Fara í efni

Fréttir

Tilkynning frá Rarik: Rafmagnslaust í hluta Grímsnes frá kl. 10-12:00 14.7
13.07.2026

Tilkynning frá Rarik: Rafmagnslaust í hluta Grímsnes frá kl. 10-12:00 14.7

Vegna vinnu við dreifistöð verður rafmagnslaust í hluta Grímsnes frá kl. 10:00 til kl. 12:00 þann 14.7.2026. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af svæðinu má sjá á rarik.is/rof
Gamla Borg opnuð fyrir gesti og gangandi. Mynd frá Fjólu S. Kristinsdóttur.
18.06.2026

Vel heppnaður þjóðhátíðardagur á Borg

Þjóðhátíðardagurinn var haldinn hátíðlegur á Borg með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Dagurinn hófst á fyrsta hjóladeginum, þar sem gaman var að sjá hversu vel tókst til þrátt fyrir krefjandi veðuraðstæður. Fjöldi barna tók þátt í skemmtibrautinni, prófaði sig áfram á hjóli og fékk einnig tækifæri til að setjast á hestbak. Þá tóku 11 þátttakendur þátt í tímatöku í hjólabrautinni og fengu allir þátttakendur ís frá Kjörís að lokinni keppni.
Mynd tekin af Gunnari Bjarna Kristinssyni
11.06.2026

Gamla Borg opin gestum á þjóðhátíðardaginn

Í tilefni þjóðhátíðardagsins verður Gamla Borg opin gestum og gangandi miðvikudaginn 17. júní frá kl. 12:00 til 16:00. Kl. 12:15 flytur oddviti sveitarstjórnar stutta ræðu og að henni lokinni gefst gestum tækifæri til að ganga um húsið og kynna sér þetta sögufræga kennileiti á Borg.
Verksamningur vegna Björgunarmiðstöðvar undirritaður
09.06.2026

Verksamningur vegna Björgunarmiðstöðvar undirritaður

Í dag, 9. júní 2026, var undirritaður samningur milli Grímsnes og Grafningshrepps og HR smíði um byggingu Björgunarmiðstöðvar á Borg. Undir samninginn skrifuðu Fjóla St. Kristinsdóttir, sveitarstjóri, og Hilmar Ragnarsson fyrir hönd HR smíði.
Getum við bætt efni þessarar síðu?