Sveitarstjórn
Guðmundur Finnbogason, oddviti setti fund, bauð fundargesti velkomna og leitaði athugasemda við fundarboð, engar athugasemdir voru við boðun fundarins.
1. Fundargerðir.
a) Fundargerð 34. fundar skólanefndar frá 12. október 2026.
Mál nr. 4 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Mál nr. 4; Erindi varðandi vinnutímastyttingu.
Kennarar grunnskóladeildar óska eftir því að fyrirkomulag vinnutímastyttingar kennara við skólann verði teknar til endurskoðunnar. Þeir vilja athuga hvort hægt sé að útfæra vinnutímastyttinguna með öðrum hætti en nú er gert, þannig að hún nýtist betur sem raunveruleg stytting á vinnutíma.
Skólanefnd mælir með að sveitarstjórn samþykki erindið.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps tekur jákvætt í að fyrirkomulag vinnutímastyttingar verði skoðað og felur sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga um fyrirliggjandi fyrirkomulag og þær breytingar sem óskað er eftir. Við yfirferðina verði meðal annars lagt mat á áhrif mögulegra breytinga á skólastarf, mönnun og kostnað með hliðsjón af gildandi kjarasamningum.
b) Fundargerð 334. fundar skipulagsnefndar UTU, 14. október 2026.
Mál nr. 16, 17, 18, 19, 20, 21, 22, 23 og 24 þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.
Lögð er fram 334. fundargerð skipulagsnefndar UTU, dagsett 14. október 2026. Eftirfarandi dagskrárliðir þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar
Mál nr. 16; Klausturhólar gjallnámur L168965; Efnistaka í Seyðishólum náma E24; Framkvæmdarleyfi – 2506103
Lögð er fram að nýju umsókn ásamt fylgigögnum frá Suðurtaki ehf er varðar útgáfu framkvæmdaleyfis. Í umsókninni felst beiðni um efnistöku á svæði E24, Seyðishólum. Fyrirhugað er að taka um 435.000 m3 af efni úr námunni á næstu 15 árum eða um 29.000 m3 á ári að meðaltali. Efnið er til notkunar í nágrenninu ásamt því að ráðgert er að árlega verði 12.000-15.000 m3 af gjalli ætlaðir til útflutnings. Tilgangur framkvæmdaleyfis er að auki afmörkun námusvæðisins og frágangur á því að efnistöku lokinni. Vísað er til umhverfismats um fyrirætlanir leyfisumsækjanda hvað þetta varðar. Framkvæmdaleyfi vegna efnistöku úr námu E24 sem samþykkt var í sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps þann 02.10.2024 var fellt úr gildi með úrskurði Úrskurðarnefndar Umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 151/2024. Tekið hefur verið tillit til röksemda sem úrskurður 151/2024 byggðist á. Efnismagnið hefur verið minnkað og minna magn ætlað til útflutnings auk þess sem fyrirhugað er að takmarka efnisflutninga við rúma 6 mánuði á ári, þ.e. frá 1. apríl-30. júní og 20. ágúst-30. nóvember ár hvert. Efnistökusvæðið er 4,4 ha en ekki 6,5 ha eins og gert er ráð fyrir í greinargerð með aðalskipulagi Grímsnes og Grafningshrepps.
Skipulagsnefnd UTU hefur farið yfir framlagða framkvæmdaleyfisumsókn Suðurtaks ehf., umhverfismatsskýrslu framkvæmdarinnar, álit HMS, umsögn Náttúruverndarstofnunar Íslands og fyrirliggjandi drög að greinargerð sveitarfélagsins vegna afgreiðslu framkvæmdaleyfis.
Nefndin telur að með framlagðri greinargerð hafi verið gerð fullnægjandi grein fyrir umfangi framkvæmdarinnar, umhverfisáhrifum hennar, mótvægisaðgerðum, vöktun og skilyrðum leyfisveitingar. Þá telur nefndin að brugðist hafi verið við þeim atriðum sem lágu til grundvallar úrskurðum úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 98/2023 og 151/2024, meðal annars með frekari gagnaöflun, umsögn lögbundins umsagnaraðila, breyttu umfangi framkvæmdarinnar og ítarlegum rökstuðningi um nauðsyn framkvæmdarinnar.
Nefndin tekur undir það mat sem fram kemur í greinargerð sveitarfélagsins að áframhaldandi efnistaka muni hafa staðbundin og óafturkræf áhrif á jarðmyndun sem nýtur sérstakrar verndar samkvæmt 61. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Að teknu tilliti til fyrirliggjandi gagna, umfangs núverandi rasks á svæðinu, þeirra skilyrða sem sett eru um framkvæmdina og þeirra samfélagslegu hagsmuna sem framkvæmdin þjónar telur nefndin þó að skilyrði um brýna nauðsyn séu uppfyllt í þessu tilviki.
Skipulagsnefnd UTU telur jafnframt að framkvæmdin, með þeim skilyrðum sem fram koma í greinargerð sveitarfélagsins og framkvæmdaleyfinu, sé í samræmi við gildandi aðalskipulag Grímsnes- og Grafningshrepps og að fullnægjandi grein hafi verið gerð fyrir samræmi leyfisveitingar við niðurstöðu umhverfismats framkvæmdarinnar og álit Skipulagsstofnunar.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps vísar málinu til loftslags- og umhverfisnefndar til efnislegrar umfjöllunar. Að lokinni umfjöllun nefndarinnar verði málið lagt að nýju fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu.
Mál nr. 17; Klausturhólar L177600; Uppskipting námusvæðis í tvo hluta; Deiliskipulag - 2511042
Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Klausturhóla L177600 í Grímsnes- og Grafningshreppi, að lokinni kynningu og auglýsingu. Deiliskipulagið tekur til um 15 ha hluta námusvæðis E17 og felst m.a. í uppskiptingu efnistökusvæðisins, skilmálum um efnistöku, efnislosun, landmótun og frágang svæðisins. Gert er ráð fyrir efnistöku allt að 150.000 m³ og að svæðið verði nýtt og frágengið á næstu 15 árum, með lokun þess árið 2040. Jafnframt hefur verið gerð breyting á aðalskipulagi þar sem efnistökusvæðinu E17 er skipt upp og nýtt efnistökusvæði E32 skilgreint fyrir nyrsta hluta svæðisins. Umsagnir og athugasemdir bárust á kynningarstigi og hafa verið lagðar fram ásamt viðbrögðum og uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð HMS í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 18; Vaðholt 2 L219744 í landi Ormsstaða; Sameining lóða; Deiliskipulag – 2609028
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Vaðholts 2, L219744 . Í breytingunni felst meðal annars að lóðir nr. 4, 6, 8 og 10 sameinast lóðinni Vaðholt 2.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir deiliskipulagið til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 19; Oddsholt 22 L194797; Byggingarreitur færður; Deiliskipulagsbreyting – 2606082
Lögð fram ný tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingar sem felur í sér breytingu á byggingarreit á Oddsholi 22 um 7 metra til norðurs og aðlögun að lóðarmörkum austan megin. Þá færast syðri mörk bygggingarreitar um það bil 19 m. til norðurs til að viðhalda sömu stærð byggingarreits og upphaflega var.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
Mál nr. 20; Írafossstöð; Selfosslína 1 - endurnýjun og lagning jarðstrengs; Tenging við Írafossvirkjun; Deiliskipulagsbreyting – 2610021
Lögð er fram ný tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir Írafoss- og Ljósafossstöðvar í Grímsnes- og Grafningshreppi. Í breytingunni felst að núverandi 66 kV loftlína Selfosslínu 1 frá Ljósafossstöð að mastri nr. 8 sunnan Írafossstöðvar verði lögð í jörð sem 132 kV jarðstrengur. Jafnframt er gert ráð fyrir breytingum á tengivirki við Írafossstöð, þar á meðal stækkun byggingarreits fyrir tengivirkishús og að hluti Sogslínu 2 verði lagður í jörð. Deiliskipulagsbreytingin felur þannig fyrst og fremst í sér að núverandi raforkumannvirki verði endurnýjuð og hluti þeirra færður í jörð, í samræmi við fyrirhugaða uppbyggingu raforkukerfisins á svæðinu. Gert er ráð fyrir að áhrif framkvæmdarinnar verði að mestu tímabundin og að vandað verði til frágangs að framkvæmdum loknum.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
Mál nr. 21; Öndverðarnes 1 L168299; Hitaveitulögn; Framkvæmdarleyfi – 2610004
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til lagningar nýrrar hitaveitu við Biskupstungnabraut í Grímsnes- og Grafningshreppi. Framkvæmdin felst í lagningu nýrra hitaveitulagna frá Biskupstungnabraut að Kirkjuhólsbraut og Klapparhólsbraut, ásamt tengingum við núverandi lagnakerfi. Framkvæmdin er áfangaskipt og felur jafnframt í sér að hluta eldri lagna verði lokað eða þær lagðar af.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með fyrirvara um jákvæða umsögn frá Vegagerðinni.
Mál nr. 22; Nesjavellir L170825; Jarðhitahola IDDP3; Framkvæmdarleyfi – 2610023
Lögð er fram umsókn Orkuveitunnar um framkvæmdaleyfi vegna borunar jarðhitaholu IDDP-3 á Nesjavöllum í Grímsnes- og Grafningshreppi. Sótt er um leyfi fyrir tveimur mögulegum staðsetningum innan vinnslusvæðis Nesjavallavirkjunar, en aðeins verður borað á annarri þeirra. Fyrirhuguð framkvæmd felur í sér borun allt að 3.000 m djúprar stefnuboraðrar háhitaholu í rannsóknarskyni. Eðli, umfang og markmið framkvæmdarinnar eru óbreytt frá fyrri umsókn, en staðsetning annars valkostar hefur verið uppfærð á grundvelli frekari jarðfræðilegra og tæknilegra rannsókna.
Skipulagsnefnd UTU hefur farið yfir framlagða umsókn Orkuveitunnar um framkvæmdaleyfi vegna borunar rannsóknarholunnar IDDP-3 á Nesjavöllum ásamt fylgigögnum.
Nefndin telur að fyrirhuguð framkvæmd sé í samræmi við gildandi aðalskipulag Grímsnes- og Grafningshrepps 2020-2032 og gildandi deiliskipulag Nesjavallavirkjunar. Fyrir liggur að umfang, eðli og markmið framkvæmdarinnar eru óbreytt frá fyrri leyfisveitingu en annar staðarvalkostur hefur verið uppfærður á grundvelli frekari jarðfræðilegra og tæknilegra rannsókna. Jafnframt liggur fyrir að aðeins verður borað á annarri þeirrar staðsetningar sem umsóknin tekur til.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna borunar jarðhitaholunnar IDDP-3 á Nesjavöllum á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.
Sveitarstjórn felur jafnframt skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfið að uppfylltum skilyrðum laganna og í samræmi við framlagða umsókn og fylgigögn.
Mál nr. 23; Úlfljótsvatn L170830; Stígagerð; Fyrirspurn - 2610025
Lögð er fram styrkumsókn Skógræktarfélags Íslands vegna fyrirhugaðrar vegagerðar á útivistar- og skógræktarsvæði félagsins við Úlfljótsvatn í Grímsnes- og Grafningshreppi. Umsóknin tekur til lagningar um 2,5 km langs vegar innan svæðisins, sem ætlað er að bæta aðgengi almennings að útivistarsvæðinu og tengingu við skátasvæðið, auk þess að nýtast við skógarumhirðu, jólatrjáatekju og öryggis- og viðbragðsstarf. Áætlaður heildarkostnaður framkvæmdarinnar er 4,9 m.kr. og er óskað eftir styrk fyrir þeirri fjárhæð.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps gerir ekki athugasemdir við þau áform sem fram koma í umræddri styrkumsókn til Vegagerðarinnar, enda sé það vilji landeigenda að Úlfljótsvatni að ráðast í umrædda vegagerð.
Mál nr. 24; Hvítárbraut 41 L169735; Staðfest afmörkun lóðar - 2609041
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 10.07.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar staðfestingu á afmörkun og stærð lóðarinnar, Hvítárbraut 41 L169735 í Grímsnes- og Grafningshr.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu og gerir ekki athugasemd við erindið.
c) Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa nr. 26-266 frá 7. október 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
d) Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa nr. 26-267 frá 14. október 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
e) Fundargerð 3. fundar stjórnar byggðasamlags UTU frá 14. október 2026.
Fundargerð 3. fundar stjórnar byggðasamlags UTU frá 14. október 2026 lögð fram til kynningar.
Mál nr. 2 um yfirfærslu fjárframlaga vegna fjárfestinga á Seyrustöðum er tekið fyrir undir 9. dagskrárlið.
f) Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. frá 6. október 2026 og ársskýrsla SVÁ 2025–2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar ásamt ársskýrslu SVÁ 2025–2026.
g) Fundargerð 96. stjórnarfundar Bergrisans bs. frá 5. október 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar
h) Fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 23. september 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar
i) Fundargerð 1004. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 8. október 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar
2. Fjárhagsáætlun Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir árið 2027 – fyrri umræða.
Fjárhagsáætlun Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir árið 2027 lögð fram til fyrri umræðu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa fjárhagsáætlun Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir árið 2027 til síðari umræðu.
Karen Huld Gunnarsdóttir, deildarstjóri fjármála og stjórnsýslu, sat fundinn undir 2. og 3. dagskrárlið.
3. Viðauki við fjárhagsáætlun Grímsnes- og Grafningshrepps 2026 vegna breytinga á bókhaldsreglugerð.
Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir árið 2026. Viðaukinn felur í sér tilfærslur fjárheimilda milli deilda og málaflokka til samræmis við breytingar á reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða viðaukann eins og hann liggur fyrir. Viðaukinn hefur ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu sveitarfélagsins.
4. Yfirdráttarheimild fyrir Grímsnes- og Grafningshrepp.
Lagt fram erindi um að Grímsnes- og Grafningshreppur sæki um yfirdráttarheimild hjá viðskiptabanka sveitarfélagsins að fjárhæð allt að 200.000.000 kr. Tilgangur yfirdráttarheimildarinnar er að mæta tímabundnum sveiflum í fjárstreymi sveitarfélagsins, meðal annars vegna þeirra fjárfestingarverkefna sem unnið er að.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að sækja um og ganga frá yfirdráttarheimild hjá viðskiptabanka sveitarfélagsins að fjárhæð allt að 200.000.000 kr.
Jafnframt veitir sveitarstjórn Fjólu Steindóru Kristinsdóttur, sveitarstjóra, kt. 270272-5849, fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita, móttaka, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast umsókn um og frágangi yfirdráttarheimildarinnar.
5. Gjaldskrá hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps 2027 – fyrri umræða.
Fyrir liggur minnisblað Ragnars Guðmundssonar, deildarstjóra veitna, dagsett 12. október 2026, um tillögu að breytingum á gjaldskrá og innheimtufyrirkomulagi Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir árið 2027.
Lagt er til að gjaldskrá hitaveitunnar hækki almennt um 2,5%, að hitaveitugjöld verði innheimt mánaðarlega í stað þess að vera innheimt á þriggja mánaða fresti og að ekki verði beitt frekari vísitöluhækkunum á árinu 2027. Fyrirhugað er að breytingarnar taki gildi 1. janúar 2027.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa tillögu að gjaldskrá Hitaveitu Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir árið 2027 til síðari umræðu.
Ragnar Guðmundsson, deildarstjóri veitna, kom inn á fundinn undir þessum lið.
6. Niðurstaða – Sveitarfélag ársins 2026.
Fyrir liggja niðurstöður úr árlegri könnun Gallup um starfsánægju í sveitarfélögum landsins vegna Sveitarfélags ársins 2026. Hrunamannahreppur varð í fyrsta sæti, Grímsnes- og Grafningshreppur í öðru sæti, Grundarfjarðarbær í því þriðja, Skeiða- og Gnúpverjahreppur í fjórða sæti og Sveitarfélagið Ölfus í fimmta sæti.
Sveitarstjórn óskar starfsfólki Grímsnes- og Grafningshrepps til hamingju með frábæran árangur og þakkar fyrir það góða starf sem unnið er hjá sveitarfélaginu.
Af þessu tilefni bauð sveitarfélagið öllu starfsfólki Grímsnes- og Grafningshrepps og nemendum Kerhólsskóla upp á köku í hádeginu miðvikudaginn 21. október 2026. Jafnframt var haldið upp á bleika daginn á starfsstöðvum sveitarfélagsins.
7. Jafnvægisvogin 2026 – Viðurkenning til Grímsnes- og Grafningshrepps
Lögð fram til kynningar viðurkenning Jafnvægisvogarinnar 2026 sem Grímsnes- og Grafningshreppur hlaut fyrir árangur í jafnréttismálum.
Sveitarstjórn fagnar viðurkenningunni og þakkar starfsfólki sveitarfélagsins fyrir framlag þess til jafnréttismála og góðra stjórnunarhátta.
8. Niðurstaða verðfyrirspurnar vegna snjómoksturs og hálkuvarna á héraðsvegum og tengivegum í Grímsnesi og Grafningshreppi 2026–2028.
Fyrir liggur minnisblað Steinars Sigurjónssonar, deildarstjóra framkvæmda, mannvirkja og umhverfis, dagsett 14. október 2026, um niðurstöðu verðfyrirspurna vegna snjómoksturs og hálkuvarna á héraðsvegum og tengivegum í Grímsnesi og Grafningi fyrir tímabilið 2026–2028.
Eftirfarandi tilboð bárust vegna snjómoksturs og hálkuvarna í Grafningi:
- Vélaleiga Ingólfs ehf. – 16.318.400 kr.
- Suðurtak ehf. – 13.160.000 kr.
- Véldurgur ehf. – 13.360.000 kr.
Eftirfarandi tilboð bárust vegna snjómoksturs og hálkuvarna í Grímsnesi:
- Suðurtak ehf. – 15.300.000 kr.
- Véldurgur ehf. – 21.950.000 kr.
Fram kemur í minnisblaðinu að öll tilboð hafi verið yfirfarin og teljist gild. Lagt er til að tilboðum lægstbjóðanda, Suðurtaks ehf., verði tekið í báðum verkum.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að taka tilboði Suðurtaks ehf. að fjárhæð 13.160.000 kr. vegna snjómoksturs og hálkuvarna í Grafningi og tilboði sama aðila að fjárhæð 15.300.000 kr. vegna snjómoksturs og hálkuvarna í Grímsnesi fyrir tímabilið 2026–2028. Jafnframt felur sveitarstjórn Fjólu Steindóru Kristinsdóttur sveitarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Grímsnes- og Grafningshrepps.
Steinar Sigurjónsson, deildarstjóri framkvæmda, mannvirkja og umhverfis, kom inn á fundinn undir þessum lið.
9. Minnisblað KPMG um rekstur Seyrustaða og yfirfærslu eigna til Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs.
Lagt fram minnisblað KPMG, dagsett 7. október 2026, um rekstur Seyrustaða og fyrirkomulag mögulegrar yfirfærslu eigna frá aðildarsveitarfélögunum til Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að fara í heildstæða yfirferð á núverandi fyrirkomulagi seyruþjónustunnar í Grímsnes- og Grafningshreppi, meðal annars með tilliti til þjónustustigs, losunartíðni, akstursvegalengda, kostnaðar og gjaldtöku. Jafnframt verði kannað hvort aðrar leiðir við framkvæmd þjónustunnar geti leitt til aukinnar hagkvæmni fyrir sveitarfélagið og fasteignaeigendur.
Enn fremur felur sveitarstjórn sveitarstjóra og deildarstjóra veitna að afla, eftir atvikum í samráði við KPMG og stjórn UTU, nánari upplýsinga um fjárhagsleg áhrif mögulegrar yfirfærslu eigna og áhrif breytinga á þjónustufyrirkomulagi á eignarhlutdeild og skuldbindingar sveitarfélagsins.
Niðurstöður verði lagðar fyrir sveitarstjórn áður en tekin verður endanleg afstaða til yfirfærslu eignanna og framtíðarfyrirkomulags seyruþjónustunnar.
10. Tillaga frá Betri sveit um losunartíðni rotþróa í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Sveitarstjórn er sammála um mikilvægi þess að fara í heildstæða yfirferð á núverandi fyrirkomulagi seyrulosunar. Í samræmi við bókun við lið 9. er sveitarstjóra og deildarstjóra veitna falið að vinna málið áfram.
11. Úrskurður í máli nr. UUA2608007.
Lagður fram til kynningar úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2608007 vegna kæru á ákvörðun sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps um breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs. Með úrskurðinum var kærumálinu vísað frá.
12. Úrskurður í máli nr. UUA2609022.
Lagður fram til kynningar úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2609022 vegna kæru á ákvörðun sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps um breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Kringlu II. Með úrskurðinum var kærumálinu vísað frá.
13. Úrskurður yfirfasteignamatsnefndar í máli nr. 5/2026.
Lagður fram til kynningar úrskurður yfirfasteignamatsnefndar, dagsettur 12. október 2026, í máli nr. 5/2026, vegna kæru á álagningu fasteignaskatts á fasteign við Neðra-Apavatn í Grímsnes- og Grafningshreppi. Með úrskurðinum var staðfest ákvörðun sveitarfélagsins um álagningu fasteignaskatts samkvæmt c-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995 fyrir tímabilið 27. apríl til 5. maí 2026.
14. Umsókn Sigurhæða um rekstrarstyrk fyrir árið 2027.
Lögð fram umsókn frá Sigurhæðum um rekstrarstyrk fyrir árið 2027 að fjárhæð 334.264 kr.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkir samhljóða að veita Sigurhæðum rekstrarstyrk að fjárhæð 334.264 kr. fyrir árið 2027. Sveitarstjórn telur mikilvægt að styðja við starfsemi Sigurhæða enda veiti þær mikilvæga þjónustu við íbúa nærsamfélagsins. Gert verði ráð fyrir styrknum í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2027.
15. Ósk Samtaka um karlaathvarf um stuðning við starfsemi samtakanna.
Lagt fram erindi frá Samtökum um karlaathvarf þar sem óskað er eftir fjárhagslegum stuðningi við starfsemi samtakanna.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps þakkar Samtökum um karlaathvarf fyrir erindið og það mikilvæga starf sem samtökin sinna. Sveitarstjórn sér sér þó ekki fært að verða við styrkbeiðninni að þessu sinni.
16. Erindi Samtaka um Kvennaathvarf um rekstrarstyrk fyrir árið 2027.
Lagt fram erindi frá Samtökum um Kvennaathvarf þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk að fjárhæð 200.000 kr. fyrir árið 2027.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps þakkar Samtökum um Kvennaathvarf fyrir erindið og það mikilvæga starf sem samtökin sinna. Sveitarstjórn sér sér þó ekki fært að verða við styrkbeiðninni að þessu sinni.
17. Beiðni Stígamóta um framlag til starfsemi árið 2027.
Lagt fram erindi frá Stígamótum þar sem óskað er eftir fjárhagslegu framlagi til starfsemi samtakanna fyrir árið 2027.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps þakkar Stígamótum fyrir erindið og það mikilvæga starf sem samtökin sinna. Sveitarstjórn sér sér þó ekki fært að verða við styrkbeiðninni að þessu sinni.
18. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, C minna gistiheimili að Kringlu 2A, 805 Selfossi, fnr. 2530890.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 8. október 2026, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar Bíliðjunnar ehf. um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, C minna gistiheimili að Kringlu 2A, 805 Selfossi, fnr. 2530890.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II, C minna gistiheimili að Kringlu 2A, 805 Selfossi, fnr. 2530890.
19. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Smámýrarvegi 25, 805 Selfossi, fnr. 2529593.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 8. október 2026, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar Ark2 ehf. um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Smámýrarvegi 25, 805 Selfossi, fnr. 2529593.
Ragna Ívarsdóttir víkur af fundi undir þessum lið.
Sveitarstjórn samþykkir með 4 atkvæðum A-lista að leggjast gegn útgáfu rekstrarleyfis í flokki II, H frístundahús að Smámýrarvegi 25, 805 Selfossi, fnr. 2529593, þar sem leyfisveiting samræmist ekki stefnu gildandi skipulags.
20. Bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi um umsögn vegna umsóknar um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Langarima 11, 805 Selfossi, fnr. 2529572.
Fyrir liggur bréf frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dagsett 14. október 2026, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar Sláttar og smáverka ehf. um leyfi til reksturs fyrir gistingu í flokki II, H frístundahús að Langarima 11, 805 Selfossi, fnr. 2529572.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemdir við að veitt verði leyfi í rekstrarflokki II, H frístundahús að Langarima 11, 805 Selfossi, fnr. 2529572.
21. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 59. mál, „Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn)“.
Lögð fram til kynningar umsagnarbeiðni frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis vegna 59. máls á 158. löggjafarþingi, frumvarps til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011, sem varðar fjölda fulltrúa í sveitarstjórn.
22. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 156. mál, „Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar)“.
Lögð fram til kynningar umsagnarbeiðni frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis vegna 156. máls á 158. löggjafarþingi, frumvarps til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun nr. 106/1999, sem varðar lagfæringar á lögunum.
23. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 88. mál, „Tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá“.
Lögð fram til kynningar umsagnarbeiðni frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis vegna 88. máls á 158. löggjafarþingi, tillögu til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá.
24. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 202. mál, „Loftslagslög“.
Lögð fram til kynningar umsagnarbeiðni frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis vegna 202. máls á 158. löggjafarþingi, frumvarps til loftslagslaga.
25. Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs tillögur að viðmiðum um sjálfbæra þróun sveitarfélaga.
Lagt fram erindi frá innviðaráðuneytinu vegna tillagna að viðmiðum um sjálfbæra þróun sveitarfélaga sem birtar hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að fara yfir tillögurnar og meta möguleg áhrif þeirra á Grímsnes- og Grafningshrepp, með hliðsjón af sérstöðu sveitarfélagsins, og skila umsögn ef tilefni er til.
26. Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar kynnir til samráðs tillögu að flokkun vindorkuverkefna.
Fyrir liggur erindi frá verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar þar sem kynnt er tillaga að flokkun sjö vindorkuverkefna ásamt skýrslu og fylgiskjölum. Tillagan hefur verið birt til 12 vikna samráðs í samráðsgátt stjórnvalda.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra og oddvita að fara yfir tillögurnar og meta möguleg áhrif þeirra á Grímsnes- og Grafningshrepp, með hliðsjón af hagsmunum og sérstöðu sveitarfélagsins, og skila umsögn ef tilefni er til.
27. Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til samráðs tillögur að breytingum á námsmati í grunnskólum.
Lögð fram tillaga mennta- og barnamálaráðuneytisins að breytingum á ákvæðum aðalnámskrár grunnskóla um námsmat.
Jafnframt lögð fram sameiginleg umsögn Kerhólsskóla og skólanefndar Grímsnes- og Grafningshrepps um fyrirhugaðar breytingar. Í umsögninni eru gerðar athugasemdir við tímasetningu innleiðingar og lagt til að breytingunum verði frestað þar til skýrari viðmið og leiðbeiningar liggja fyrir og skólum hefur gefist nægur tími til undirbúnings.
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps tekur undir framlagða umsögn Kerhólsskóla og skólanefndar og felur sveitarstjóra að senda umsögnina inn í samráðsgátt stjórnvalda.
Ekki fleira tekið fyrir og fundi slitið klukkan: 16:13