Fara í efni

Sveitarstjórn

621. fundur 02. september 2026 kl. 14:00 - 16:02 Stjórnsýsluhúsinu Borg
Sveitarstjórn
  • Guðmundur Finnbogason
  • Rebekka Lind Guðmundsdóttir
  • Andrés Bertelsen
  • Bergur Guðmundsson
  • Ragnheiður Eggertsdóttir
  • Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri
Fundargerðin var færð í tölvu og hana ritaði Fjóla Steindóra Kristinsdóttir.

Guðmundur Finnbogason oddviti setti fund, bauð fundargesti velkomna og leitaði athugasemda við fundarboð, engar athugasemdir voru við boðun fundarins.

1. Fundargerðir.
a) Fundargerð 36. fundar Framkvæmda- og veitunefndar, 31. ágúst 2026.
Lögð er fram 36. fundargerð Framkvæmda- og veitunefndar, dagsett 31. ágúst 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 4; Kerhólsskóli – Breytingar á efri hæð.
Lögð eru fram gögn vegna breytinga á efri hæð Kerhólsskóla þar sem stjórnsýsla sveitarfélagsins var áður til húsa. Framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að verkið verði boðið út. Jafnframt er lagt til við sveitarstjórn að samþykkja að samið verði við Verkís vegna eftirlits og byggingastjórnar með verkinu samkvæmt framlögðum gögnum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að breytingar á efri hæð Kerhólsskóla, áður stjórnsýsla sveitarfélagsins, verði boðnar út. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að samið verði við Verkís vegna eftirlits og byggingastjórnar með verkinu.
Mál nr. 5; Hjóla- og göngustígar meðfram Biskupstungnabraut frá Borg í Grímsnesi að Kerinu.
Framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja samning milli sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar um fyrsta áfanga.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Framkvæmda- og veitunefndar, en gert er ráð fyrir fjármagni í verkefnið í gildandi fjárhagsáætlun ársins 2026. Sveitarstjóra er jafnframt falið að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Mál nr. 8;Tímabundin lausn á húsnæðismálum Frístundar í færanlega skrifstofueiningu.
Framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja að færanlegri skrifstofueiningu verði komið fyrir á bílastæðum við leikskóladeild Kerhólsskóla sem tímabundinni lausn á húsnæðisvanda Frístundar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu Framkvæmda- og veitunefndar um kaup á færanlegri skrifstofueiningu og að henni verði komið fyrir á bílastæðum við leikskóladeild Kerhólsskóla. Kostnaði vegna kaupanna rúmast innan fjárfestingaráætlunar 2026, vegna breytinga á Kerholsskóla.
b) Fundargerð 47. fundar Fjallskilanefndar, 29. júlí 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
c) Fundargerð 331. fundar skipulagsnefndar UTU, 26. ágúst 2026.
Mál nr. 9, 10, 11, 12, 13 og 14 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 331. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 26. ágúst 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 9; Berjaás 16 L234109; Færsla á innkeyrslu; Deiliskipulagsbreyting - 2608042
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Berjaáss 16 L234109. Í breytingunni felst að innkoma að lóðinni er færð af vesturhlið yfir á norðurhlið hennar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Mál nr. 10; Ljósafossskóli L168468; Skilmálabreyting; Aðalskipulagsbreyting -2403043
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032. Svæðið sem breytingin nær til er við Ljósafossskóla L168468. Með breytingunni felst heimild fyrir aukinni gististarfsemi og uppbyggingu á svæðinu. Samkvæmt núverandi skilmálum aðalskipulags er gert ráð fyrir gistingu fyrir allt að 30 manns á svæðinu. Innan breytingar er gert ráð fyrir gistingu fyrir allt að 100 manns. Gistingin getur verið í ýmiskonar húsum og tjöldum. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að óskað verði eftir því við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 11; Ljósafossskóli L168468; Fjölgun gistirýma; Deiliskipulag – 2403049.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til viðskipta- og þjónustulóðar Ljósafossskóla L168468. Í deiliskipulaginu felst heimild til frekari uppbyggingar gististarfsemi á svæðinu, þar á meðal fjölgun gistirýma og uppbygging nýrra gistieininga innan afmarkaðs byggingarreits.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fresta málinu þar til fullnægjandi gögn hafa borist.
Mál nr. 12; Selmýrarvegur 9 L168407; Skilmálabreyting; Fyrirspurn – 2608043.
Lögð er fram fyrirspurn er varðar Selmýrarveg 9 L168407. Í fyrirspurninni er óskað eftir afstöðu skipulagsnefndar til breytinga á skilmálum deiliskipulagsins úr 3% nýtingarhlutfalli í 5%. Þá er einnig óskað eftir að fella út skilmála um hámarksstærð aukahúsa á lóðinni.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps tekur undir bókun skipulagsnefndar að umræddar breytingar geti haft áhrif á yfirbragð, byggðamynstur og heildarskipulag svæðisins og kalli því á heildstætt mat á áhrifum þeirra gagnvart markmiðum og forsendum gildandi deiliskipulags. Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps tekur jákvætt í að fyrirspurnin verði skoðuð nánar, enda verði lögð fram formleg umsókn um breytingu á deiliskipulagi fyrir deiliskipulagssvæðið í heild sinni.
Mál nr. 13; Kiðjaberg lóð 101, L201981 og lóð 102, L215467; Breytt lóðarmörk; Deiliskipulagsbreyting – 2608049.
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til lóðarmarka Kiðjabergs lóðar 101, L201981 og lóðar 102, L215467. Í breytingunni felst að lóð 101 minnkar um 5.300 fm og lóð 102 stækkar um 5.300 fm.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að synja erindinu þar sem fyrirhuguð breyting á lóðarmörkum samræmist ekki skilmálum í aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 og lóðaskipan á deiliskipulagssvæðinu.
Mál nr. 14; Minni-Borg lóð B L198597; Bætt við lóð 12a; Deiliskipulagsbreyting – 2608059.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Minni-Borgar lóð B L198597. Í breytingunni felst að bætt er við einni nýrri lóð á skipulagssvæðið, lóð 12a. Lóðin er 1.400 fm að stærð.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
d) Fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa.
Lagðar eru fram til kynningar fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa, dags. 19. ágúst 2026, nr. 26-259, og dags. 26. ágúst 2026, nr. 26-260.
e) Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs., 25. ágúst 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Bókun Ö-lista – þjónusta SVÁ við íbúa með ótilgreint lögheimili
Ö-listi leggur til að sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykki að draga til baka ákvörðun stjórnar SVÁ frá 24. september 2025, sem sveitarstjórn vísaði til stjórnar SVÁ á fundi sínum 16. júní sl.
Jafnframt verði staðfest að Grímsnes- og Grafningshreppur samþykki að þjónusta SVÁ standi öllum íbúum sveitarfélagsins til boða, óháð búsetuformi eða skráningu lögheimilis.
Stjórn SVÁ hefur þegar samþykkt á fundi sínum 11. febrúar sl. að SVÁ muni veita þjónustu til allra barna og ungmenna yngri en 18 ára, óháð búsetuformi þeirra, en að þjónusta við aðra íbúa sem skráðir eru með ótilgreint lögheimili sé háð samþykki viðkomandi sveitarfélags.
Ö-listi telur mikilvægt að sveitarstjórn taki nú skýra afstöðu til málsins. Íbúar Grímsnes- og Grafningshrepps eiga að njóta þjónustu sveitarfélagsins á grundvelli jafnræðis og raunverulegrar búsetu og þjónustuþarfar. Skráningarform lögheimilis á ekki eitt og sér að leiða til þess að íbúar sem búa í sveitarfélaginu séu útilokaðir frá þjónustu sem öðrum íbúum stendur til boða.
Ö-listi leggur því til að sveitarstjórn samþykki eftirfarandi:
„Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir að draga til baka fyrri ákvörðun sína vegna þjónustu SVÁ og samþykkir að þjónusta SVÁ standi öllum íbúum Grímsnes- og Grafningshrepps til boða, þar með talið þeim sem skráðir eru með ótilgreint lögheimili í hús, með sama hætti og öðrum íbúum sveitarfélagsins. Sveitarstjóra er falið að tilkynna stjórn SVÁ um ákvörðun sveitarstjórnar og vinna að framkvæmd hennar.“
Með þessari ákvörðun tekur sveitarstjórn skýra afstöðu með jafnræði í þjónustu og því grundvallarsjónarmiði að allir íbúar sveitarfélagsins eigi að njóta sanngjarnrar og réttlátrar þjónustu.

Bókun meirihluta A-lista
Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings (SVÁ) er byggðasamlag sem að Grímsnes- og Grafningshreppur er aðili að með þremur öðrum sveitarfélögum. Erindum til stjórnar SVÁ þarf að beina þangað til umfjöllunar og upptöku. Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshreppst getur ekki ein og sér ákveðið hvernig SVÁ fjallar um mál. SVÁ hefur nú þegar tekið af allan vafa um þjónusta við ungmenni undir 18 ára aldri. SVÁ er fagaðili þegar kemur að afgreiðslu og umsjón með skóla og velferðarþjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Meirihlutinn telur afar mikilvægt að faglegt mat og fagleg þjónusta sé í höndum SVÁ.Meirihluti sveitarstjórnar getur ekki tekið upp afgreiðslur stjórnar SVÁ en bendir á að hægt er að beina erindum beint til stjórnar SVÁ.
Tillögu Ö-listans er hafnað með fjórum atkvæðum meirilhluta A-lista gegn einu atkvæði Ö-lista.

f) Fundargerð 220. fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga bs., 25. ágúst 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
g) Fundargerð 6. fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu bs., 18. ágúst 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
h) Fundargerð 1. fundar stjórnar Byggðasafns Árnesinga bs., 20. ágúst 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2. Rekstraryfirlit 2026.
Lagt er fram til kynningar rekstaryfilit fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026. Karen Huld Gunnarsdóttir, deildarstjóri fjármála- og stjórnsýslu, kemur inn á fundinn undir þessum lið og fer yfir uppgjörið.
3. Afskriftir viðskiptakrafna.
Lögð er fram tillaga deildarstjóra fjármála og stjórnsýslu um afskriftir viðskiptakrafna Grímsnes- og Grafningshrepps samkvæmt fyrirliggjandi yfirliti.
Karen Huld Gunnarsdóttir, deildarstjóri fjármála- og stjórnsýslu, fer yfir tillöguna.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða afskriftir viðskiptakrafna samkvæmt fyrirliggjandi tillögu.
4. Úrskurður í máli nr. UUA2602005.
Lagður er fram til kynningar úrskurður í máli nr. UUA2602005.
5. Stjórnsýslukæra í máli nr. UUA2608007.
Lögð er fram tilkynning um stjórnsýslukæru í máli nr. UUA2608007. Kæran lýtur að afgreiðslu vegna breytingar á deiliskipulagi Ásgarðs þar sem frístundalóðir við Sunnubakka/Sólbakka voru felldar úr deiliskipulagi og svæðinu breytt í landbúnaðarland.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra og lögmanni sveitarfélagsins, Óskari Sigurðssyni hrl., að vinna að málinu fyrir hönd sveitarfélagsins.
6. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið – beiðni um umsögn vegna undanþágu frá skipulagsreglugerð, Grímkelsstaðir 12.
Lagt er fram erindi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins þar sem óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar vegna beiðni um undanþágu frá skipulagsreglugerð vegna fjarlægðar byggingar frá lóðarmörkum að Grímkelsstöðum 12. Með erindinu fylgja ljósmyndir af aðstæðum og yfirlýsing eiganda aðliggjandi lands þar sem fram kemur að ekki séu gerðar athugasemdir við að byggingin standi í 2,5 metra fjarlægð frá lóðarmörkum.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir við að veitt verði umbeðin undanþága og felur sveitarstjóra að svara erindi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins í samræmi við afgreiðslu sveitarstjórnar.
7. Faghópur 3 í rammaáætlun – ósk um álit vegna vindorkuhugmynda í 6. áfanga rammaáætlunar.
Lögð eru fram tvö erindi frá faghópi 3 í rammaáætlun, dagsett 25. ágúst 2026, þar sem óskað er eftir almennu áliti sveitarstjórnar á vindorkuhugmyndum sem eru til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar. Annars vegar er um að ræða Hrútmúlavirkjun í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, en Grímsnes- og Grafningshreppur er innan skilgreinds áhrifasvæðis virkjunarhugmyndarinnar, og hins vegar Mosfellsheiðarvirkjanir I og II sem eru fyrirhugaðar í Grímsnes- og Grafningshreppi og Sveitarfélaginu Ölfusi.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að fela oddvita að svara erindum faghóps 3 í rammaáætlun í samræmi við umræður á fundinum.
8. Ársreikningur og ársskýrsla Ungmennafélagsins Hvatar 2025.
Lögð eru fram til kynningar ársreikningur og ársskýrsla Ungmennafélagsins Hvatar fyrir árið 2025.
9. Náttúruhamfaratrygging Íslands – áminning um skipulag byggðar á þekktum hættusvæðum.
Lagt er fram til kynningar bréf Náttúruhamfaratryggingar Íslands, dagsett 27. ágúst 2026, ásamt bréfi stofnunarinnar frá 10. september 2025. Þar sem vakin er athygli á áhrifum 16. gr. laga nr. 55/1992 þegar mannvirki eru reist á svæðum þar sem náttúruvá er fyrir fram þekkt. Náttúruhamfaratrygging Íslands leggur áherslu á að áhættumat vegna náttúruvár sé uppfært og endurspeglist í skipulagi og skilmálum byggingarleyfa og að byggingarleyfishafar og kaupendur séu upplýstir um þekkta áhættu og mögulegar takmarkanir á bótarétti.
10. Erindi til sveitarstjórnar – Bíldsfell 3E, lóð 1, L219971.
Lagt er fram erindi Láru Magneu Jónsdóttur og Ólafs Guðmundssonar, dagsett 19. ágúst 2026, þar sem óskað er eftir að mál nr. 2510086, Bíldsfell 3E lóð 1, L219971, vegna breytingar á landnotkun úr frístundabyggð í landbúnaðarland, verði tekið aftur til afgreiðslu.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að málið verði tekið aftur til afgreiðslu og vísað til skipulagsnefndar UTU til frekari meðferðar.
11. Erindi til sveitarstjórnar – Gamla Borg – tillaga um stofnun nefndar um skipulag og notkun hússins.
Lagt er fram erindi frá Söndru Gunnarsdóttur, formanni Kvenfélags Grímsneshrepps, og Sigríði Kolbrúnu Oddsdóttur, formanni Félags 60+ í Grímsnes- og Grafningshreppi, dagsett 13. ágúst 2026. Í erindinu er lagt til að stofnuð verði nefnd um skipulag og notkun Gömlu Borgar, skipuð fulltrúum félagasamtaka og sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið og felur sveitarstjóra að móta reglur um notkun félagasamtaka á Gömlu Borg.
12. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun – staða húsnæðisuppbyggingar og skipulagsmála.
Lagt er fram til kynningar yfirlit Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) um stöðu húsnæðisuppbyggingar í Grímsnes- og Grafningshreppi og um húsnæðis- og skipulagsmál í kjölfar sveitarstjórnarkosninga.
13. International Zero-waste City Network – boð um aðild sveitarfélagsins.
Lagt er fram boð til Grímsnes- og Grafningshrepps um að gerast aðili að International Zero-waste City Network. Netið var stofnað árið 2022 til að stuðla að miðlun reynslu og samstarfi um úrgangsforvarnir og innleiðingu hugmyndafræði um „zero waste“. Þátttaka felur ekki í sér fjárhagslegar skuldbindingar fyrir sveitarfélagið.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps þakkar fyrir erindið. Sveitarfélagið tekur ekki þátt í því að þessu sinni og felur sveitarstjóra að svara erindu þess efnis..
14. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Lautarbrekku 4, 805 Selfossi, fnr. F2345101.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 17. ágúst 2026 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Lautarbrekku 4, fnr. F2345101.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að leggjast gegn útgáfu rekstrarleyfis á grundvelli laga nr. 85/2007 í flokki II, H frístundahús að Lautarbrekku 4, fnr. F2345101, þar sem lokaúttekt hefur ekki farið fram.
15. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Hvítárbraut 19c, 805 Selfossi, fnr. F2348226.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 17. ágúst 2026 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Hvítárbraut 19c, fnr. F2348226.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að leggjast gegn útgáfu rekstrarleyfis á grundvelli laga nr. 85/2007 í flokki II, H frístundahús að Hvítárbraut 19c, fnr. F2348226, þar sem leyfisveiting samræmist ekki stefnu gildandi skipulags.
16. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Hvítárbraut 19a, 805 Selfossi, fnr. F2348225.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 18. ágúst 2026 þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Hvítárbraut 19a, fnr. F2348225.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að leggjast gegn útgáfu rekstrarleyfis á grundvelli laga nr. 85/2007 í flokki II, H frístundahús að Hvítárbraut 19a, fnr. F2348225, þar sem leyfisveiting samræmist ekki stefnu gildandi skipulags.
17. Almenningssamgöngur leiðakerfi í uppsveitum.
Lögð er fram fundargerð samráðsfundar Vegagerðarinnar og sveitarfélaga vegna fyrirhugaðra breytinga á leiðum 72 og 73, dagsett 21. ágúst 2026, ásamt upplýsingum um farþegafjölda á leiðunum. Samkvæmt þeirri útfærslu sem kynnt var er gert ráð fyrir að leiðir 72 og 73 aki tvær ferðir á virkum dögum samkvæmt skóladagatali Fjölbrautaskóla Suðurlands, en að helgarakstur og sumarakstur falli niður auk þess sem aukaferð á föstudögum á leið 73 verði felld niður.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps ítrekar fyrri bókun sína frá 619. fundi sveitarstjórnar þann 10. júlí 2026 og lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá tillögu sem nú liggur fyrir. Með því að fella niður helgar- og sumarakstur og miða akstur leiðanna við skóladagatal Fjölbrautaskóla Suðurlands er almenningssamgöngum í uppsveitum í raun breytt í skólaakstur.
Sveitarstjórn telur mikilvægt að almenningssamgöngur þjóni samfélaginu öllu og tryggi íbúum aðgengi að atvinnu, námi, þjónustu og félagslífi allt árið. Fyrirliggjandi farþegatölur sýna jafnframt að þjónustan er nýtt utan hefðbundins skólatíma og telur sveitarstjórn því óásættanlegt að skerða þjónustuna með þessum hætti.
Sveitarstjórn skorar á innviðaráðuneytið að endurskoða fyrirhugaðar breytingar og tryggja áfram raunverulegar almenningssamgöngur í uppsveitum Árnessýslu allt árið um kring.

Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið klukkan: 16:02

Skjöl

Getum við bætt efni þessarar síðu?