Fara í efni

Sveitarstjórn

613. fundur 13. apríl 2026 kl. 09:00 - 11:55 Stjórnsýsluhúsinu Borg og á Teams
Sveitarstjórn
  • Ása Valdís Árnadóttir oddviti
  • Björn Kristinn Pálmarsson
  • Dagný Davíðsdóttir
  • Ragnheiður Eggertsdóttir
  • Smári Bergmann Kolbeinsson
  • Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Fjóla Steindóra Kristinsdóttir.

Ása Valdís Árnadóttir oddviti setti fund, bauð fundargesti velkomna og leitaði athugasemda við fundarboð, engar athugasemdir voru við boðun fundarins.
Oddviti leitar afbrigða.
Samþykkt samhljóða.
a) Skipan fulltrúa á aðalfund Brunavarna Árnessýslu bs.
b) Skipan fulltrúa á aðalfund Tónlistarskóla Árnessýslu bs.
1. Fundargerðir.
a) Fundargerð 39. fundar atvinnu- og menningarnefndar Grímsnes- og Grafningshrepps, 8. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
b) Fundargerð 32. fundar framkvæmda- og veitunefndar Grímsnes- og Grafningshrepps, 12. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
c) Fundargerð 32. fundar skólanefndar Grímsnes- og Grafningshrepps, 26. febrúar 2026.
Mál nr. 2 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð fram 32. fundargerð Skólanefndar, dagsett 26. febrúar 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar;
Mál nr. 2; Skóladagatal 2026 til 2027.
Skóladagatal grunn- og leikskóladeildar Kerhólsskóla var lagt fyrir. Skólastjóri og aðstoðarleikskólastjóri gera grein fyrir áhrifum þess að skóladagatöl leik- og grunnskólans séu samræmd að miklu leiti. Reynsla síðasta árs af þeim breytingum sem gerðar voru hefur haft mjög jákvæð áhrif á starfsemi leikskólans og sjást mjög skýr merki þess að breytingarnar hafi skilað tilætluðum árangri. Skóladagatal leik- og grunnskóla 2026-2027 var samþykkt og vísað til sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins.
d) Fundargerð 322. fundar skipulagsnefndar UTU, 25. mars 2026.
Mál nr. 35, 36, 37, 38, 39, 40, 41, 42, 43 og 49
Lögð er fram 322. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 25. mars 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 35; Bakkahverfi L236382 (Torfastaðir); Breytt staðsetning lóða og fækkun; Deiliskipulagsbreyting – 2507060.
Lögð er fram umsókn um deiliskiuplagsbreytingu sem tekur til Bakkahverfis L236382 í landi Torfastaða. Skilgreindar eru fjórar nýjar frístundahúsalóðir sunnan við þegar stofnaðar lóðir við Eiríksgötu (nr. 13, 13a, 13b og 13c). Einnig er Eiríksgata nr. 12 stækkuð til suðurs um 2.732m2, en byggingarreitur er óbreyttur. Á móti eru felldar niður allar fimm lóðir við Njálsgötu. Heildarfjöldi frístundahúsalóða innan skipulagssvæðis lækkar því um eina, úr 29 lóðum í 28. Samanlögð stærð frístundahúsalóða er óbreytt fyrir og eftir breytingu. Fallið er frá gerð Njálsgötu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða breytingu á deiliskipulagi svæðisins og að málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
Mál nr. 36; Vaðnesvegur 2 L169743; Staðfest afmörkun lóðar – 2603044.
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 15.10.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar leiðréttingu á hnitsettri afmörkun lóðarinnar Vaðnesvegur 2 L169743.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við merkjalýsinguna.
Mál nr. 37; Villingavatn L170831; Nytjaskógrækt og landgræðsla; Aðalskipulagsbreyting – 2505090.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til breytingar á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps innan jarðarinnar Villingavatns L170831. Með breytingunni verður sett inn nýtt skógræktar- og landgræðslusvæði á Villingavatni og heimiluð skógrækt á tæplega 1.400 ha svæði. Markmið framkvæmdarinnar er að rækta skóg sem skapar timburnytjar og græðir upp raskað land. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn óskar eftir því við Skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda, í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 38; Stóri-Háls L170827; Úr landbúnaðarsvæði í skógræktarsvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2601057.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu lýsingar, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Með breytingunni verður sett inn nýtt skógræktar- og landgræðslusvæði á Stóra-Hálsi (L170827) og heimiluð skógrækt á allt að 100 ha. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að aðalskipulagsbreytingin fari til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 39; Ásgarður L168229, Breytt landnotkun; Frístundabyggð í landbúnaðarland; Deiliskipulagsbreyting – 2603034.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Ásgarðs L168229. Breytingin felst í niðurfellingu Sólbakka úr deiliskipulaginu. Felldar verða niður 11 lóðir við Sólbakka. Skipulagssvæðið minnkar úr 218ha niður í 203ha.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs L168229. Málið fær málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
Mál nr. 40; Kertún L240053; Ferðamannasvæði - gisting; Fyrirspurn – 2603061.
Lögð er fram fyrirspurn er varðar Kertún L240053 í Grímsnes- og Grafningshrepp. Í fyrirspurninni felst að kanna möguleikann á breytingu á aðalskipulagi þannig að landnotkun verði skilgreind sem verslun og þjónusta fyrir uppbyggingu á lóðinni sem er um 68.000 m² að stærð. Markmiðið er að þróa vandað gistisvæði fyrir ferðamenn sem fellur undir verslun og þjónustu. Uppbyggingin myndi samanstanda af vel hönnuðum gistieiningum sem yrðu staðsettar á svæðinu með þeim hætti að til verði aðlaðandi og vel skipulagt umhverfi sem samræmist náttúru og landslagi á svæðinu.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við að unnin verði skipulagslýsing vegna fyrirhugaðra aðalskipulagsbreytinga í landi Kertúns.
Mál nr. 41; Grímkelsstaðir 12 (L170844); byggingarheimild; sumarhús – 2506099.
Móttekin var umsókn þann 11.06.2025 um byggingarheimild fyrir 22,1 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Grímkelsstaðir 12 (L170844) í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Samkvæmt gr. 5.3.2.12 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 er óheimilt að staðsetja mannvirki nær lóðamörkum í frístundabyggð en 10 m. Umsóknin er því ekki í samræmi við gildandi skipulagsreglugerð.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að hafna umsókn um byggingarheimild fyrir frístundahúsi á Grímkelsstöðum 12 (L170844). Umsóknin er ekki í samræmi við gr. 5.3.2.12 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 þar sem fyrirhugað mannvirki er staðsett nær lóðamörkum en 10 m.
Mál nr. 42; Syðri-Brú L168277; Úr frístundasvæði í verslun- og þjónustu; Aðalskipulagsbreyting – 2603066.
Lögð er fram skipulagslýsing sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Breytingin felst í afmörkun þriggja svæða fyrir verslun og þjónustu; tveggja svæða í landi Syðri-Brúar og eins í landi Hæðarenda. Stærðir reitanna eru 18.312m2, 15.261m2 og 37.398m2. Allir reitirnir eru í nágrenni frístundabyggða, en landeigendur hafa í huga að byggja þar þyrpingar gistiskála til útleigu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 43; Tóftabraut 6 L196616; Tóftabraut 3 L196614; Deiliskipulagsbreyting – 2603058.
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Tóftabrautar 6 L196616 og Tóftabrautar 3 L196614, en breytingin snýr að lóðarmörkum þeirra. Vegna breytingarinnar stækkar Tóftabraut 6 úr 7606 m² í 8102,5 m². Tóftabraut 3 minnkar úr 7911 m² í 7414,5 m². Kvöð er á Tóftabraut 3 vegna aðkomu að Tóftabraut 6. Einnig er breytt byggingarheimild Tóftabrautar 6 og verður hún: Á lóðinni er heimilt að reisa frístundahús og aukahús ásamt geymslu. Hámarks nýtingarhlutfall lóðarinnar er 0,03.
Að mati sveitarstjórnar þurfa breytingar á deiliskipulagsskilmálum að ná yfir allt skipulagssvæðið.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fresta málinu þar til uppfærð gögn hafa borist.
Mál nr. 49; Afgreiðslur byggingarfulltrúa dagsett 18.03.2026 - nr. 26-246 - 2602003F.
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa þann 18. mars 2026, nr. 26-246.
e) Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings (SVÁ), 30. mars 2026.
Mál nr. 4 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð fram fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings (SVÁ), dagsett 30. mars 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar;
Mál nr. 4; Náms- og starfsráðgjöf í skólum.
Deildarstjóri skólaþjónustu fór yfir náms- og starfsráðgjöf í grunnskólum aðildarsveitarfélaga. Stjórn leggur til við aðildarsveitarfélögin að auglýst verði eftir öðrum náms- og starfsráðgjafa til að efla þjónustu byggðasamlagsins og formanni falið að stilla upp viðauka sem sendur verður á aðildarsveitarfélögin til samþykktar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagðan viðauka I við fjárhagsáætlun 2026 byggðasamlagsins Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. Viðauki I er alls kr. 5.160.000 og er mætt með viðbótarframlögum frá aðildarsveitarfélögum í samræmi við samþykkta kostnaðarskiptingu í stofnsamningi byggðasamlagsins.
f) Fundargerð 21. fundar stjórnar Byggðasafns Árnesinga, 16. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
g) Fundargerð 34. fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu, 20. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
h) Fundargerð 35. fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu, 7. apríl 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
i) Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga bs., 20. mars 2026.
Mál nr. 2 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð fram fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga bs., dagsett 20. mars 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar;
Mál nr. 2; Útboð á þakviðgerð húsnæðis Listasafns Árnesinga.
Fyrir liggur að skipta þarf um sjö þakglugga sem eiga að halda sér nálægt upprunalegu formi. Heildarkostnaður við verkið er rúmar 11 milljónir króna. Lagfæringin á gluggum er nauðsynlegur fyrsti hluti af heildarviðhaldi hússins. Verkið verður unnið í sumar. Stjórn samþykkir tilboð Selja-glugga ehf. og leggur til við aðildarsveitarfélög byggðasamlagsins að leggja fram fé til framkvæmdanna.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að leggja fram fé til framkvæmdanna í samræmi við samþykkta kostnaðarskiptingu í stofnsamningi byggðasamlagsins.
j) Fundargerð 253. fundar heilbrigðisnefndar Suðurlands, 24. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
k) Fundargerð 26. fundar stjórnar Arnardrangs hses., 23. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
l) Fundargerð 90. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga, 28. janúar 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
m) Fundargerð 995. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 10. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
n) Fundargerð 996. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 20. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2. Sveitarstjórnarkosningar Grímsnes- og Grafningshrepps 2026.
Undirbúningur og framkvæmd sveitarstjórnarkosninga sem haldnar verða þann 16. maí 2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að bjóða framboðslistum til sveitarstjórnakosninga aðgang að félagsheimilinu endurgjaldslaust til fundahalda í samráði við umsjónaraðila félagsheimilisins, á það við fundarhöld vegna undirbúningsfunda og framboðsfunda í aðdraganda kosninga. Jafnframt býðst svo þeim framboðslistum sem fá mann í sveitarstjórn aðgangur að félagsheimilinu endurgjaldslaust fyrir framboðs- og vinnufundi á kjörtímabilinu. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að framboðslistar hafi aðgang að skrifstofu vegna fjölföldunar á kynningarefni í aðdraganda kosninga.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að kjörfundur vegna kosninga til sveitarstjórna þann 16. maí næstkomandi verði í íþróttasalnum í Íþróttamiðstöðinni á Borg. Einnig er samþykkt að bjóða upp á kaffiveitingar á meðan kjörfundi stendur í Félagsheimilinu Borg.
3. Lántökur 2026.
Ekki hefur verið ráðist í lántökur í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026 þar sem gert var ráð fyrir láni til A-hluta sveitarsjóðs vegna framkvæmda ársins. Sveitarstjórn staðfestir samhljóða að framlengja yfirdráttarlánið hjá viðskiptabanka sveitarfélagsins um samtals sex mánuði auk þess sem veitt er heimild til hækkunar um 50 milljónir króna til að brúa bilið þar til fyrir liggur raunveruleg fjárþörf sveitarfélagsins. Jafnframt er Fjólu Steindóru Kristinsdóttur, kt. 270272-5849, sveitarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess fyrir hönd sveitarfélagsins að undirrita, fullgilda og ljúka við nauðsynlega skjalagerð vegna þessa sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
4. Dagþjónusta fyrir eldri borgara.
Fyrir fundinum liggur tilkynning félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, dagsett 30. mars 2026, um að samþykkt hafi verið að fela Sjúkratryggingum Íslands að hefja samningaviðræður við Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshrepp, Hrunamannahrepp og Skeiða- og Gnúpverjahrepp um sameiginlegan rekstur átta almennra dagdvalarrýma í uppsveitum Árnessýslu.
Sveitarstjórn fagnar því að umsókn sveitarfélaganna fjögurra um heimild til að reka dagdvalarrými hafi fengið jákvæða afgreiðslu. Brýn þörf er fyrir aukinni þjónustu við eldri borgara á svæðinu. Sveitarstjórn felur jafnframt sveitarstjóra að taka þátt í samningaviðræðum við Sjúkatryggingar Íslands fyrir hönd Grímsnes- og Grafningshrepps.
5. Skógartún – niðurstöður útboðs.
Fyrir fundinum liggur minnisblað vegna opnun tilboða í verkið " Vesturbyggð Skógartún 2026" sem fór fram þann 11. mars 2026 kl. 11:00.
Eftirfarandi tilboð bárust:
Búið er að yfirfara tilboð með tilliti til hæfi, útilokunarástæðna og réttra útreikninga í tilboðsskrá. Lægstbjóðandi, Jarðtækni ehf. uppfyllir kröfur útboðsgagna.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að ganga að tilboði lægstbjóðanda, Jarðtækni ehf. og felur sveitarstjóra að undirrita verksamning.
6. Viðauki við þjónustusamning um skólaakstur fyrir skólaárið 2026–2027.
Lagðir fram viðaukar við þjónustusamning um skólaakstur milli sveitarfélagsins og verktakanna Borg 805 ehf. og Guðmundar Jóhannessonar er annast aksturinn fyrir skólaárið 2026 – 2027.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða viðaukana og felur sveitarstjóra að undirrita fyrir hönd sveitarfélagsins.
Björn Kristinn Pálmarsson vék af fundi undir þessum lið.
7. Umsókn um leikskóladvöl utan lögheimilissveitarfélags.
Fyrir liggur beiðni frá Benjamin Nicoletta og Elena Petrova um að dóttir þeirra fái leikskólavist utan lögheimilissveitarfélags við Árbæ á Selfossi skólaárið 2026-2027. Forráðamenn eru reiðubúin að greiða öll skólagjöld sem ekki eru niðurgreidd af hinu opinbera.
Sveitarstjórn hafnar beiðninni samhljóða þar sem umsækjendur og þar með dóttir þeirra eru ekki með lögheimili í sveitarfélaginu.
8. Umsögn sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps um stofnun lögbýlis.
Fyrir fundinum liggur bréf, dagsett 31. mars 2026, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar vegna stofnunar lögbýlis á landbúnaðarlandi Árvegur 8 landeignanúmer 199084, fnr. 231-9362.
Samkvæmt gildandi aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020–2032 er viðkomandi svæði skilgreint sem landbúnaðarland og fellur því að meginstefnu skipulagsins um slíka landnotkun. Þá uppfyllir stærð landeignarinnar viðmið aðalskipulags um lágmarksstærð lands fyrir stofnun lögbýlis. Samkvæmt gildandi aðalskipulagi þarf lóðin að vera að minnsta kosti 5 hektarar, þessi lóð er 8,4 hektarar.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við áform um stofnun lögbýlis á umræddri lóð.
9. Stjórnsýslukæra nr. UUA2603014.
Fyrir liggur stjórnsýslukæra nr. UUA2603014.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela lögmanni sveitarfélagsins, Óskari Sigurðssyni hrl., að svara kærunni og gæta hagsmuna sveitarfélagsins í málinu.
10. Stjórnsýslukæra nr. MRN26030073.
Fyrir liggur stjórnsýslukæra nr. MRN26030073.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela lögmanni sveitarfélagsins, Óskari Sigurðssyni hrl., að svara kærunni og gæta hagsmuna sveitarfélagsins í málinu og staðfestir þær upplýsingar sem hann hefur nú þegar sent á ráðuneytið.
11. Umsókn um lóðina Lækjartún 3.
Fyrir fundinum liggur umsókn P. Pálsson ehf. kt: 701209-4350, um einbýlishúsalóðina Lækjartún 3 í þéttbýlinu á Borg, Grímsnes- og Grafningshreppi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta P. Pálsson ehf. kt: 701209-4350 lóðinni Lækjartún 3, svo fremi að umsækjandi uppfylli skilmála sveitarfélagsins um lóðaúthlutun. Samkvæmt reglum um úthlutun lóða þarf umsækjandi að skila inn ákveðnum gögnum og fær umsækjandi hér með 14 daga til að leggja fram skriflega staðfestingu frá banka eða lánastofnun um greiðsluhæfi og möguleika á lánafyrirgreiðslu vegna fyrirhugaðrar húsbyggingar. Berist gögn ekki innnan tilskilins frests fellur úthlutun úr gildi. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra framkvæmda, mannvirkja og umhverfis og sveitarstjóra að klára málið.
12. Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Heiðarbæjar, Þingvallasveit.
Á 599. fundi sveitarstjórnar þann 3. september 2025 var tillaga deiliskipulags frístundabyggðar Heiðarbæjar við Þingvallavatn samþykkt eftir auglýsingu. Sveitarstjórn taldi að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna og mælist til þess að deiliskipulagið tæki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð
Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsing vegna deiliskipulagsins var birt í B-deild Stjórnartíðinda hinn 6. janúar 2026.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir hér með að fella úr gildi auglýsingu nr. 1593/2025 um deiliskipulag í Grímsnes- og Grafningshreppi og Bláskógabyggð, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda þann 6. janúar 2026, vegna formgalla á málsmeðferð. Athugasemdir Skipulagsstofnunar verða teknar fyrir á næsta fundi sveitarstjórnar.
13. Öndverðarnes 1 L168299; Aukið byggingarmagn; Deiliskipulagsbreyting – 2509074.
Á 609. fundi sveitarstjórnar þann 4. febrúar 2026 var tillögu að breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Öndverðarness 1 L168299 í Grímsnes- og Grafningshreppi hafnað, með vísan til bókunar sveitarstjórnar frá 604. fundi þann 26. nóvember 2025.
Málið er nú tekið fyrir að nýju. Lögð er fram, að lokinni grenndarkynningu, tillaga að breytingu á deiliskipulagi sem nær til þriggja deiliskipulagssvæða frístundabyggðar (F33). Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni. Aðalhús skal ekki vera stærra en 200 fm að grunnfleti, en nýtingarhlutfall skal þó aldrei vera meira en 5% af stærð lóðar. Hámarkshæð mænis frá gólfi er 6,0 metrar, en frá jörðu 6,5 metrar. Önnur hús á lóð skulu hafa hámarkshæð 3,5 metra frá gólfi og 4,0 metra frá jörðu. Almennt skal hæð frá gólfkóta að aðliggjandi landi ekki vera meiri en 0,5 metrar. Heimilt er að byggja kjallara undir húsi þar sem aðstæður gefa tilefni til, svo sem þar sem landhalli er til staðar. Einnig er heimilt að byggja geymsluhús eða gestahús allt að 40 fm innan nýtingarhlutfalls ofanjarðar. Að öðru leyti gilda skilmálar gildandi deiliskipulags. Athugasemdir bárust við grenndarkynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Fyrir fundinum liggur bréf, dagsett 13. mars 2026, þar sem mótmælt er fyrri ákvörðun sveitarstjórnar. Í bréfinu er meðal annars vísað til þess að málið hafi þegar farið í lögbundið ferli, þar á meðal grenndarkynningu. Við endurupptöku málsins lítur sveitarstjórn til þess að samkvæmt bókun 604. fundar eigi framangreind ákvörðun um synjanir ekki við um mál sem þegar hafa verið samþykkt til auglýsingar. Með vísan til framangreinds fellst sveitarstjórn á þau rök sem fram koma í bréfinu og afturkallar fyrri ákvörðun sína. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að halda áfram málsmeðferð deiliskipulagsbreytingarinnar á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagða deiliskipulagsbreytingu eftir grenndarkynningu og mælist til þess að hún taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda, í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gögnin verði send Skipulagsstofnun til varðveislu samkvæmt sömu lagagrein.
14. Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu fyrir árin 2026–2031.
Lögð er fram til samþykktar Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu auðkennisnúmer 09-03-2026 09:00. Áætlunin gildir til febrúar 2031.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu auðkennisnúmer 09-03-2026 09:00 sem gildir til febrúar 2031. Sveitarstjórn fagnar því að nú liggi fyrir ný Brunavarnaáætlun og vill þakka þeim sem unnu að áætluninni fyrir vel unnin störf.
15. Skipan fulltrúa á aðalfund Listasafns Árnesinga.
Fyrir fundinum liggur fundarboð vegna aðalfundar Listasafns Árnesinga sem haldinn verður í tengslum við vorfund Héraðsnefndar Árnesinga bs. í Rauða Húsinu á Eyrarbakka, miðvikudaginn 14. apríl 2026, kl. 11:20.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að Smári Bergmann Kolbeinsson verði fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfundi Listasafns Árnesinga, Ása Valdís Árnadóttir til vara. Áheyrnarfulltrúi á aðalfundinn er Ragnheiður Eggertsdóttir.
16. Skipan fulltrúa á aðalfund Héraðsskjalasafns Árnesinga.
Fyrir fundinum liggur fundarboð vegna aðalfundar Héraðsskjalasafns Árnesinga sem haldinn verður í tengslum við vorfund Héraðsnefndar Árnesinga bs. í Rauða Húsinu á Eyrarbakka, miðvikudaginn 14. apríl 2026, kl. 10:40.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að Smári Bergmann Kolbeinsson verði fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfundi Héraðsskjalasafns Árnesinga, Ása Valdís Árnadóttir til vara. Áheyrnarfulltrúi á aðalfundinn er Ragnheiður Eggertsdóttir.
17. Skipan fulltrúa á aðalfund Byggðasafns Árnesinga.
Fyrir fundinum liggur fundarboð vegna aðalfundar Byggðasafns Árnesinga sem haldinn verður í tengslum við vorfund Héraðsnefndar Árnesinga bs. í Rauða Húsinu á Eyrarbakka, miðvikudaginn 14. apríl 2026, kl. 10:00.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að Smári Bergmann Kolbeinsson verði fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfundi Byggðasafns Árnesinga, Ása Valdís Árnadóttir til vara. Áheyrnarfulltrúi á aðalfundinn er Ragnheiður Eggertsdóttir.
18. Samráðsfundur/vinnustofa um endurskoðun byggðaáætlunar.
Fyrir fundinum liggur fundarboð dagsett 31. mars 2026, frá Innviðaráðuneytinu og Byggðastofnun, í samstarfi við SASS. Boða er til samráðsfundar/vinnustofu um endurskoðun byggðaáætlunar sem haldinn verður 21. apríl á Teams milli 13:00 og 14:30. Óskað er eftir að sveitarfélögin sendi að minnsta kosti tvo fulltrúa á fundinn til þess að taka þátt í þessar vinnu. Einnig er mikilvægt að fulltrúar ungmennaráða sveitarfélaganna taki þátt í fundinum.
Sveitarstjón samþykkir samhljóða að sveitarstjóri og vara oddviti verði fulltrúar sveitarfélagsins á fundinum.
19. Ársreikningur og ársskýrsla Hestamannafélagsins Jökuls 2025.
Lögð er fram til kynningar ársskýrsla og ársreikningur Hestamannafélagsins Jökuls fyrir árið 2025.
20. Ársreikningur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. 2025.
Lagður fram til kynningar ársreikningur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. fyrir árið 2025.
21. Ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs. 2025.
Lagður fram til kynningar ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs. fyrir árið 2025.
22. Ársreikningur Sorpstöðvar Suðurlands bs. 2025.
Lagður fram til kynningar ársreikningur Sorpstöðvar Suðurlands bs. fyrir árið 2025.
23. Ársreikningur Brunavarna Árnessýslu 2025.
Lagður fram til kynningar ársreikningur Brunavarna Árnessýslu fyrir árið 2025.
24. Ársreikningur Almannavarna Árnessýslu 2025.
Lagður fram til kynningar ársreikningur Almannavarna Árnessýslu fyrir árið 2025.
25. Ársreikningur Tónlistarskóla Árnesinga 2025.
Lagður fram til kynningar ársreikningur Tónlistarskóla Árnesinga fyrir árið 2025.
26. Ársreikningur Listasafns Árnesinga 2025.
Lagður fram til kynningar ársreikningur Listasafns Árnesinga fyrir árið 2025.
27. Ársreikningur og ársskýrsla Byggðasafns Árnesinga 2025.
Lögð er fram til kynningar ársreikningur og ársskýrsla Byggðasafns Árnesinga 2025.
28. Ársreikningur Bergrisans bs. 2025.
Lagður fram til kynningar ársreikningur Bergrisans bs. fyrir árið 2025.
29. Ársreikningur Arnardrangs hses. 2025.
Lagður fram til kynningar ársreikningur Arnardrangs hses. fyrir árið 2025.
30. Ársreikningur Héraðsskjalasafns Árnesinga 2025.
Lagður fram til kynningar ársreikningur Héraðsskjalasafns Árnesinga fyrir árið 2025.
31. Aðalfundur Háskólafélags Suðurlands ehf. 2026.
Fyrir fundinum liggur fundarboð á aðalfund Háskólafélags Suðurlands ehf. 2026, sem haldin verður mánudaginn 4. maí 2026.
Sveitarstjórn felur Fjólu Steindóru Kristinsdóttur að sækja fundinn fyrir hönd Grímsnes- og Grafningshrepps.
32. Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands 2026.
Fyrir fundinum liggur fundarboð á aðalfund Markaðsstofu Suðurlands 2026, sem haldinn verður fimmtudaginn 7. maí 2026 í Akóges salnum í Vestmannaeyjum.
Fundarboð á aðalfund Markaðsstofu Suðurlands lagt fram til kynningar.
33. Þátttökuboð í Sveitarfélagi ársins 2026.
Fyrir liggur boð á þátttöku í könnuninni Sveitarfélag ársins 2026 fyrir allt starfsfólk sveitarfélagsins. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að taka þátt í könnuninni Sveitarfélag ársins 2026.
34. Boð um þátttöku í verkefninu tengingu Jónsbókar við skjalakerfi.
Fyrir sveitarstjórn liggur boð frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um þátttöku í verkefninu "Jónsbók - tenging við skjalakerfi". Jónsbók er gervigreindarlausn sem er sérstaklega hönnuð fyrir íslenska lögfræðinga (https://jonsbok.ai/is). Í þessum hluta er sveitarfélögum boðið að taka þátt í að gera greiningu á verkefninu.
Sveitarstjórn sér sér ekki fært að koma að málinu á þessu stigi verkefnisins en lýsir áhuga á að koma að málinu á síðari stigum.
35. Jafnvægisvog FKA.
Fyrir liggur bréf frá FKA (Félagi kvenna í atvinnulífinu) dagsett 7. apríl 2026, þar sem Grímsnes- og Grafningshreppi er boðin þátttaka í verkefninu Jafnvægisvog FKA, sem er stefnumótandi tækifæri til að mæla og bæta jafnvægi í stjórnunar- og áhrifastöðum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða þátttöku í Jafnvægisvog FKA og felur sveitarstjóra að skrá sveitarfélagið í verkefnið. Þess má geta að sveitarfélagið hefur sýnt jafnréttismálum áhuga í gegnum tíðina, meðal annars með því að samþykkja jafnréttisáætlun og jafnlaunastefnu fyrir Grímsnes- og Grafningshrepp sem gildir frá 2023 til 2027.
36. Boð um þátttöku í Raddir ungs fólks.
Fyrir fundinum liggur boð um þátttöku á svæðisbundnum samráðsfundi um raddir ungs fólks. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 24. apríl 2026 kl. 13:00 – 15:00 í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Markmið fundarins er að búa til opinn og skipulagðan vettvang fyrir ungt fólk á aldrinum 15–25 ára og veita þeim tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum, reynslu og hugmyndum á framfæri við ráðafólk í íþrótta- og æskulýðsstarfi ásamt fulltrúum sveitarfélaga. Fundurinn er hluti af landsverkefni UMFÍ, ÍSÍ,
Svæðisstöðva íþróttahéraðanna og Ungmennaráði UMFÍ og miðar að því að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks en sporna líka gegn brottfalli úr skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Sveitarstjórn hvetur alla fulltrúa ungmennaráðs Grímsnes- og Grafningshrepps að taka þátt í svæðisbundnum samtalsfundi á Suðurlandi þann 24. apríl 2026. Sveitarstjórn samþykkir jafnramt að keyra fulltrúa ungmennaráðs frá Borg á fundinn og aftur á Borg ásamt því að greiða fulltrúum fyrir þátttöku í fundinum líkt og um formlegan fund ungmennaráðs væri að ræða.
37. Stefna um opinbera þjónustu.
Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dagsett 27. mars 2026, varðandi stefnu um opinbera þjónustu. Þar hvetur Samband íslenskra sveitarfélaga sveitarfélög til að senda Sambandinu ábendingar um stefnuna og ábendingar um mögulegar aðgerðir vegna aðgerðaráætlunar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að senda inn ábendingar út frá umræðum á fundinum.
38. Opinber innkaup.
Erindi Samkeppniseftirlitsins, dagsett 26. mars 2026, varðandi samkeppni og hið opinbera.
Lagt fram til kynningar.
39. Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands.
Fyrir fundinum liggur ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands (SÍ), samþykkt á fundi í Hafnarfirði þann 28. mars 2026, þar sem lýst er yfir þungum áhyggjum og mótmælt fyrirhugaðri breytingu meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á viðmiðum um tilkynningarskyldu skógræktar (157. löggjafarþing, mál 265, þskj. 949). Í nefndaráliti er lagt til að mörk tilkynningarskyldu verði lækkuð úr 200 niður í 100 hektara. Skógræktarfélag Íslands telur þessa breytingu skref aftur á bak í viðleitni til að efla skógrækt og landgæði á Íslandi og bendir á neikvæð áhrif á loftslagsmarkmið, líffræðilega fjölbreytni, efnahag skógræktenda og sjálfbærni þjóðarinnar. Ályktunin er send á fjölmiða, alþingismenn og sveitarfélög.
Ályktunin lögð fram til kynningar
40. Breyting á lögum um heilbrigðiseftirlit.
Bréf frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, dagsett 19. mars 2026, með upplýsingum um áhrif breytinga á fyrirkomulag heilbrigðiseftirlita.
Lagt fram til kynningar.
41. Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar mál nr. 568, stofnun atvinnuvega.
Fyrir liggur beiðni Atvinnuveganefndar Alþingis um umsögn á máli nr. 568, stofnun atvinnuvega.
Erindið lagt fram til kynningar.
42. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar mál nr. 582, einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits).
Erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dagsett 30.mars 2026, þar sem sent er til umsagnar 582. mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits).
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps þakkar fyrir tækifærið til að koma á framfæri umsögn um framangreint frumvarp sem nú er til meðferðar á Alþingi.
Sveitarstjórn hefur áður fjallað um áform stjórnvalda um breytingar á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og vísar til fyrri bókana sinna í því samhengi. Þrátt fyrir að frumvarpið hafi nú verið lagt fram telur sveitarstjórn að enn séu uppi veruleg álitaefni sem nauðsynlegt er að taka afstöðu til áður en málið hlýtur endanlega afgreiðslu.
Meginefni frumvarpsins felur í sér grundvallarbreytingu á skipulagi eftirlits, þar sem gert er ráð fyrir að verkefni heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga, þar á meðal útgáfa starfsleyfa og framkvæmd eftirlits, færist til ríkisins. Um er að ræða umfangsmikla breytingu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga sem hefur bæði stjórnsýsluleg, fagleg og fjárhagsleg áhrif.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að ekki hafi verið sýnt fram á með fullnægjandi hætti að fyrirhugaðar breytingar muni leiða til þeirrar einföldunar og skilvirkni sem að er stefnt. Þvert á móti bendir margt til þess að breytingarnar geti haft í för með sér fjarlægari stjórnsýslu og veikingu á þeirri staðbundnu þekkingu og tengslaneti sem núverandi fyrirkomulag byggir á. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hefur í gegnum tíðina þróað náið samstarf við stofnanir, fyrirtæki og íbúa á sínu svæði, sem hefur reynst sérstaklega mikilvægt þegar bregðast þarf hratt við aðstæðum sem varða lýðheilsu, umhverfi og öryggi.
Sveitarstjórn telur að óljóst sé hvernig tryggja eigi að sambærileg þekking, aðgengi og viðbragðsgeta verði til staðar innan miðlægrar stjórnsýslu. Þá eru einnig ósvöruð atriði varðandi verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga að breytingum loknum, sem og hvernig samspil við önnur lögbundin verkefni sveitarfélaga, svo sem á sviði skipulagsmála, umhverfismála og þjónustu við íbúa, verði tryggt.
Sérstök ástæða er til að vekja athygli á fjárhagslegum áhrifum frumvarpsins. Sveitarstjórn leggur ríka áherslu á að breytingar á verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga verði ekki til þess að kostnaður falli á sveitarfélögin án fullnægjandi fjármögnunar. Mikilvægt er að skýrt liggi fyrir hvernig fjármunir, sem í dag renna til framkvæmdar eftirlits á sveitarstjórnarstigi, muni fylgja verkefnum til ríkisins og að ekki verði til nýr kostnaður eða óhagræði fyrir sveitarfélög.
Í ljósi þess að frumvarpið er nú til meðferðar á Alþingi telur sveitarstjórn mikilvægt að eftirfarandi atriði verði tekin sérstaklega til skoðunar við þinglega meðferð málsins:
-Að gerð verði skýrari grein fyrir áhrifum frumvarpsins á sveitarfélög, bæði faglega og fjárhagslega.
-Að tryggt verði í lögum eða með skýrum hætti í framkvæmd að breytingarnar leiði ekki til kostnaðarauka fyrir sveitarfélög.
-Að kveðið verði skýrar á um hlutverk sveitarfélaga eftir gildistöku laganna og hvernig samstarfi þeirra við ríkisstofnanir verði háttað.
-Að tryggt verði að nýtt fyrirkomulag viðhaldi eða bæti viðbragðsgetu og aðgengi að eftirliti um land allt, þar á meðal á landsbyggðinni.
-Að innleiðing breytinganna verði áfangaskipt og studd raunhæfri áætlun um uppbyggingu kerfa, mannafla og þekkingar innan ríkisstofnana.
-Að áfram verði unnið í nánu samráði við sveitarfélög, Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra hagaðila áður en endanleg afgreiðsla fer fram.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að markmið um einföldun og aukna skilvirkni í stjórnsýslu eru mikilvæg og réttmætt, en telur að ekki sé nægjanlega sýnt fram á að þær leiðir sem lagðar eru til í frumvarpinu nái þeim markmiðum án þess að skerða þá þjónustu og það öryggi sem núverandi kerfi veitir.
Að framangreindu virtu telur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps nauðsynlegt að frekari vinna fari fram við málið á vettvangi Alþingis og í samráði við sveitarfélög áður en frumvarpið verður samþykkt.
43. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 65/2026, „Reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna“.
Fyrir fundinum liggur kynning Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins á samráðsmáli nr. 65/2026, „Reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna".
Erindið lagt fram til kynningar.
44. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar mál nr. 565, verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur).
Fyrir fundinum liggur beiðni Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um umsögn á máli nr. 565, verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur).
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshreppur tekur undir umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur), þskj. 955 – 565. mál .
Sveitarstjórn leggur sérstaka áherslu á mikilvægi þess að skipulagsvald sveitarfélaga sé virt sem einn af hornsteinum sjálfstjórnarréttar þeirra. Sveitarstjórn telur óásættanlegt að horfið hafi verið frá þeirri leið sem kynnt var í samráðsdrögum, þar sem gert var ráð fyrir að niðurstaða rammaáætlunar um vindorku yrði ekki bindandi gagnvart skipulagsvaldi sveitarfélaga.
Sveitarstjórn tekur jafnframt undir þær ábendingar að tryggja þurfi að sveitarfélög hafi raunverulegt forræði yfir skipulagi lands innan sinna marka, að aðlögun skipulagsáætlana skuli einungis taka til virkjunarkosta í nýtingar- og verndarflokki, en ekki biðflokki og að tryggja þurfi skýrara, formlegra og tímanlegra samráð við sveitarfélög frá upphafi og í gegnum alla málsmeðferð virkjunarhugmynda.
Sveitarstjórn telur mikilvægt að frumvarpið verði endurskoðað í samræmi við framangreind sjónarmið og væntir þess að tekið verði tillit til athugasemda sveitarfélaga við frekari meðferð málsins á Alþingi.
45. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II – H-frístundahús, fyrir Skógarholt 1, fnr. 2207284, 805 Selfossi.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi dagsett 26. mars 2026, um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H-frístundahús, að Skógarholt 1, fnr. 2207284, 805 Selfossi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að leggjast gegn útgáfu rekstrarleyfis á grundvelli laga nr. 85/2007 í flokki II, að Skógarholti 1, fnr. 2027284 á þeim grundvelli að leyfisveitingin samræmist ekki heimildum gildandi deiliskipulags svæðisins. Sveitarstjórn bendir á að heimildir aðalskipulags Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 gera ráð fyrir að gististarfsemi geti verið á frístundasvæðum. Þó er gerð krafa um að gististarfsemi sé skilgreind í skilmálum gildandi deiliskipulags. Heimildir fyrir gististarfsemi innan deiliskipulags eru háðar því að fjöldi bílastæða innan lóðar sé fullnægjandi og að enginn lóðarhafi innan deiliskipulagssvæðisins leggist gegn starfseminni við breytingu á deiliskipulagi eða við gerð nýs deiliskipulags.
46. Heimsókn frá Orkuveitunni.
Fulltrúar Orkuveitunni Harpa Pétursdóttir, Hera Grímsdóttir og Sigurður Markússon koma á fund sveitarstjórnar og kynna IDDP-3 verkefnið (Iceland Deep Drilling Project).
Sveitarstjórn þakkar fulltrúum Orkuveitunnar fyrir kynninguna.
Sveitarstjórn ræddi jafnframt ályktun íbúafundar með landeigendum í Grafningi frá 25. febrúar 2026, þar sem skorað er á Orkuveitu Reykjavíkur að taka þátt í fjármögnun jarðhitaleitar í Grafningi. Fram kom frá fulltrúum Orkuveitunnar að búið er að boða til vinnustofu Orkuveitunnar, Veitna og ON um möguleika til frekari samstarfs við sveitarfélagið um uppbyggingu og verðmætasköpunar innan sveitarfélagsins. Mikill vilji er innan samsteypunnar um að finna lausnir sem henta báðum aðilum.
Sveitarstjórn leggur ríka áherslu á að við frekari nýtingu jarðhitaauðlinda og annarra náttúruauðlinda innan marka sveitarfélagsins verði tryggt að nærsamfélagið njóti raunverulegs ávinnings af nýtingunni. Núverandi staða, þar sem nær öll orka sem unnin er innan sveitarfélagsins er flutt út af svæðinu án sambærilegs ávinnings fyrir heimabyggð, er ekki ásættanleg til framtíðar.
47. Önnur mál.
a) Skipan fulltrúa á aðalfund Brunavarna Árnessýslu bs.
Fyrir fundinum liggur fundarboð vegna aðalfundar Brunavarna Árnessýslu sem haldinn verður í tengslum við vorfund Héraðsnefndar Árnesinga bs. í Rauða Húsinu á Eyrarbakka, miðvikudaginn 14. apríl 2026, kl. 14:00.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að Smári Bergmann Kolbeinsson verði fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfundi Byggðasafns Árnesinga, Ása Valdís Árnadóttir til vara. Áheyrnarfulltrúi á aðalfundinn er Ragnheiður Eggertsdóttir.
b) Skipan fulltrúa á aðalfund Tónlistarskóla Árnessýslu bs.
Fyrir fundinum liggur fundarboð vegna aðalfundar Tónlistarskóla Árnessýslu bs. sem haldinn verður í tengslum við vorfund Héraðsnefndar Árnesinga bs. í Rauða Húsinu á Eyrarbakka, miðvikudaginn 14. apríl 2026, kl. 13:00.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að Smári Bergmann Kolbeinsson verði fulltrúi sveitarfélagsins á aðalfundi Byggðasafns Árnesinga, Ása Valdís Árnadóttir til vara. Áheyrnarfulltrúi á aðalfundinn er Ragnheiður Eggertsdóttir.


Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið kl. 11:55.

Skjöl

Getum við bætt efni þessarar síðu?