Fara í efni

Sveitarstjórn

620. fundur 19. ágúst 2026 kl. 14:00 - 16:24 Stjórnsýsluhúsinu Borg
Sveitarstjórn
  • Guðmundur Finnbogason
  • Rebekka Lind Guðmundsdóttir
  • Andrés Bertelsen
  • Bergur Guðmundsson
  • Ragnheiður Eggertsdóttir
  • Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Fjóla Steindóra Kristinsdóttir.

Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Fjóla Steindóra Kristinsdóttir.Guðmundur Finnbogason oddviti setti fund, bauð fundargesti velkomna og leitaði athugasemda við fundarboð, engar athugasemdir voru við boðun fundarins.

Oddviti leitar afbrigða.
Samþykkt samhljóða.
a) Skipan fulltrúa í kjörstjórn 2026–2030.

1. Fundargerðir.
a) Fundargerð 330. fundar skipulagsnefndar UTU, 14. ágúst 2026.
Mál nr. 10, 11, 12, 13, 14, 15 og 16 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 330. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 14. ágúst 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 10; Kjalbraut 11 L169789; Byggingarmagn aukið; Deiliskipulagsbreyting – 2607009.
Lögð er fram umsókn sem tekur til breytinga á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðar við Efri-Markarbraut, Birkibraut, Kjarrbraut og Kjalbraut í Vaðnesi. Í breytingunni felst að heimilt er að reisa frístundahús, aukahús allt að 40 m2 og geymslu allt að 25 m2 innan Kjalbrautar 11 L169789. Hámarks nýtingarhlutfall lóðar helst óbreytt.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins, að því gefnu að skilmálabreytingin nái til alls skipulagssvæðisins en ekki einungis Kjalbrautar 11. Málið fær málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Mál nr. 11; Norðurbyggð 12 L219571; Útveggir hækkaðir; Deiliskipulagsbreyting – 2608010.
Lögð er fram umsókn sem tekur til breytinga á skilmálum deiliskipulags fyrir frístundasvæðið Krókur. Í breytingunni felst að mesta leyfilega vegghæð frístundahúsa er breytt úr 2,5 m í 4,1 m.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins og að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Mál nr. 12; Kerhraun E-Hluti L204193; Byggingarheimildir rýmkaðar; Deiliskipulagsbreyting - 2608011.
Lögð er fram umsókn sem tekur til breytinga á skilmálum deiliskipulags fyrir frístundasvæðið Kerhraun E-svæði, L204193. Í breytingunni felst rýmkun á byggingarheimildum á svæðinu. Byggingarmagn á lóðinni verður samtals 250m2.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins og að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Mál nr. 13; Álftavatn 7 L168312 í landi Ásgarðs; Skilmálabreyting; Deiliskipulagsbreyting - 2604014.
Lögð er fram umsókn, eftir grenndarkynningu, sem tekur til breytinga á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðar í landi Ásgarðs í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst að hámarksstærð aukahúsa verður felld út. Athugasemdir bárust við grenndarkynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu málsins vegna athugasemda sem bárust. Hönnuður er beðinn um að bregðast við athugasemdum. Uppfærð tillaga verður grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 14; Sogsvegur 30 L169553 í Norðurkotslandi; Stækkun lóðar; Deiliskipulagsbreyting – 2605020.
Lögð er fram, eftir grenndarkynningu, tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Sogsvegar 30, L169553 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst að stærð og lega lóðarinnar breytist í samræmi við merkjalýsingu. Athugasemdir bárust við grenndarkynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps synjar samhljóða framlagðri breytingu á deiliskipulagi svæðisins vegna fjölda athugasemda sem bárust á kynningartíma.
Mál nr. 15; Stóri-Háls L170827; Úr landbúnaðarsvæði í skógræktarsvæði; Aðalskipulagsbreyting - 2601057.
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Með breytingunni verður sett inn nýtt skógræktar- og landgræðslusvæði á Stóra-Hálsi (L170827) og heimiluð skógrækt á allt að 100 ha. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að umsögn Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar verði svarað og skipulagsgögn uppfærð í samræmi við framkomnar ábendingar.
Mál nr. 16; Kvíanes L239311; Efri-Brú Kvíanes 4 L238165; Frístundabyggð; Deiliskipulag - 2510070
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags fyrir Efri-Brú Kvíanes L191871 og Efri-Brú Kvíanes 4 L238165 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir frístundabyggð fyrir samtals 14 lóðum.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggja fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
b) Fundargerð 256. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands, 27. júlí 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
c) Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga, 5. ágúst 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
d) Fundargerð aukaaðalfundar Listasafns Árnesinga bs., 29. júní 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
e) Fundargerð aukaaðalfundar Tónlistarskóla Árnesinga bs., 29. júní 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
f) Fundargerð aukaaðalfundar Héraðsskjalasafns Árnesinga, 29. júní 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
g) Fundargerð aukaaðalfundar Byggðasafns Árnesinga bs., 29. júní 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
h) Fundargerð aukaaðalfundar Brunavarna Árnessýslu bs., 29. júní 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
i) Fundargerð aukaaðalfundar Héraðsnefndar Árnesinga bs., 29. júní 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
j) Fundargerð 3. fundar Farsældarráðs Suðurlands, 27. maí 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
k) Fundargerð aukaaðalfundar ásamt samþykktum Samtaka orkusveitarfélaga, 2. mars 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
l) Fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa.
Lagðar eru fram til kynningar fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa, dags. 8. júlí 2026, nr. 26-257, og dags. 15. júlí 2026, nr. 26-258.
2. Úrskurður í máli nr. MRN26030073.
Lagður er fram til kynningar úrskurður í máli nr. MRN26030073.
Lögmaður sveitarfélagsins, Óskar Sigurðsson hrl. kom inn á fundinn undir þessum lið og fór yfir mál 2 og 3, auk þess sem hann svaraði spurningum sveitarstjórnarfólks.

Bókun Ö-lista vegna skólaaksturs barna með ótilgreint lögheimili;
Ö-listinn telur mikilvægt að öll börn sem búa í Grímsnes- og Grafningshreppi og stunda nám við Kerhólsskóla njóti eins jafnræðis og kostur er þegar kemur að aðgengi að skóla og skólaakstri.
Núverandi fyrirkomulag leiðir til þess að börn sem hafa lögheimili skráð ótilgreint innan sveitarfélagsins njóta ekki sama aðgangs að skólaakstri og önnur börn, þrátt fyrir að búa í sveitarfélaginu og sækja sama skóla. Að mati Ö-listans er mikilvægt að leita leiða til að draga úr þessari mismunun í framkvæmd.
Börn eiga ekki að þurfa að bera afleiðingar af því hvernig lögheimili þeirra er skráð.
Ö-listinn leggur því til að sveitarstjórn bjóði foreldrum og forráðamönnum þeirra barna sem málið varðar til fundar hið fyrsta, með það að markmiði að fara yfir stöðuna og leita sameiginlega að raunhæfum, öruggum og kostnaðarlega skynsamlegum lausnum.
Meðal þeirra leiða sem skoðaðar verði er að foreldrar geti komið börnum sínum á fyrirfram ákveðna viðkomustaði á núverandi akstursleiðum skólabíla eða að börnin verði sótt við skilgreinda afleggjara eða safnstaði, líkt og tíðkast hefur áður.
Markmiðið á ekki að vera að flækja skólaakstur eða leggja óhóflegan kostnað á sveitarfélagið. Markmiðið er að finna sanngjarna lausn sem nýtir það kerfi sem þegar er til staðar og tryggir um leið að aðstæður barnanna verði eins jafnar og mögulegt er.
Ö-listinn telur að í máli sem þessu eigi fyrsta skref sveitarfélagsins að vera samtal og lausnaleit, en ekki útilokun.
Ö-listinn óskar eftir að sveitarstjórn samþykki að boðað verði til fundar með foreldrum og forráðamönnum þeirra barna sem málið varðar og að í framhaldinu verði lagðar fyrir sveitarstjórn tillögur að útfærslu skólaaksturs fyrir þennan hóp.
Andrés Bertelsen

Bókun meirihluta vegna skólaaksturs barna með ótilgreint lögheimili;
Úrskurður Mennta- og barnamálaráðuneytisins er mjög skýr. Meirihluti sveitarstjórnar tekur undir úrskurðinn. Þar segir meðal annars að:
„Þá telur ráðuneytið að ákvörðunin feli ekki í sér ólögmæta mismunun enda eru börn sem dvelja í frístundabyggð og börn sem dvelja á svæðum sem skipulögð eru til fastrar búsetu ekki að öllu leyti í sambærilegri stöðu með tilliti til skipulags skólaaksturs. Þá liggur fyrir að sveitarfélagið hefur ekki samþykkt skólaakstur inn í skipulagðar frístundabyggðir og verður ekki séð af gögnum málsins að barn kæranda hafi sætt annarri meðferð en aðrir í sambærilegri stöðu. Sjónarmið um það sem barni er fyrir bestu ber jafnframt að leggja til grundvallar við úrlausn málsins. Það eitt og sér getur þó ekki stofnað til réttar til tiltekinnar þjónustu ef skilyrði laga eru ekki uppfyllt eða ef málefnaleg sjónarmið, svo sem um öryggi, umhverfisaðstæður og skipulag skólaaksturs, mæla gegn þeirri tilhögun sem óskað er eftir.“
„Af þessu leiðir að löggjafinn hefur með skýrum hætti sett takmarkanir með lögum gagnvart þeim sem halda heimili í frístundabyggð“
„Fæst því ekki annað séð en að fyrirkomulag sveitarfélagsins á skólaakstri byggi á málefnalegum sjónarmiðum og sé innan þess lagaramma sem gildir um skólastarf og skólaakstur“.
Ráðuneytið kemst því að þeirri niðurstöðu að sveitarfélagið sé ekki að mismuna börnum í sveitarfélaginu.
Afar mikilvægt er að einstök mál barna og fjölskyldna fái faglega meðferð á vegum skóla- og velferðarþjónustu og það sé ekki verkefni kjörinna fulltrúa að hlutast til um einstök mál. Enda er bent á það í úrskurði ráðuneytisins:
„Fyrir liggur að barnið nýtur skólavistar í sveitarfélaginu og af gögnum málsins má ráða að aðstæður kæranda og barns kæranda séu til skoðunar hjá sveitarfélaginu. Í því samhengi telur ráðuneytið rétt að taka fram að synjun um skólaakstur útilokar ekki að kærandi geti leitað eftir annars konar stuðningi á grundvelli annarra laga, svo sem laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Hægt er að leita til sveitarfélagsins um leiðbeiningar um hvaða úrræði eða stuðningur standi til boða vegna aðstæðna kæranda og barns hans.“
Fulltrúar meirihlutans telja því ekki rétt að kjörnir fulltrúar eigi fundi um einstök mál barna eða fjölskyldna þeirra heldur sé þeim málum vísað til skóla- og velferðarþjónustunnar til umfjöllunar þegar við á .
Fulltrúar meirihlutans hafa hug á að rýna skólaakstur sveitarfélagsins og mun sú vinna fara af stað á næstu mánuðum.
Meirihluti sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps
3. Úrskurður í máli nr. UUA2603014.
Lagður er fram til kynningar úrskurður í máli nr. UUA2603014.
Lögmaður sveitarfélagsins, Óskar Sigurðsson hrl. víkur af fundi.
4. Samningur um sorphirðu – framlenging.
Fyrir fundinum liggur tillaga um að nýta framlengingarákvæði núverandi samnings við Íslenska gámafélagið um sorphirðu og framlengja samninginn um eitt ár, eða til 30. september 2027.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að framlengja samninginn við Íslenska gámafélagið um eitt ár í samræmi við samningsskilmála og felur sveitarstjóra að skrifa undir samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.
5. Útboð sorphirðu 2027.
Lögð er fram tillaga um að hefja undirbúning að útboði á sorphirðu í Grímsnes- og Grafningshreppi. Stefnt verði að því að útboð verði auglýst fyrir árslok.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að hefja undirbúning að útboði á sorphirðu í Grímsnes- og Grafningshreppi. Stefnt verði að því að útboð verði auglýst fyrir árslok.
6. Stofnsamningur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. – síðari umræða.
Tillaga að breytingum á stofnsamningi SVÁ, síðari umræða.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða breytingar á stofnsamningi Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.
7. Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árin 2027–2031.
Lagt fram til kynningar minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027–2031, dagsett 12. júní 2026.
8. Endurskoðuð persónuverndarstefna Grímsnes- og Grafningshrepps.
Lögð er fram endurskoðuð persónuverndarstefna Grímsnes- og Grafningshrepps frá persónuverndarfulltrúa sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða endurskoðaða persónuverndarstefnu Grímsnes- og Grafningshrepps.
9. Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga – fundarboð.
Lagt er fram fundarboð vegna aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður föstudaginn 21. ágúst 2026.
Sveitarstjórn samþykkir að Guðmundur Finnbogason oddviti, Rebekka Lind Guðmundsdóttir varaoddviti og Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri sæki aðalfundinn fyrir hönd Grímsnes- og Grafningshrepps. Rebekka Lind Guðmundsdóttir fer með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á fundinum.
10. Bréf frá Heilbrigðisnefnd Suðurlands – breytingar á lögum um heilbrigðiseftirlit o.fl.
Lögð er fram bókun Heilbrigðisnefndar Suðurlands, dagsett 27. júlí 2026, varðandi breytingar sem verða á verkefnum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga 1. janúar 2027 og hvaða áhrif þær kunna að hafa á starfsemi, þekkingargrunn og sameiginlega hagsmuni sveitarfélaganna á Suðurlandi.
Sveitarstjórn tekur undir með Heilbrigðisnefnd Suðurlands um að nauðsynlegt sé að sveitarfélögin taki afstöðu til þess hvernig haldið verði utan um þau verkefni sem áfram verða hjá sveitarfélögum eftir breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits sem taka gildi 1. janúar 2027. Margt er enn óljóst varðandi flutning verkefna, hvaða verkefni verða áfram hjá sveitarfélögunum og hvaða kostnaður mun falla á þau. Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps telur rétt að kanna áfram sameiginlegar lausnir sveitarfélaga á Suðurlandi en leggur áherslu á að endanlegar tillögur verði ítarlega ræddar af hálfu forsvarsmanna sveitarfélaganna áður en ákvörðun verður tekin um fyrirkomulag verkefnanna.
11. Fýsileikakönnun um samþættan sérakstur og almenningssamgöngur í Árnessýslu.
Lögð er fram fýsileikakönnun Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga um samþættan sérakstur og almenningssamgöngur í Árnessýslu.
Sveitarstjórn fagnar þeirri vinnu sem fram hefur farið og telur mikilvægt að áfram verði unnið að því að skoða möguleika á samþættingu séraksturs og almenningssamgangna í Árnessýslu. Sérstaklega verði horft til þarfa barna og ungmenna, eldri borgara og íbúa í dreifbýli.
12. Erindi til sveitarstjórnar – Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni.
Lagt er fram erindi frá Útilífsmiðstöð skáta að Úlfljótsvatni þar sem óskað er eftir niðurfellingu fasteignagjalda.
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og vísar því til fjárhagsáætlunargerðar vegna ársins 2027 og felur jafnframt sveitarstjóra að vinna að mótun reglna um mögulega lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts vegna starfsemi félagasamtaka sem ekki eru rekin í ágóðaskyni, svo sem menningar-, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi og mannúðarstörf. Jafnframt verði reglurnar lagðar fyrir sveitarstjórn áður en afstaða verður tekin til einstakra erinda af þessu tagi.
13. Samtök um dýravelferð – hvatning um að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi.
Lagt er fram til kynningar erindi frá Samtökum um dýravelferð, dagsett 6. ágúst 2026, þar sem sveitarfélög eru hvött til að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi.
14. Erindisbréf fjallskilanefndar.
Fyrir liggja drög að erindisbréfi fjallskilanefndar Grímsnes- og Grafningshrepps. Nefndin var skipuð á 617. fundi sveitarstjórnar þann 3. júní 2026.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi erindisbréf.
15. Endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga – grænbók.
Lagt er fram erindi frá innviðaráðuneytinu, dagsett 6. júlí 2026, vegna endurskoðunar stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga. Í erindinu kemur fram að fyrsta skref vinnunnar sé gerð grænbókar um málefnið og að sveitarfélögum hafi verið sendur spurningalisti vegna verkefnisins.
Sveitarstjórn felur oddvita og sveitarstjóra að svara framkomnum spurningum.
16. Umhverfis- og orkustofnun – upplýsingar um nýjar framkvæmdir og sjálfbær umsvif í vatnaáætlun 2028–2033.
Lagt er fram erindi frá Umhverfis- og orkustofnun þar sem óskað er eftir upplýsingum um áætlanir um nýjar framkvæmdir, ný sjálfbær umsvif eða breytingar á vatnshlotum vegna vinnu við vatnaáætlun 2028–2033.
Sveitarstjórn vísar erindinu til deildarstjóra veitna til yfirferðar og úrvinnslu.
17. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna Grímsævintýra tónleika í Félagsheimilinu Borg, 805 Selfossi.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 22. júlí 2026, um umsögn vegna tækifærisleyfis fyrir tímabundið áfengisleyfi í Félagsheimilinu Borg, dagana 21. og 22. ágúst 2026.
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu á umsagnarbeiðninni, þar sem ekki voru gerðar athugasemdir við að leyfið yrði veitt.
18. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, C minna gistiheimili að Giljatungu 29, 805 Selfossi, fnr. F2343917.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 8. júlí 2026 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, C minna gistiheimili að Giljatungu 29, fnr. F2343917.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II, C minna gistiheimili að Giljatungu 29, fnr. F2343917 í Grímsnes- og Grafningshreppi.
19. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Langarima 5, 805 Selfossi, fnr. F2531053.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 9. júlí 2026 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Langarima 5, fnr. F2531053.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II til Aurora Rentals ehf. að Langarima 5, fnr. F2531053 í Grímsnes- og Grafningshreppi.
20. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Baulurima 12, 805 Selfossi, fnr. F2207750.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 16. júlí 2026 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Baulurima 12, fnr. F2207750.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að leggjast gegn útgáfu rekstrarleyfis á grundvelli laga nr. 85/2007 í flokki II, H frístundahús að Baulurima 12, fnr. F2207750 á þeim grundvelli að leyfisveitingin samræmist ekki heimildum gildandi skipulags svæðisins.
21. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Hlauphólum 2, 805 Selfossi, fnr. F2540105.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 22. júlí 2026 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Hlauphólum 2, fnr. F2540105.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að leggjast gegn útgáfu rekstrarleyfis á grundvelli laga nr. 85/2007 í flokki II, H frístundahús að Hlauphólum 2, fnr. F2540105, þar sem lokaúttekt hefur ekki farið fram.
22. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Hlauphólum 6, 805 Selfossi, fnr. F2542043.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 22. júlí 2026 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Hlauphólum 6, fnr. F2542043.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að leggjast gegn útgáfu rekstrarleyfis á grundvelli laga nr. 85/2007 í flokki II, H frístundahús að Hlauphólum 6, fnr. F2542043, þar sem lokaúttekt hefur ekki farið fram.
23. Ásgarður, breytt landnotkun, aðalskipulagsbreyting – misræmi í bókun.
Sveitarstjórn hefur borist erindi frá UTU þar sem gerð er athugasemd við orðalag bókunar sveitarstjórnar um eftirfarandi mál; Ásgarður; Breytt landnotkun; Aðalskipulagsbreyting – 2607013. Í erindinu er bent á misræmi í bókun sveitarstjórnar varðandi röð málsmeðferðar, þar sem fram kemur að málið verði sent Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til samþykktar áður en niðurstaða sveitarstjórnar verði kynnt. Með vísan til 2. mgr. 23. gr. stjórnsýslulaga leiðréttir sveitarstjórn hér með bókun sína þannig að rétt röð málsmeðferðar komi fram og hljómar afgreiðsla sveitarstjórnar eftir breytingu svo:
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða framlagða óverulega breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020–2032 og að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarstjórnar verður auglýst og málið sent Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til samþykktar.
24. Önnur mál.
Embla Ósk Ásgeirsdóttir hefur beðist lausnar frá kjörstjórn, sveitarstjórn tekur málið til umfjöllunar að nýju og skipar eftirtalda fulltrúa í kjörstjórn fyrir kjörtímabilið 2026–2030.
Formaður: Bragi Svavarsson
Aðalmenn:
Guðrún Bergmann Vilhjálmsdóttir
Valgeir Fridolf Backman
Varamenn:
Þóranna Lilja Snorradóttir
Ólafur Ingi Ólafsson
Skarphéðinn Rúnar Pétursson
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framangreinda skipun.

Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið klukkan: 16:24

Skjöl

Getum við bætt efni þessarar síðu?