20.10.2022
Fréttir
17.10.2022
Íþróttahús á Borg
Að undangengnu útboði hefur verið samið við EFLU um deilihönnun á viðbyggingu á íþróttamiðstöð á Borg í Grímsnesi. Ekkert tilboð barst í verkið í alútboði og var því tekin ákvörðun um að skipta upp verkinu. Hönnunarstjórn verður í höndum Arkís og aðstoð á verktíma í höndum Verkís.
14.10.2022
Nýtt íbúðahverfi á Borg
Að undangenginn verðfyrirspurn hefur verið samið við Verkís um gerð nýs deiliskipulags sem tekur til 15 hektara svæðis vestan við Skólabraut. Öllum lóðum á Borg hefur verið úthlutað og er stefnt á að nýjar lóðir verði úthlutunarhæfar haustið 2023.
13.10.2022
Mötuneytið lokað 14.10
12.10.2022
Nýtt deiliskipulag – Miðsvæði
Sveitarstjórn hefur samþykkt að senda til skipulagsnefndar nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði vestan við Skólabraut. Svæðið hefur fengið heitið Miðtún.
11.10.2022
Búrfellsveita - Raf- og Vatnsveita
Rafmagnslaust verður í lækjabakka þriðjudaginn 11.10.2022 frá kl 10:00 til kl 12:00 vegna vinnu á háspennukerfi.
Vegna þessa verður vatnslaust eða lítill þrýstingur í landi Ásgarðs, Búrfells og byggðum meðfram Búrfellsvegi meðan dælur eru ekki virkar.
11.10.2022
Viðhald á Borgarveitu
Verið er að vinna í dæluhúsi í Hraunborgum í dag 11.10 og má búast við minni þrýsting í Borgarveitu á meðan. Reiknað er með að vinnan klárist fyrir kl. 16.
Beðist er velvirðingar á óþægindum.
10.10.2022
Nýtt deiliskipulag – Borgarteigur
Sveitarstjórn hefur samþykkt að senda til skipulagsnefndar nýtt deiliskipulag fyrir íbúðar- og landbúnaðarlóðir á hluta af golfvelli í landi Minni-Borg. Mikil eftirspurn er eftir lóðum í sveitarfélaginu og öllum skipulögðum lóðum hefur verið úthlutað.