Sveitarstjórn
Guðmundur Finnbogason oddviti setti fund, bauð fundargesti velkomna og leitaði athugasemda við fundarboð, engar athugasemdir voru við boðun fundarins.
1. Fundargerðir.
a) Fundargerð 40. fundar atvinnu- og menningarnefndar Grímsnes- og Grafningshrepps, 27. maí 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
b) Fundargerð 327. fundar skipulagsnefndar UTU, 10. júní 2026.
Mál nr. 12, 13, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 20 og 22 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 327. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 10. júní 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 12; Minna-Mosfell L168262; Flóðalækur; Stofnun lóðar – 2511058.
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 20.10.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun nýrrar lóðar. Óskað er eftir að stofna lóðina Flóðalækur, 10,4 ha. úr jörðinni Minna-Mosfell L168262.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu með fyrirvara um umsögn Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar vegtengingar. Jafnframt er óskað eftir því að merkjalýsingin sé uppfærð þannig að fyrirhuguð vegtenging við Flóðalæk sjáist.
Mál nr. 13; Reykjalundur L168273; Skilgreining svæðis; Deiliskipulag – 2601048.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags, eftir kynningu, sem tekur til Reykjalundar L168273 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Á jörðinni er rekin garðyrkjustöð og stendur til að stækka starfsemina og auka framleiðslu. Samhliða verður rekin ferðaþjónusta með gistingu fyrir allt að 20 gesti. Einnig vilja eigendur búa á jörðinni og vera með húsnæði fyrir starfsfólk. Stærð skipulagssvæðis er 8 ha. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar ligga fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Mál nr. 14; Syðri-Brú L168277; Úr frístundasvæði í verslun og þjónustu; Aðalskipulagsbreyting – 2603066.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Breytingin felst í afmörkun þriggja svæða fyrir verslun og þjónustu; tveggja svæða í landi Syðri-Brúar og eins í landi Hæðarenda. Allir reitirnir eru í nágrenni frístundabyggða, en landeigendur hafa í huga að byggja þar þyrpingar gistiskála til útleigu.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að samþykkja aðalskipulagsbreytinguna til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 15; Ljósafossskóli L168468 og Brúarholt 2 L196050; Leiðrétt mörk milli landeigna – 2601037.
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 23.04.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar breytingar á mörkum Ljósafossskóla. Merkjalýsing þessi er til að leiðrétta mörk á milli Ljósafossskóla L168468, Brúarholts 2
L196050 og Efri-Brúar L196003 annars vegar og Ljósafossskóla L168468, Brúarholts 2 L196050 og Ljósafossvirkjunar L168926 hins vegar. Af ókunnum ástæðum varð til skörun milli landeigna. Merkjalýsing þessi leiðréttir þessa skörun.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
Mál nr. 16; Ljósafossskóli L168468; Fjölgun gistirýma; Deiliskipulag – 2403049.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til viðskipta- og þjónustulóðar Ljósafossskóla L168468. Í deiliskipulaginu felst heimild til frekari uppbyggingar gististarfsemi á svæðinu, þar á meðal fjölgun gistirýma og uppbygging nýrra gistieininga innan afmarkaðs byggingarreits.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að hafna framlögðum deiliskipulagstillögum þar sem deiliskipulagið er ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag.
Mál nr. 17; Bjarkarlækur L224049; Breytt byggingarmagn; Deiliskipulagsbreyting – 2605087.
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Bjarkarlækjar L224049. Í breytingunni felst að heimilt yrði að reisa allt að 150 m² hesthús/skemmu á byggingarreit B1. Hámarksbyggingarmagn á byggingarreit B2 yrði á móti lækkað úr 400 m² niður í 250 m². Heildarbyggingarmagn fyrir hesthús/skemmu á lóðinni helst óbreytt.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn samþykkir einnig samhljóða að ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu vegna málsins þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Mál nr. 18; Kertún L240053; Úr landbúnaðarsvæði í verslun og þjónustu; Aðalskipulagsbreyting – 2605050.
Lögð er fram skipulagslýsing sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Í breytingunni felst að Kertúni L240053 er breytt úr landbúnaðarsvæði, flokkur 2, í verslunar- og þjónustusvæði.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að samþykkja skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 19; Kerið 1 L172724; Byggingarreitur stækkaður; Deiliskipulagsbreyting - 2606004
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Kersins 1, L172724 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst stækkun byggingarreits á lóð Kervegs 2. Bætt er við skilmála heimild til að koma fyrir spennistöð og skólphreinsivirki innan byggingarreits. Einnig er heimilt að koma fyrir tímabundnum starfsmanna- og svefnbúðum innan byggingarreits á meðan á byggingu þjónustuhúss stendur.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fær málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi þar sem ekki er verið að auka byggingarmagn innan lóðarinnar. Sveitarstjórn áréttar við framkvæmdaraðila að þjónustuhúsi verði, eftir því sem kostur er, komið fyrir sem lengst frá Kerinu sjálfu til að lágmarka sjónræn áhrif framkvæmda á svæðið.
Mál nr. 20; Kerið 1 (L172724); byggingarheimild; vinnubúðir – 2603010.
Móttekin var umsókn þann 02.03.2026 um byggingarheimild fyrir tímabundnar vinnubúðir á landinu Kerið 1 (L172724) í Grímsnes- og Grafningshreppi. Umsóknin tekur til 105 m² starfsmannaaðstöðu og 135 m² gistiaðstöðu á framkvæmdatíma.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og að ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu vegna málsins þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Sveitarstjórn leggur áherslu á að framkvæmdaraðilar gæti að umgengni og ásýnd svæðisins í hvívetna, enda fari framkvæmdir fram í nágrenni þjóðvegar og fjölsótts ferðamannastaðar.
Mál nr. 22; Afgreiðslur byggingarfulltrúa dagsett 3. júní 2026, nr. 26-252 - 2605004F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa þann 3. júní 2026, nr. 26-252.
c) Fundargerð 1. fundar stjórnar byggðasamlagsins UTU, 10. júní 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
d) Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga, 8. júní 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
e) Fundargerð 1. fundar farsældarráðs Suðurlands, 4. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
f) Fundargerð 2. fundar farsældarráðs Suðurlands, 9. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
g) Fundargerð 636. fundar stjórnar SASS, 8. maí 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
h) Fundargerð 637. fundar stjórnar SASS, 5. júní 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
i) Fundargerð 999. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 28. maí 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
j) Fundargerð 1000. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 9. júní 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2. Ráðningarsamningur oddvita.
Fyrir liggur ráðningarsamningur við oddvita sveitarfélagsins út kjörtímabilið 2026-2030.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi starfssamning. Sveitarstjóra falið að skrifa undir samninginn fyrir hönd sveitarstjórnar.
Guðmundur Finnbogason vék af fundi við afgreiðslu málsins.
3. Ráðningarsamningur varaoddvita.
Fyrir liggur ráðningarsamningur við varaoddvita sveitarfélagsins út kjörtímabilið 2026-2030.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi starfssamning. Sveitarstjóra falið að skrifa undir samninginn fyrir hönd sveitarstjórnar.
Rebekka Lind Guðmundsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
4. Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga samkvæmt fjárhagsáætlun 2026.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða hér með á fundi sínum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 300.000.000 samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru á þeim tíma sem lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Sveitarstjórn hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðs sveitarfélaga.
Til tryggingar láninu – þ.m.t. höfuðstól, vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði – samþykkir sveitarstjórn að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.
Lánið er tekið til fjármögnunar framkvæmda samkvæmt fjárhagsáætlun og fjárfestingaáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026. Um er að ræða verkefni sem hafa almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Jafnframt er Fjólu Steindóru Kristinsdóttur, sveitarstjóra, kt. 270272-5849, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Grímsnes- og Grafningshrepps, kt. 590698-2109, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
5. Trúnaðarmál.
Fært í trúnaðarmálabók.
6. Erindi til sveitarstjórnar.
Fyrir liggur erindi frá Helga Sönderskov Harryssyni þar sem lagt er til að 2. gr. reglna sveitarfélagsins um lækkun fasteignagjalda verði breytt þannig að skilyrði um skráð lögheimili í viðkomandi fasteign falli brott. Jafnframt óskar erindishafi eftir afslætti af fasteignagjöldum vegna fasteignarinnar Þórsstígs 32.
Sveitarstjórn bendir á að sambærilegt erindi var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 30. mars 2025 þar sem beiðni um breytingu á reglunum var hafnað.
Sveitarstjórn hafnar erindinu og telur ekki ástæðu til að breyta gildandi reglum um lækkun fasteignagjalda. Reglurnar byggja á því að umsækjandi hafi skráð lögheimili í þeirri fasteign sem afslátturinn tekur til og að um sé að ræða skráð íbúðarhús. Sveitarstjórn telur mikilvægt að þessi skilyrði haldi gildi sínu. Breyting á reglunum myndi rýmka gildissvið þeirra og gæti haft ófyrirséð áhrif á tekjustofna sveitarfélagsins.
Erindinu er því hafnað með fjórum atkvæðum, fulltrúi Ö-listans situr hjá við afgreiðslu.
7. Samþykkt stjórnar SVÁ um þjónustu við íbúa með ótilgreint lögheimili.
Fyrir liggur erindi frá Rögnu Ívarsdóttur þar sem lagt er til að ákvörðun stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. frá 24. september 2025 verði dregin til baka.
Sveitarstjórn bendir á að sú ákvörðun sem vísað er til var tekin af stjórn Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. en ekki af sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps. Sveitarstjórn hefur því ekki heimild til að afturkalla eða fella úr gildi umrædda ákvörðun. Erindinu er vísað til stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. til umfjöllunar og afgreiðslu þegar ný stjórn hefur tekið til starfa.
8. Skipulagsmál í frístundabyggðum tillaga um niðurfellingu samþykktar frá 26. nóvember 2025.
Fyrir liggur erindi frá Rögnu Ívarsdóttur þar sem lagt er til að samþykkt sveitarstjórnar frá 26. nóvember 2025 um meðferð skipulagsmála í frístundabyggðum verði felld úr gildi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fella úr gildi samþykkt sveitarstjórnar frá 26. nóvember 2025, sem laut að frestun á afgreiðslu skipulagsbreytinga í frístundabyggðum. Sveitarstjórn áréttar að skipulagsmál sæta hefðbundinni málsmeðferð og einstaklingsbundinni afgreiðslu í samræmi við gildandi lög, reglur og stefnu sveitarfélagsins. Sú óvissa sem fyrri sveitarstjórn vísar til í bókun sinni á 604. fundi sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps er enn fyrir hendi og verður það þar til að viðunandi lausn finnst á þessum málum. Alþingi þarf að koma að þeirri vinnu og hafa þar samráð og samvinnu með sveitarfélögum í landinu.
9. Villingavatn L170831; Fjölnytjaskógrækt; Framkvæmdarleyfi – 2605062.
Lögð er fram beiðni um framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á Villingavatni L170831 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Afgreiðslu málsins áður frestað á 617. fundi sveitarstjórnar þann 3. júní 2026.
Sveitarstjórn samþykkir að veita framkvæmdaleyfi fyrir skógrækt á allt að 200 hekturum af umsóttu svæði. Leyfið tekur til þeirra svæða sem flokkuð eru L2 og teljast vel fallin til skógræktar.
10. Aðalfundargerð Eignarhaldsfélag Suðurlands og ársreikningur 2025.
Lögð fram til kynningar aðalfundargerð og ársreikningur Eignarhaldsfélags Suðurlands fyrir árið 2025.
11. Skipun í kjörstjórn 2026–2030.
Á 617. fundi sveitarstjórnar þann 3. júní 2026 var skipun í kjörstjórn frestað.
Sveitarstjórn tekur málið að nýju til umfjöllunar og skipar eftirtalda fulltrúa í kjörstjórn fyrir kjörtímabilið 2026–2030;
Formaður: Bragi Svavarsson
Aðalmenn:
• Embla Ósk Ásgeirsdóttir
• Valgeir Fridolf Backman
Varamenn:
• Guðrún Bergmann Vilhjálmsdóttir
• Ólafur Ingi Ólafsson
• Skarphéðin Rúnar Pétursson
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framangreinda skipun.
12. Lækkun hámarkshraða.
Lögð er fram tillaga svæðisstjóra Suðursvæðis Vegagerðarinnar um lækkun hámarkshraða á Þingvallavegi (36-02) á kafla frá ca. st. 1.160 að ca. st. 1.460 eða á um 300 metra kafla, úr 90 km/klst. í 70 km/klst. Tillagan er byggð á óskum ábúenda við vegamótin að Brúarey sem og á umferðaröryggissjónarmiðum. Umferðar- og umferðaröryggisdeild Vegagerðarinnar er hlynnt tillögunni.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps fagnar tillögunni og styður áform svæðisstjóra Suðursvæðis um lækkun hámarkshraða á umræddum vegkafla.
13. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, C minna gistiheimili að HM Borg Guesthouse, Minni-Borg 2, 805 Selfossi, fnr. F2500949.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 3. júní 2026 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, C minna gistiheimili að HM Borg Guesthouse, Minni-Borg 2, 805 Selfossi, fnr. F2500949.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II, C minna gistiheimili að HM Borg Guesthouse, Minni-Borg 2, fnr. F2500949 í Grímsnes- og Grafningshreppi.
14. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H Frístundahús að Hrauntröð 10, 805 Selfossi, fnr. F2364543.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 3. júní 2026 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H Frístundahús að Hrauntröð 10, 805 Selfossi, fnr. F2364543.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að leggjast gegn útgáfu rekstrarleyfis á grundvelli laga nr. 85/2007 í flokki II, H Frístundahús að Hrauntröð 10, fnr. F2364543, á þeim grundvelli að leyfisveitingin samræmist ekki heimildum gildandi deiliskipulags svæðisins.
15. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H Frístundahús að Lækjarbrekku 27, 805 Selfossi, fnr. F2343921.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 10. júní 2026 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H Frístundahús að Lækjarbrekku 27, 805 Selfossi, fnr. F2343921.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II, H Frístundahús að Lækjarbrekku 27, fnr. F2343921 í Grímsnes- og Grafningshreppi með fyrirvara um jákvæða umsögn byggingarfulltrúa.
Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl: 09:41