Fara í efni
  • Hvatarblaðið Mars 2024

    Hvatarblaðið fyrir mars er komið út.

    Lesa meira

Viðburðir

Í Grímsnes- og Grafningshreppi

Allir viðburðir

Hafðu samband

 

Hringdu í 480 5500

ef þig vantar aðstoð, svör eða nánari upplýsingar. Opnunartími Þjónustuversins er mánudaga - fimmtudaga frá 9 - 15 en frá 9 - 12 á föstudögum.

Hringdu

 

Sendu okkur póst

Við tökum á móti ábendingum og fyrirspurnum í gegnum tölvupóst. Smelltu á merkið hér að ofan til að senda okkur póst.

Sendu póst

Vissir þú?

Fyrstu garðyrkjustöðvarnar í sveitarfélaginu voru stofnaðar annars vegar í Reykjalundi 1938 (lokað 1961) og hins vegar Hraunprýði á Nesjavöllum árið 1939 (lokað 1962). Í dag eru starfræktar þrjár stöðvar í sveitarfélaginu; Sólheimum, Ártanga og Hæðarenda.

Fjórar virkjanir eru í sveitarfélaginu: Ljósafossstöð hóf rekstur 1937, Írafossstöð hóf rekstur 1953, Steingrímsstöð hóf rekstur 1959 og Nesjavallavirkjun hóf rekstur 1990.

Vissir þú að Grímsnes- og Grafningshreppur varð til 1. júní 1998 við sameiningu Grímneshrepps og Grafningshrepps?

Á Hæðarenda er framleidd öll kolsýra fyrir Ísland.

Nesjavallavirkjun sem staðsett er norðan við Hengilinn framleiðir heitt vatn og rafmagn. Hún getur framleitt allt að 300 MW í varmaorku sem eru um 1.640 l/sek af heitu vatni og allt að 120 MW af rafmagni. (www.on.is)

Ljósafossstöð er elsta aflstöðin í Soginu, en rekstur hennar hófst árið 1937. Þá voru settar upp tvær vélasamstæður, samtals með 8,8 MW afli. Þriðja vélin bættist við árið 1944 og er hún 6,5 MW. Við gangsetningu stöðvarinnar var framboð rafmagns á höfuðborgarsvæðinu fjórfaldað. (https://www.landsvirkjun.is/)

5 kirkjur eru í sveitarfélaginu: Búrfellskirkja byggð 1845, Mosfellskirkja byggð 1848, Úlfljótsvatnskirkja byggð 1914, Stóru-Borgar kirkja byggð 1932 og Sólheimakirkja byggð 2005.

Flatarmál Grímsnes- og Grafningshrepps er 890 km2.

Sogið er 19 kílómetra löng lindá sem fellur úr Þingvallavatni. Það er vatnsmesta lindá landsins með meðalrennsli upp á 110 m³/s. Mikil lax- og silungagengd er í ánni. Fyrsta Sogsbrúin var vígð 9. september 1905.

Það er gefið út blað í sveitarfélaginu sem heitir Hvatarblaðið. Blaðið kemur út mánaðarlega og liggur frammi í Íþróttamiðstöðinni Borg og skrifstofu sveitarfélagsins. Einnig er hægt að skoða það á heimasíðu sveitarfélagsins.
Það er frítt að auglýsa í Hvatarblaðinu og skila þarf inn efni fyrir 28. hvers mánaðar á linda@gogg.is