Fara í efni

Sveitarstjórn

617. fundur 03. júní 2026 kl. 14:00 - 15:26 Stjórnsýsluhúsinu Borg og á Teams
Sveitarstjórn
  • Fundinn sátu:
  • Guðmundur Finnbogason
  • Rebekka Lind Guðmundsdóttir
  • Andrés Bertelsen
  • Bergur Guðmundsson
  • Ragnheiður Eggertsdóttir
  • Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Fjóla Steindóra Kristinsdóttir.

Ragnheiður Eggertsdóttir setti fundinn sem sá fulltrúi sem hefur lengstan starfsaldur í sveitarstjórn og stýrði honum í samræmi við sveitarstjórnarlög þar til oddviti var kjörinn.


1. Kosning oddvita.
Gengið var til skriflegrar kosningar oddvita. Guðmundur Finnbogason hlaut 4 atkvæði, eitt autt atkvæði. Er því Guðmundur Finnbogason rétt kjörinn oddviti út kjörtímabilið 2026–2030.
2. Kosning varaoddvita.
Gengið var til skriflegrar kosningar varaoddvita. Rebekka Lind Guðmundsdóttir hlaut 4 atkvæði, eitt autt atkvæði. Er því Rebekka Lind Guðmundsdóttir rétt kjörin varaoddviti út kjörtímabilið 2026–2030.
3. Ráðning sveitarstjóra.
Lagður fram til staðfestingar ráðningarsamningur sveitarstjóra fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
Sveitarstjórn samþykkir með fjórum atkvæðum að ráða Fjólu Steindóru Kristinsdóttur sem sveitarstjóra Grímsnes- og Grafningshrepps út kjörtímabilið 2026-2030. Andrés Bertelsson sat hjá við afgreiðslu málsins. Fjóla mun áfram gegna starfinu samkvæmt nýjum samningi frá 3. júní 2026 til 31. maí 2030.
Fjóla Steindóra Kristinsdóttir vék af fundi undir þessum lið.
4. Reglur um kjör og starfsaðstæður sveitarstjórnar og nefndarmanna í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Fyrir liggja drög að uppfærðum reglum um launakjör og starfsaðstæður kjörinna fulltrúa og nefndarmanna í Grímsnes- og Grafningshreppi. Breytingin felst í auknu starfshlutfalli varaoddvita.
Andrés Bertelsen leggur fram tillögu um frestun á þessum lið fram að fjárhagsáætlunargerð.
Kostið var um tillöguna og hún felld með fjórum atkvæðum gegn einu atkvæði Andrésar Bertelsen.
Eftirfarandi bókun lögð fram af Andrési Bertelsen:
Í tillögu þeirri sem meirihlutinn leggur fram er lagt til að föst laun varaoddvita verði 20% af þingfararkaupi alþingismanna á mánuði. Þar sem ekki er verið að skerða föst laun oddvita samhliða þessari tillögu og ekki getið sérstaklega hverju hún á að skila óskar Ö-listinn eftir svörum við þessum spurningum.
Við grófan útreikning á launum oddvita og varaoddvita miðað við tillögu meirihlutans, reiknast kostnaður vegna þessa kr. 18.476.436 á ári eða kr. 73.905.744 næstu fjögur árin. Tölur þessar miðast við þingfararkaup eins og það er í dag, ekki er gert ráð fyrir árlegri breytingu þingfararkaups sem tekur gildi 1. júlí ár hvert.
1. Hafa verið gerðir útreikningar á því hvað þessi hækkun mun kosta sveitarfélagið á kjörtímabili því sem nú er að hefjast 2026 – 2030?
2. Hefur verið ákveðið hvert vinnuframlag varaoddvita á að vera samhliða þessari hækkun?
3. Hyggst varaoddviti vera með viðveru á skrifstofu sveitarfélagsins?
Jafnframt er lagt til að ákvörðun um föst mánaðarlaun varaoddvita verði frestað þar til reynsla liggur fyrir á störfum nýrrar sveitarstjórnar. Réttara er að taka málið til skoðunar við vinnslu fjárhagsáætlunar 2027 og meta þá fyrst grundvöllinn fyrir þessum útgjöldum.
Eftirfarandi bókun lögð fram af meirihluta sveitarstjórnar:
Lagt var fram minnisblað launafulltrúa þar sem að kom fram að miðað við fundarsetu varaoddvita og þriðja kjörna fulltrúa síðasta kjörtímabils er þess vænst að kostnaður vegna launa varaoddvita eftir hækkun verði lægri en ef greitt er fyrir fundarsetu fyrir breytingu. Þessi breyting rúmast því vel innan fjárhagsáætlunar 2026. Varaoddviti verður með fasta viðveru á skrifstofu sveitarfélagsins hálfan til einn dag í viku ef hann er ekki á fundum fyrir sveitarfélagið á sama tíma.
Meirihlutinn telur því ekki ástæðu til að fresta þessum breytingum enda séu þær til hagsbóta fyrir sveitarfélagið.
Tillagan var borinn upp og hún samþykkt samhjóða.
5. Skipun í nefndir 2026 – 2030.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að skipa fulltrúa í nefndir og ráð Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir kjörtímabilið 2026–2030 sem hér segir:
a. Kjörstjórn.
Formaður: Bragi Svavarsson
Aðalmenn: Embla Ósk Ásgeirsdóttir, Valgeir Fridolf Backman
Varamenn:
Þessum lið er frestað til næsta fundar.
b. Skólanefnd.
Formaður: Pétur Thomsen
Aðalmenn: Anna Margrét Sigurðardóttir, Jóna Björg Jónsdóttir
Varamenn: Gunnhildur Guðmundsdóttir, Lilja Hrafndís Magnúsdóttir, Díana Kristín Sigmarsdóttir
c. Fjallskilanefnd.
Formaður: Bergur Guðmundsson
Aðalmenn: Guðrún Sigríður Sigurðardóttir, Benedikt Gústavsson.
Varamenn: Auður Gunnarsdóttir, Rúna Jónsdóttir, Haraldur Páll Þórsson.
d. Loftslags- og umhverfisnefnd.
Formaður: Anna Katrín Þórarinsdóttir.
Aðalmenn: Hans Guðmundur Magnússon, Sibéal Cristín Turraoin.
Varamenn: Kara Dís Gilbertsdóttir, Jóna Björg Jónsdóttir, Dagný Davíðsdóttir,
e. Atvinnu- og menningarnefnd.
Formaður: Jakob Guðnason
Aðalmenn: Rebekka Lind Guðmundsdóttir, Örvar Bjarnason
Varamenn: Sigurður Yngvi Ágústsson , Ragnheiður Eggertsdóttir, Jóhannes Þ. Guðmundsson.
f. Lýðheilsu- og æskulýðsnefnd.
Formaður: Hallbjörn V. Fríðhólm Rúnarsson.
Aðalmenn: Lilja Hrafndís Magnúsdóttir, Gunnar Bjarni Kristinsson.
Varamenn: Aldís Gestsdóttir, Jóhanna Esther Adamsdóttir, Pétur Thomsen
g. Framkvæmda- og veitunefnd.
Aðalmenn: Bergur Guðmundsson, Ragnheiður Eggertsdóttir, Sigurður Yngvi Ágústsson
Varamenn: Dagný Davíðsdóttir, Jóhannes Þ. Guðmundsson, Þorkell Þorkelsson.
h. Húsnefnd félagsheimilisins Borgar.
Formaður: Fjóla S. Kristinsdóttir, Sveitarstjóri.
Aðalmenn: Dagný Davíðsdóttir, Halldór Þorbjörnsson.
Varamenn: Rebekka Lind Guðmundsdóttir, Ragnheiður Eggertsdóttir
i. Samráðshópur um málefni aldraðra.
Fulltrúi sveitarstjórnar: Sigríður Kolbrún Oddsdóttir
Aðalmenn frá eldri borgurum: Kristín Karólína Karlsdóttir, Þorkell Gunnarsson
Til vara: Elín Lára Sigurðardóttir
j. Fulltrúi í Skipulagsnefnd Uppsveita.
Aðalmaður: Guðmundur Finnbogason (Oddviti)
Varamaður: Rebekka Lind Guðmundsdóttir (Varaoddviti)
k. Fulltrúi í stjórn Skipulagsfulltrúa uppsveita (UTU).
Aðalmaður: Guðmundur Finnbogason (Oddviti)
Varamaður: Rebekka Lind Guðmundsdóttir (Varaoddviti)
l. Fulltrúi í stjórn Skóla- og velferðarþjónustu bs.
Aðalmaður: Fjóla Steindóra Kristinsdóttir
Varamaður: Guðmundur Finnbogason
m. Fulltrúi í fagnefnd Skóla og velferðarþjónustu.
Aðalmaður: Pétur Thomsen
Varamaður: Ragnheiður Eggertsdóttir
n. Fulltrúar á aðalfund Bergrisans bs.
Aðalmenn: Guðmundur Finnbogason, Rebekka Lind Guðmundsdóttir, Ragnheiður Eggertsdóttir
Varamenn: Bergur Guðmundsson, Pétur Thomsen, Dagný Davíðsdóttir
o. Fulltrúi á aðalfund og aukaaðalfund Héraðsskjalasafns Árnesinga bs.
Aðalmaður: Guðmundur Finnbogason
Varamaður: Bergur Guðmundsson
Áheyrnarfulltrúi: Andrés BertelsenA
Varaáheyrnarfulltrúi; Ragna Ívarsdóttir
p. Fulltrúi á aðalfund og aukaaðalfund Tónlistarskóla Árnesinga bs.
Aðalmaður: Guðmundur Finnbogason
Varamaður: Bergur Guðmundsson
Áheyrnarfulltrúi: Andrés Bertelsen
Varaáheyrnarfulltrúi; Ragna Ívarsdóttir
q. Fulltrúi á aðalfund og aukaaðalfund Listasafns Árnesinga bs.
Aðalmaður: Guðmundur Finnbogason
Varamaður: Bergur Guðmundsson
Áheyrnarfulltrúi: Andrés Bertelsen
Vara áheyrnarfulltrúi; Ragna Ívarsdóttir
r. Fulltrúi á aðalfund og aukaaðalfund Byggðasafns Árnesinga bs.
Aðalmaður: Guðmundur Finnbogason
Varamaður: Bergur Guðmundsson
Áheyrnarfulltrúi: Andrés Bertelsen
Vara áheyrnarfulltrúi; Ragna Ívarsdóttir
s. Fulltrúi á aðalfund og aukaaðalfund Brunavarna Árnessýslu bs.
Aðalmaður: Guðmundur Finnbogason
Varamaður: Bergur Guðmundsson
Áheyrnarfulltrúi: Andrés Bertelsen
Vara áheyrnarfulltrúi; Ragna Ívarsdóttir
t. Fulltrúi á aðalfund og aukaaðalfund Héraðsnefndar Árnesinga bs.
Aðalmaður: Guðmundur Finnbogason
Varamaður: Bergur Guðmundsson
Áheyrnarfulltrúi: Andrés Bertelsen
Vara áheyrnarfulltrúi; Ragna Ívarsdóttir
u. Fulltrúi í Almannavarnarnefnd Árnessýslu.
Aðalmaður: Fjóla S. Kristinsdóttir, Sveitarstjóri
Varamaður: Guðmundur Finnbogason, Oddviti
v. Fulltrúi á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026-2030.
Aðalmaður: Guðmundur Finnbogason, Oddviti
Varamaður: Rebekka Lind Guðmundsdóttir, Varaoddviti
w. Fulltrúar á aðalfund SASS.
Guðmundur Finnbogason
Rebekka Lind Guðmundsdóttir
Bergur Guðmundsson
Varamenn
Ragnheiður Eggertsdóttir
Pétur Thomsen
Dagný Davíðsdóttir
x. Fulltrúar á aðalfund Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
Guðmundur Finnbogason
Rebekka Lind Guðmundsdóttir
Bergur Guðmundsson
Varamenn
Ragnheiður Eggertsdóttir
Pétur Thomsen
Dagný Davíðsdóttir
y. Fulltrúi á aðalfund Eignarhaldsfélags Suðurlands.
Aðalmaður: Guðmundur Finnbogason (Oddviti)
Varamaður: Rebekka Lind Guðmundsdóttir (Varaoddviti)
z. Fulltrúi í öldungaráð.
Sigríður Kolbrún Oddsdóttir
aa. Fulltrúar í Svæðisskipulag Suðurlands.
Rebekka Lind Guðmundsdóttir (Varaoddviti)
bb. Fulltrúar í nefnd um byggingu Björgunarmiðstöðvar.
Guðmundur Finnbogason (Oddviti)
Bergur Guðmundsson.
Eftirfarandi bókun lögð fram af Andrési Bertelsen:
Fulltrúi Ö-listans í sveitarstjórn 2026-2030 vill trúa því að við val á fólki í nefndir og ráð sveitarfélagsins til næstu fjögurra ára hafi verið litið til hæfni einstaklinga umfram allt annað til setu í þeirri nefnd sem það valdist til. Undirritaður lýsir yfir áhyggjum af þeirri ákvörðun meirihlutans að nýta vald sitt til að taka öll sæti í þeim nefndum sem er verið að manna í dag, 33,3% kjósanda sveitarfélagsins greiddu atkvæði til Ö-listans. Slíkur vinnumáti endurspeglar hvorki fjölbreytileika kjósendahópsins né stuðlar að breiðri samstöðu um mikilvæg málefni.
Leggja ætti ríka áherslu á að við skipan í nefndir, ráð og stjórnir eigi fagleg hæfni, þekking og reynsla ávallt að vera helstu mælikvarðarnir. Það er hagsmunamál allra að hæfasta fólkið veljist til þessara ábyrgðarstarfa til að tryggja vandaða stjórnsýslu og faglega ákvarðanatöku. Skammtímasjónarmið pólitísks meirihluta ættu aldrei að ganga framar kröfunni um hæfni, hæfileika og þekkingu þeirra sem eiga að gæta hagsmuna heildarinnar.
Eftirfarandi bókun lögð fram af meirihlutanum:
Meirihlutinn tekur undir það að velja eigi hæft og öflugt fólk til setu í nefndum og ráðum sveitarfélagsins. Enda hefur meirihlutinn gætt að því í hvívetna. Skipað er í nefndir samkvæmt hefðum og venjum í samræmi við niðurstöður kosninga þar sem að fjórir fulltrúar A-listans hlutu kjör á móti einum fulltrúa Ö-listans.
Tilllagan borin upp:
Tillagan var samþykkt með fjórum atkvæðum meirihlutans. Andrés Bertelsen greiddi atkvæði á móti.
6. Sumarleyfi sveitarstjórnar og næstu fundir hennar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að sveitarstjórn verði í sumarleyfi í júlí og að fyrsti reglulegi fundur sveitarstjórnar í ágúst falli niður. Næstu reglulegu fundir sveitarstjórnar verða því 16. júní og 19. ágúst.
Boðað verður til aukafunda sveitarstjórnar eftir því sem tilefni gefur til og í samræmi við 8. gr. Samþykktar um stjórn og fundarsköp Grímsnes- og Grafningshrepps.
7. Siðareglur kjörinna fulltrúa Grímsnes- og Grafningshrepps.
Lagðar fram gildandi siðareglur kjörinna fulltrúa Grímsnes- og Grafningshrepps, sem voru fyrst samþykktar 6. maí 2015. Samkvæmt 29. gr. sveitarstjórnarlaga skal ný sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til endurskoðunar þeirra.
Sveitarstjórn telur ekki ástæðu til að endurskoða siðareglurnar og halda þær því áfram gildi sínu. Innviðaráðuneytinu verður tilkynnt um þá niðurstöðu. Siðareglurnar voru undirritaðar og verða birtar á heimasíðu sveitarfélagsins auk þess sem þær verða kynntar nefndum sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn felur jafnframt sveitarstjóra að fylgjast með framgangi frumvarps til nýrra sveitarstjórnarlaga þar sem m.a. er kveðið á um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa og æðstu stjórnenda sveitarfélaga. Stefnt er að því að setja reglur um hagsmunaskráningu í samræmi við ný lagaákvæði þegar þau taka gildi.
8. Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grímsnes- og Grafningshrepps - fyrri umræða.
Lögð fram til fyrri umræðu samþykkt um stjórn og fundarsköp Grímsnes- og Grafningshrepps.
Sveitarstjórn vísar samþykktinni til annarrar umræðu.
9. Fundargerðir.
a) Fundargerð 37. fundar ungmennaráðs Grímsnes- og Grafningshrepps, 29. janúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
b) Fundargerð 38. fundar ungmennaráðs Grímsnes- og Grafningshrepps, 12. febrúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
c) Fundargerð 39. fundar ungmennaráðs Grímsnes- og Grafningshrepps, 9. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
d) Fundargerð 40. fundar ungmennaráðs Grímsnes- og Grafningshrepps, 14. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
e) Fundargerð 41. fundar ungmennaráðs Grímsnes- og Grafningshrepps, 24. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
f) Fundargerð 6. fundar Öldungaráðs Uppsveita og Flóa, 8. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
g) Fundargerð 135. fundar stjórnar byggðasamlagsins UTU, 13. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
h) Fundargerð 91. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga, 2. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
i) Fundargerð 92. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga, 10. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
j) Fundargerð 22. fundar stjórnar Byggðasafns Árnesinga, 18. maí 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
k) Fundargerð 998. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 8. maí 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
l) Þinggerð 104. héraðsþings HSK, Félagsheimilinu Borg, 26. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
m) Fundargerð 326. fundar skipulagsnefndar UTU, 27. maí 2026.
Mál nr. 24, 25, 26, 27, 28 og 31 þarfnast staðfestingar sveitarstjórnar.
Lögð er fram 326. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 27. maí 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 24; Öldusteinstún 2, L240634 og 4, L240636, Minna Mosfelli; Uppbygging; Fyrirspurn – 2605066.
Lögð er fram fyrirspurn er varðar Minna Mosfell í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í fyrirspurninni felst hvort heimilt sé að reisa 7 smáhýsi á lóðum nr. 2, L240634 og 4, L240636 í Öldusteinstúni.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að hafna erindinu þar sem að það samræmist ekki heimildum í aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps, þar er skýrt tekið fram að einungis er heimilt að byggja eitt frístundarhús ásamt aukahúsi/gestahúsi og geymslu á hverri lóð. Þetta er einnig tekið fram í deiliskipulagi svæðisins, Öldusteinstún - frístundabyggð.
Mál nr. 25; Villingavatn L170831; Fjölnytjaskógrækt; Framkvæmdarleyfi – 2605062.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á Villingavatni L170831 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Stundað verður fjölnytjaskógrækt til að rækta upp skóg sem mun binda kolefni, framleiða timbur, endurheimta jarðveg og veita aðra vistkerfisþjónustu skóga.
Afgreiðslu máls frestað til næsta fundar að beiðni skipulagsfulltrúa UTU.
Mál nr. 26; Syðri-Brú L169607; Skilmálabreyting; Deiliskipulagsbreyting – 2605052.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til frístundabyggðar í landi Syðri-Brúar L169607 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst aukin heimild til nýtingarhlutfalls á hverri lóð innan skipulagssvæðisins.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagðar breytingar á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi og verði grenndarkynnt öllum hlutaðeigandi innan skipulagssvæðisins.
Mál nr. 27; Berjaás 16 L234109; Færsla á innkeyrslu; Fyrirspurn – 2605029.
Lögð er fram fyrirspurn sem tekur til Berjaáss 16 L234109 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í fyrirspurninni felst hvort heimilt sé að færa innkeyrslu á lóðina.
Sveitarstjórn mælist til þess að farið verði í breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Breytingin verði grenndarkynnt fyrir öllu deiliskipulagssvæðinu í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 28; Stóri-Háls L170827; Úr landbúnaðarsvæði í skógræktarsvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2601057.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Með breytingunni verður sett inn nýtt skógræktar- og landgræðslusvæði á Stóra-Hálsi (L170827) og heimiluð skógrækt á allt að 100 ha. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna nýs skógræktar- og landgræðslusvæðis á Stóra-Hálsi (L170827) og að heimiluð verði skógrækt á allt að 100 ha í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn mælist til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31. gr. sömu laga að undangenginni samþykkt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
Mál nr. 31; Afgreiðslur byggingarfulltrúa dagsett 20. maí 2026 - nr. 26- 251 - 2605002F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa dagsett þann 20. maí 2026, nr. 26- 251.
10. Skýrsla yfirkjörstjórnar í sveitarfélaginu Grímsnes- og Grafningshreppi.
Lögð er fram skýrsla yfirkjörstjórnar í Grímsnes- og Grafningshreppi um niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna fyrir kjörtímabilið 2026–2030. Í skýrslunni kemur fram að kosningarnar hafi verið lögmætar og lýst er kjöri nýrra fulltrúa og varamanna í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn tekur skýrslu yfirkjörstjórnar til kynningar og staðfestir lögmæti sveitarstjórnarkosninganna í samræmi við hana.
11. Styrkbeiðni frá Klúbbnum Strók, virknimiðstöð að Skólavöllum 1, Selfossi.
Fyrir liggur styrkbeiðni frá Klúbbnum Strók, virknimiðstöð að Skólavöllum 1, Selfossi, dagsett 13. maí 2026. Óskað er eftir styrk til kaupa á 10 skrifborðsstólum fyrir iðjuna.
Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið en getur ekki orðið við styrkbeiðninni að þessu sinni þar sem ekki er gert ráð fyrir slíkum styrk í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026.
12. Heimild til viðbótar yfirborðsrannsókna á Mosfellsheiði - beiðni um umsögn.
Fyrir liggur bréf frá Forsætisráðuneytinu, dagsett 26. maí 2026, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins um áform Orkuveitunnar Reykjavíkur (OR) að bæta við viðbótarmælipunktum utan við það svæði sem þau hafa rannsóknarleyfi á. Orkuveitan hefur gilt rannsóknarleyfi á svæðinu og hefur síðastliðið sumar framkvæmt yfirborðsrannsóknir, m.a. MT og TEM mælingar, til að kortleggja jarðhitakerfið á svæðinu. Niðurstöður þeirra rannsókna benda til þess að betri sýn af jarðhitakerfinu sé nauðsynleg til að fá fullnægjandi heildarmynd. Til þess að geta byggt upp þrívíddarlíkan sem nær niður á 3 km þarf að bæta við mælingum utan núverandi afmörkunar rannsóknarleyfis.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við fyrirhugaðar viðbótaryfirborðsrannsóknir Orkuveitunnar Reykjavíkur á Mosfellsheiði, að því gefnu að framkvæmdirnar séu í samræmi við gildandi regluverk og að sveitarfélagið verði upplýst um niðurstöður rannsóknanna. Jafnframt óskar sveitarstjórn eftir að skipulagsfulltrúi sveitarfélagsins sendi inn umsögn.
13. Samþykktir Héraðsnefndar Árnesinga – seinni umræða.
Lagðar fram til seinni umræðu samþykktir Héraðsnefndar Árnesinga.
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða samþykktirnar.
14. Aðalfundur SASS, 25. júní 2026.
Fyrir fundinum liggur erindi frá SASS þar sem óskað er upplýsinga um fulltrúa á aðalfundi samtakanna sem haldinn verður 25. júní 2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að Bergur Guðmundsson, Ragnheiður Eggertsdóttir og Pétur Thomsen, verði fulltrúar sveitarfélagsins á aðalfundinum og Dagný Davíðsdóttir til vara.
15. Aðalfundur Vottunarstofunnar Túns ehf., 4. júní 2026.
Fyrir fundinum liggur erindi frá Vottunarstofunni Túni ehf. þar sem óskað er upplýsinga um fulltrúa á aðalfundi stofnunarinnar sem haldinn verður 4. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.
16. Mótmæli á losunatíma rotþróa.
Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Davíð Atla Oddssyni f.h. sumarhúsafélagsins Kerhraun-E, dagsettur 13. maí 2026, þar sem tilkynnt er að á aðalfundi félagsins þann 12. maí 2026 hafi verið samþykkt einróma að senda sveitarstjórn mótmæli við breyttum losunartíma rotþróa úr 3 árum í 5 ár.
Andrés Bertelsen lagði fram eftirfarandi bókun:
Árið 2025 var losunartíðni rotþróa í Grímsnes- og Grafningshreppi endurskoðuð. Rotþrær við frístundahús eru nú hreinsaðar á 5 ára fresti (áður 3 ára), en rotþrær við íbúðarhús eru hreinsaðar á 3 ára fresti. Ö- listinn leggur til að farið verði í endurskoðun á þeim reglum sem gilda um losun rotþróa. Í ljósi þeirrar umræðu sem hefur skapast síðan breytingin átti sér stað með það að markmiði að þjónustan gagnist fasteignaeigendum sem best. Gjaldtakan vegna seyrulosunar er kostnaðarreiknuð og er henni ætlað að standa undir rekstrarkostnaði við tæmingu, flutning og vinnslu seyru, en ekki að mynda afgang. Ekki er gert ráð fyrir fjármagnskostnaði, afskriftum eða nýjum fjárfestingum í þessum útreikningum. Við núverandi aðstæður hefur þónokkur fjöldi eiganda frístundahúsa nýtt sér aukalosun síðan breytingin átti sér stað og nýjar reglur tóku gildi, kostnaður vegna þessa er umtalsverður.
17. Ársskýrsla HSK 2025 og bréf framkvæmdarstjóra.
Lögð fram til kynningar ársskýrsla HSK 2025 og bréf framkvæmdarstjóra HSK, Engilberts Olgeirssonar, dagsett 12. maí 2026, vegna 104. Héraðsþings Skarphéðins, sem haldið var í Félagsheimilinu Borg þann 6. mars 2026.
18. Stjórnsýslukæra mál nr. UUA2605017, UUA2605016, UUA2605015, UUA2605014.
Fyrir liggja tilkynningar um stjórnsýslukærur nr. UUA2605017, UUA2605016, UUA2605015 og UUA2605014 vegna Heiðarbæjarlands í Grímsnes- og Grafningshreppi og Bláskógabyggð.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra og lögmanni sveitarfélagsins, Óskari Sigurðssyni hrl., að vinna að málinu fyrir hönd sveitarfélagsins.
19. Bréf frá Yfirfasteignamatsnefnd þar sem óskað er eftir umsögn vegna kæru til nefndarinnar í máli nr. 3/2026, Selholt 2, fnr. 232-1752.
Fyrir liggur bréf frá Yfirfasteignamatsnefnd þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna kæru til nefndarinnar í máli nr. 3/2026, Selholt 2, fnr. 232-1752.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra og lögmanni sveitarfélagsins, Óskari Sigurðssyni hrl., að vinna að umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.
20. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, C minna gistiheimili að Giljatungu 34, 805 Selfossi, fnr. F2343921.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 11. maí 2026 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, C minna gistiheimili að Giljatungu 34, 805 Selfossi, fnr. F2343921.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að leggjast gegn útgáfu rekstrarleyfis á grundvelli laga nr. 85/2007 í flokki II, C minna gistiheimili að Giljatungu 34, fnr. F2343921, þar sem skráningu stærða húsanna sem byggð hafa verið er ólokið og misræmi er á milli samþykktra teikninga og raunbyggðs. Til að unnt sé að veita umsögn þarf að uppfæra skráningu mannvirkja og leggja fram leiðrétt gögn sem endurspegla raunverulega stærð og útfærslu húsanna.

Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl: 15:26

Skjöl

Getum við bætt efni þessarar síðu?