Fara í efni

Fréttir

Fyrsta skóflustunga að nýrri björgunarmiðstöð á Borg
09.03.2026

Fyrsta skóflustunga að nýrri björgunarmiðstöð á Borg

Fimmtudaginn 12. mars kl. 15:00 verður tekin fyrsta skóflustunga að nýrri björgunarmiðstöð í Grímsnes- og Grafningshreppi. Athöfnin fer fram við Þinggerði 1 á Borg, um 100 metrum frá hringtorginu.
Nýtt strætóskýli við Íþróttamiðstöðina á Borg
09.03.2026

Nýtt strætóskýli við Íþróttamiðstöðina á Borg

Nýlega var komið fyrir nýju strætóskýli við Íþróttamiðstöðina á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi. Skýlið er mikilvægt skref í að bæta aðstöðu fyrir íbúa og gesti sem nýta sér almenningssamgöngur á svæðinu.
Frá undirritun samningsins.
09.03.2026

Undirritaður samstarfssamningur við Félag 60+

Þann 6. mars sl. undirrituðu Grímsnes- og Grafningshreppur og Félag 60+ samstarfssamning sem miðar að því að efla og styrkja félagsstarf eldri borgara í sveitarfélaginu. Með samningnum er viðurkennd sú mikilvæga vinna sem félagið sinnir við að skapa vettvang fyrir virkni, samveru og aukin lífsgæði eldri íbúa sveitarfélagsins. Félag 60+ hefur á undanförnum árum staðið fyrir fjölbreyttri og öflugri starfsemi sem hefur vakið jákvæða athygli í samfélaginu. Þar má meðal annars nefna skipulagðar heilsubótargöngur, boccia-æfingar, opið hús og ýmsa félagsviðburði. Einnig hefur félagið staðið fyrir vinsælum samkomum á borð við jólamat og þorrablót félagsins sem hafa skapað mikilvægan vettvang fyrir samveru og félagsleg tengsl eldri íbúa.
Getum við bætt efni þessarar síðu?