggja þarf virkt og aðgengilegt samráð við þjónustunotendur um forgangsröðun og breytingar á þjónustu og gera grein fyrir því hvernig sjónarmið þeirra hafa áhrif á ákvarðanir.
Óskað er eftir að framangreindar upplýsingar verði lagðar fyrir sveitarstjórn, ásamt greinargerð um fjárhagsleg samskipti Bergrisans og Grímsnes- og Grafningshrepps og áætlaðar skuldbindingar sveitarfélagsins næstu ára.
18. Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Lagt fram bréf frá Innviðaráðuneytinu, dagsett 17. september 2026, vegna ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudaginn 7. október 2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, sveitarstjóri, verði fulltrúi sveitarfélagsins á fundinum.
19. Bréf frá Innviðaráðuneytinu vegna minningardags um fórnarlömb umferðarslysa
Lagt fram til kynningar bréf frá Innviðaráðuneytinu, dagsett 15. september 2026, vegna alþjóðlegs minningardags Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa sem haldinn verður sunnudaginn 15. nóvember 2026.
20. Yfirlit vegna fjárlagafrumvarps 2027
Lagt fram til kynningar yfirlit Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna fjárlagafrumvarps ríkisins fyrir árið 2027 og helstu áhrifa þess á sveitarfélög.
21. Stofnfundur Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga
Lagt fram fundarboð vegna stofnfundar Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudaginn 7. október 2026 kl. 15:00 á Hilton Reykjavík.
22. Önnur mál.
a) Ársreikningur og ársskýrsla Leikfélagsins Borg 2025 til 2026
Lögð fram til kynningar ársskýrsla og ársreikningur Leikfélagsins Borg 2025 til 2026
b) Tilnefning í framkvæmdateymi Öruggara Suðurland
Fyrir liggur erindi frá Öruggara Suðurlandi þar sem óskað er eftir að sveitarstjórn tilnefni fulltrúa í framkvæmdateymi Öruggara Suðurland.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að tilnefna Annýju Ingimarsdóttur, deildarstjóra velferðarþjónustu, til áframhaldandi setu í framkvæmdateymi Öruggara Suðurlands.

 

Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið klukkan: 11:46

Skjöl

Getum við bætt efni þessarar síðu?