Fara í efni

Sveitarstjórn

610. fundur 18. febrúar 2026 kl. 09:00 - 10:13 Stjórnsýsluhúsinu Borg og á Teams
Sveitarstjórn
  • Ása Valdís Árnadóttir oddviti
  • Björn Kristinn Pálmarsson
  • Dagný Davíðsdóttir
  • Ragnheiður Eggertsdóttir
  • Smári Bergmann Kolbeinsson
  • Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Fjóla Steindóra Kristinsdóttir.

Ása Valdís Árnadóttir oddviti setti fund, bauð fundargesti velkomna og leitaði athugasemda við fundarboð, engar athugasemdir voru við boðun fundarins.
1. Fundargerðir.
a) Fundargerð 6. fundar nefndar um skólahúsnæði Kerhólsskóla 20. nóvember 2025.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
b) Fundargerð 7. fundar nefndar um skólahúsnæði Kerhólsskóla 11. desember 2025.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
c) Fundargerð 8. verkfundar nefndar um byggingu slökkvistöðvar á Borg, 9. desember 2025.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
d) Fundargerð 9. verkfundar nefndar um byggingu slökkvistöðvar á Borg, 6. janúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
e) Fundargerð 10. verkfundar nefndar um byggingu slökkvistöðvar á Borg, 20. janúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
f) Fundargerð 11. verkfundar nefndar um byggingu slökkvistöðvar á Borg, 3. febrúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
g) Fundargerð 31. fundar framkvæmda- og veitunefndar, 12. febrúar 2026.
Mál nr. 3 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 31. fundargerð framkvæmda- og veitunefndar, dagsett 12. febrúar 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 3; Vegtenging við lóðina Þinggerði 1
Fyrir liggja drög að minnisblaði varðandi beiðni um undanþágu frá veghönnunarreglum vegna fyrirhugaðrar vegtengingar við lóðina Þinggerði 1.
Framkvæmda- og veitunefnd leggur til að minnisblaðið verði sent Vegagerðinni. Jafnframt leggur framkvæmda- og veitunefnd til að óskað verði eftir að hámarkshraði á Sólheimavegi verði lækkaður í 50 km/klst á þessu svæði í samræmi við ósk um lækkun á hámarkshraða í gegnum þéttbýlið á Borg.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að óska eftir því við Vegagerðina að hámarkshraði á Sólheimavegi verði lækkaður í 50 km/klst á þessum vegkafla.
h) Fundargerð 319. fundar skipulagsnefndar UTU, 11. febrúar 2026.
Mál nr. 9, 10, 11, 12, 13 og 15 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 319. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 11. febrúar 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 9; Þórsstígur 3 og 5 og Herjólfsstígur 9; Breytt lega lóðarmarka; Deiliskipulagsbreyting – 2405064.
Lögð er fram, eftir grenndarkynningu, tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til marka Þórsstígs 3 og 5 og Herjólfsstígar 9. Í breytingunni felst tilfærsla og leiðrétting á lóðarmörkum og byggingarreitum á viðkomandi lóðum. Athugasemd barst við grenndarkynningu og er hún lögð fram við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða deiliskipulagsbreytingu eftir grenndarkynningu og mælist sveitarstjórn til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gögnin verði send Skipulagsstofnun til varðveislu í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 10; Reykjalundur L168273; Skilgreining svæðis; Deiliskipulag – 2601048.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Reykjalundar L168273 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Á jörðinni er rekin garðyrkjustöð og stendur til að stækka starfsemina og auka framleiðslu. Samhliða verður rekin ferðaþjónusta með gistingu fyrir allt að 20 gesti. Einnig vilja eigendur búa á jörðinni og vera með húsnæði fyrir starfsfólk. Stærð skipulagssvæðis er 8 ha.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða deiliskipulagsbreytinguna til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 11; Hraunbyggð 9 L212392; Aukin byggingarheimild og breyttir skilmálar; Deiliskipulagsbreyting – 2506108.
Lögð er fram umsókn um heimild til að reisa 39,9 fm bílageymslu á lóðinni Hraunbyggð 9 L212392. Í núgildandi deiliskipulagi frístundabyggðar Kerhrauns, svæði E, í landi Klausturhóla er heimilt að reisa allt að 25 fm geymslu- eða gestahús. Á aðalfundi Félags sumarhúsaeigenda Kerhrauns E, höldnum 23. maí 2022, fékk stjórn félagsins heimild til að uppfæra deiliskipulagið.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að synja tillögu um breytingu á deiliskipulagi í samræmi við bókun sem gerð var á 604. fundi sveitarstjórnar þann 26. nóvember 2025 undir lið 1. Á meðan óvissa ríkir telur sveitarstjórn sér ekki fært að taka ákvarðanir um frekari þróun frístundabyggða innan Grímsnes- og Grafningshrepps.
Mál nr. 12; Grænahlíð opið svæði L233882; Leiðréttar götur; Deiliskipulagsbreyting – 2602016.
Lögð er fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu sem tekur til 2. áfanga íbúðabyggðar í landi Efri-Brúar, L233882, í Grímsnes- og Grafningshreppi. Breytingin felur í sér leiðréttingu á legu gatna til samræmis við framkvæmdir á vettvangi og hefur ekki áhrif á skilmála gildandi deiliskipulags.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins og að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Mál nr. 13; Vesturhlíð L192153; Frístundabyggð F16; Deiliskipulag - 2410072.
Lögð er fram uppfærð tillaga deiliskipulags, í samræmi við uppfærða aðalskipulagsbreytingu, sem tekur til frístundasvæðis F16 innan aðalskipulags Grímsnes- og Grafningshrepps. Í deiliskipulaginu felst m.a. skilgreining lóða, byggingarreita og byggingarskilmála innan svæðisins sem tekur til um 97 ha svæðis undir heitinu Vesturhlíð. Á svæðinu er gert ráð fyrir lóðum ásamt opnum svæðum, vegum, göngustígum og skilgreindu svæði fyrir vatnsöflun.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að synja tillögu um breytingu á deiliskipulagi þar sem hún samræmist ekki gildandi aðalskipulagi.
Mál nr. 15; Afgreiðslur byggingarfulltrúa – 26-242 – 2601003F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-242.
i) Fundargerð 133. fundar stjórnar byggðasamlagsins UTU, 14. janúar 2026.
Mál nr. 2 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 133. fundargerð stjórnar byggðasamlagsins UTU, dagsett 14. janúar 2026. Eftirfarandi dagskrárliður þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 2; Merkjalýsingar og lóðarmál.
Lagt fram yfirliti yfir ferla fyrir afgreiðslur vegna lóðamála og merkjalýsingar. Hluti merkjalýsinga fara fyrir skipulagsnefnd og viðkomandi aðildarsveitarfélag, þær merkjalýsingar sem eru í samræmi við deiliskipulag fara beint í yfirferð og skráningu hjá UTU. Starfsmenn UTU undirrita merkjalýsingar.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps, kt. 590698-2109, Stjórnsýsluhúsinu Borg, 805 Borg, veitir hér með Sigríði Kristjánsdóttur, skipulagsfulltrúa, umboð til að undirrita, fullgilda og ljúka við alla nauðsynlega skjalagerð í tengslum við merkjalýsingar þar sem Grímsnes- og Grafningshreppur er landeigandi.
j) Fundargerð 12. fundar Oddvitanefndar, 11. febrúar 2026.
Mál nr. 1, 2, 3, 4 og 5 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 12. fundargerð Oddvitanefndar, dagsett 11. febrúar 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 1; Rekstrarform Laugaráshéraðs.
Oddvitanefndin leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaga Laugaráshéraðs að samþykkja að fela Dagnýju Sif Sigurbjörnsdóttur hdl., Lögmönnum Suðurlandi, að ganga frá tilkynningu til Skattsins/Fyrirtækjaskrár um slit og afskráningu Laugaráshéraðs að frágengnu samþykki, frágangi og eftir atvikum þinglýsingu skjala skv. fundarliðum 2-4 á fundinum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu oddvitanefndar þess efnis að fela Dagnýju Sif Sigurbjörnsdóttur hdl., Lögmönnum Suðurlandi, að ganga frá tilkynningu til Skattsins/Fyrirtækjaskrár um slit og afskráningu Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, að frágengnu samþykki, frágangi og eftir atvikum þinglýsingu skjala skv. fundarliðum 2-4 á fundinum sem verða nú teknir sérstaklega fyrir.
Mál nr. 2; Drög að nýjum samstarfssamningi um jörðina Laugarás.
Oddvitanefndin leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaga Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, að samþykkja fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi um jörðina Laugarás.
Sveitartjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi um jörðina Laugarás, Bláskógabyggð, L167138, og að sveitarstjóra verði falið að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins. Samningurinn nær til jarðarinnar sjálfrar og allra þeirra lóða sem hefur verið skipt út úr henni með öllu sem þeim fylgir og fylgja ber.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir jafnframt samhljóða að koma að viðræðum þeirra sveitarfélaga sem eiga jörðina Laugarás, Bláskógabyggð, L167138, um möguleg kaup Bláskógabyggðar á jörðinni með hliðsjón af fyrirliggjandi verðmati jarðarinnar. Sveitarstjóra er falið að fylgja viðræðunum eftir fyrir hönd sveitarfélagsins og leggja eftir atvikum mögulegar útfærslur kaupa Bláskógabyggðar á jörðinni fyrir fund sveitarstjórnar að viðræðum loknum.
Mál nr. 3; Drög að eignayfirlýsingu vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs.
Oddvitanefndin leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna að samþykkja fyrirliggjandi drög að eignayfirlýsingu vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs. Í yfirlýsingunni felst að við niðurlagningu Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, falli grunneignarréttur Laugaráshéraðs í öllum þeim fasteignum sem tilgreindar eru í fylgiskjali með eignayfirlýsingunni til eigenda Laugaráshéraðs í eftirtöldum eignarhlutföllum:
Hrunamannahreppur 30,0%
Skeiða- og Gnúpverjahreppur 24,9%
Grímsnes- og Grafningshreppur 11,9%
Bláskógabyggð 33,2%
Í eignayfirlýsingunni er tilgreint að framangreind sveitarfélög taki við öllum réttindum og skyldum Laugaráshéraðs í framangreindum hlutföllum og að öll veðbönd á eignunum haldi gildi sínu ásamt því að stór hluti hinna afsöluðu eigna séu leigulóðir og allir leigusamningar haldi gildi sínu.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að eignayfirlýsingu vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, og að sveitarstjóra verði falið að undirrita eignayfirlýsinguna fyrir hönd sveitarfélagsins.
Mál nr. 4; Drög að yfirlýsingu um ráðstöfun fjármuna og greiðslu kostnaðar vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs og hagmunagæslu vegna jarðarinnar Laugaráss.
Oddvitanefndin leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna að samþykkja fyrirliggjandi drög að yfirlýsingu um ráðstöfun fjármuna og greiðslu kostnaðar vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, og hagmunagæslu vegna jarðarinnar Laugaráss.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög að yfirlýsingu um ráðstöfun fjármuna og greiðslu kostnaðar vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, og hagmunagæslu vegna jarðarinnar Laugaráss, L167138, og að sveitarstjóra verði falið að undirrita eignayfirlýsinguna fyrir hönd sveitarfélagsins.
Mál nr. 5; Húsnæði heilsugæslunnar Laugarási – misskráningar í fasteignaskrá.
Oddvitanefndin leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna að samþykkja að fela Dagnýju Sif Sigurbjörnsdóttur hdl., Lögmönnum Suðurlandi, að fylgja eftir hagsmunagæslu aðildarsveitarfélaganna vegna eignarhluts þeirra í fasteigninni og eftir atvikum annarra misskráninga sem kunna að vera í fasteignaskrá og þinglýsingum vegna jarðarinnar Laugarás og útskiptra lóða.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að fela Dagnýju Sif Sigurbjörnsdóttur hdl., Lögmönnum Suðurlandi, að fylgja eftir hagsmunagæslu aðildarsveitarfélaganna vegna eignarhluts þeirra í fasteigninni og eftir atvikum annarra misskráninga sem kunna að vera í fasteignaskrá og þinglýsingum vegna jarðarinnar Laugaráss og út skiptra lóða, og að sveitarstjóra verði falið að undirrita viðeigandi skjöl fyrir hönd sveitarfélagsins.
k) Fundargerð 215. fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga, 10. febrúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
l) Fundargerð 91. fundar stjórnar Bergrisans bs., 3. febrúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
m) Fundargerð 25. fundar stjórnar Arnardrangs, 3. febrúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2. Viljayfirlýsing við Hjálparsveitina Tintron.
Fyrir fundinum liggja drög að viljayfirlýsingu milli sveitarfélagsins Grímsnes- og Grafningshrepps og Hjálparsveitarinnar Tintron.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi drög og felur sveitarstjóra að skrifa undir viljayfirlýsinguna fyrir hönd sveitarfélagsins. Jafnframt er Fjólu Steindóru Kristinsdóttur, kt. 270272-5849, sveitarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess fyrir hönd sveitarfélagsins að undirrita, bindandi samkomulag, fullgilda og ljúka við nauðsynlega skjalagerð vegna þessa sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast viljayfirlýsingu þessari.
3. Gjaldskrá fyrir lása og lykla.
Fyrir liggur ný gjaldskrá fyrir lykla og lása að hliðum í frístundabyggðum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að hver lás sé seldur á kr. 30.000.- og hver lykill á kr. 2.500.-
4. Umsókn um lóðina Lækjartún 7.
Fyrir fundinum liggur umsókn Seve Iceland ehf. um lóðina Lækjartún 7 á Borg, Grímsnes- og Grafningshreppi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta Seve Iceland ehf. k.t: 660917-1010 Lækjartún 7, svo fremi að umsækjandi uppfylli skilmála sveitarfélagsins um lóðaúthlutun og felur sveitarstjóra að klára málið.
5. Umsókn um leikskóladvöl utan lögheimilissveitarfélags, vorönn 2026.
Lögð fram umsókn um að nemandi með lögheimili utan Grímsnes- og Grafningshrepps fái heimild til að stunda nám í leikskóladeild Kerhólsskóla vorönn 2026. Jafnframt liggur fyrir samþykki Skóla- og Velferðarþjónustu Árborgar um greiðslur vegna námsvistar nemandans utan lögheimilissveitarfélags.
Sveitarstjórn samþykkir umsóknina með fyrirvara um að greiðslur vegna leikskóladvalar fari samkvæmt viðmiðunarreglum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt erindinu frá Árborg greiðir sveitarfélagið að hámarki 89.180,- á mánuði fyrir 8 tíma vistun vegna barna undir 18 mánaða aldri og 120.000,- á mánuði vegna barna 18 mánaða og eldri. Komi til annar kostnaður umfram það skal um það samið sérstaklega. Samkvæmt viðmiðunarreglum Sambands íslenskra sveitarfélaga tímabilið 15. september 2025 til 15. september 2026 er kostnaður vegna 8 tíma vistunar fyrir eins árs börn 561.213.- krónur á mánuði og vegna tveggja ára barns 480.259.- krónur á mánuði og þurfa því foreldrar/forráðamenn að greiða það sem út af stendur hvern mánuð vilji þau nýta leikskólavistun í leikskóladeild Kerhólsskóla.
6. Nýr héraðsvegur að Bjarkarlæk í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Lagt fram til kynningar bréf frá Vegagerðinni dagsett 6. febrúar 2026, þar sem tilkynnt er um að umsókn um nýjan héraðsveg að Bjarkarlæk (L224049), í Grímsnes- og Grafningshreppi hafi verið samþykkt.
7. Bréf frá Umboðsmanni Alþingis vegna máls númer 12777/2024 vegna kvörtunar Björgvins Njáls Ingólfssonar yfir ákvörðun sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps um synjun á endurgreiðslu vegna eldri gjaldskrá íþróttamiðstöðvar og sundlaugar sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar bréf frá Kristínu Benediktsdóttur umboðsmanni Alþingis, dagsett 30. janúar 2026. Þar er sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps tilkynnt að Umboðsmaður Alþingins hefur lokið máli Björgvins Njáls Ingólfssonar. Umboðsmaður telur að fengnum skýringum innviðaráðuneytisins ekki tilefni til að gera athugasemdir við þá efnislegu afstöðu ráðuneytisins að aðhafast ekki frekar þar sem erindið hafi ekki fallið undir stjórnsýslueftirlit þess eins og það er afmarkað í sveitarstjórnarlögum.
8. Stjórnsýslukærur nr. UUA2602004 - UUA2602009 og UUA26020011 - UUA2602013 og UUA2602016 vegna Heiðarbæjarlands í Grímsnes- og Grafningshreppi og Bláskógabyggð.
Fyrir liggja tilkynningar um stjórnsýslukærur nr. UUA2602004 - UUA2602009 og UUA26020011 - UUA2602013 og UUA2602016 vegna Heiðarbæjarlands í Grímsnes- og Grafningshreppi og Bláskógabyggð.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra og lögmanni sveitarfélagsins, Óskari Sigurðssyni hrl., að vinna að málinu fyrir hönd sveitarfélagsins.
9. Samþykktir Sorpstöðvar Suðurlands, seinni umræða.
Fyrir fundinum liggja drög að samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands bs., drögin eru lögð fram til seinni umræðu.
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða samþykktirnar.
10. Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga.
Fyrir liggur bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., dagsett 12. febrúar 2026 þar sem tilkynnt er að aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. verði haldinn þann 20. mars 2026. Óskað eftir framboðum í stjórn Lánasjóðsins.
Bréfið lagt fram til kynningar.
11. Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 27/2026, „Könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga“.
Lagt fram til kynningar könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga. Í könnunni er óskað eftir ábendingum og úrbótatillögum um verkefni og regluverk sveitarfélaga og fram koma í yfirliti yfir lögmæt verkefni sveitarfélaga, sem innviðaráðuneytið gefur út árlega. Um er að ræða verkefni í ríflega 60 lögum sem heyra undir 11 ráðuneyti.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að senda upplýsingar um könnunina á allar nefndir sveitarfélagsins til kynningar og hvetur nefndarmenn til að svara ef áhugi er fyrir hendi.
12. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 26/2026, „Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (rannsókn alvarlegra óvæntra atvika)“.
Lagt fram til kynningar.
13. Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 40/2026, „Áform um gerð ungmennastefnu“.
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir áform um mótun ungmennastefnu sem á að lýsa því hvernig stjórnvöld styðja við ungmenni og tryggja þeim raunveruleg tækifæri, réttindi og rödd í samfélaginu. Sveitarstjórn vísar málinu til Ungmennaráðs og óskar eftir að umsögn þeirra liggi fyrir næsta sveitarstjórnarfund sem áætlaður er 4. mars næstkomandi en tími til að skila inn umsögn í málinu er til og með 12. mars.
14. Hvatning til umsagnar um þingsályktunartillögu um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Lagt fram til kynningar bréf frá Atlantsflugi, dagsett 2. febrúar 2026, þar sem vakin er athygli á þingsályktunartillögu sem liggur fyrir Alþingi 16. mál á 157. löggjafarþingi, um að koma á fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum Landhelgisgæslu Íslands (LHG) á Akureyri.

Skjöl

Getum við bætt efni þessarar síðu?